Velferðin og valkyrjurnar Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir skrifar 7. apríl 2026 13:00 Þegar hinar svokölluðu Valkyrjur tóku við stjórn landsins var mörgum tíðrætt um að nú væri komin alvöru velferðarstjórn við völd. Þegar síðan læknir settist í heilbrigðisráðuneytið höfðu margir trú á að nú yrðu heilbrigðismálin í forgangi og lagað yrði til í þeim málum sem setið hafa á hakanum og þar sem biðlistar hafa myndast. En sú hefur ekki verið raunin, umræðan um heilbrigðiskerfið er enn undirlögð af manneklu, biðlistum og kerfi sem er að niðurlotum komið. Og það á svo sannarlega við á mínum starfsvettvangi sem talmeinafræðingur. Talmeinafræðingar sinna einstaklingum með ýmis tal- og málmein og án þess að eyða of miklu í útskýringar í þessari grein, þá eiga börn, með alvarlegasta vandann, og fullorðnir að sækja slíka þjónustu á stofur sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga þar sem Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða fyrir þjónustuna að hluta eða í heild. Talmeinafræðingar á stofum starfa því eftir samningi við SÍ en nú er staðan sú að ekki hefur verið skrifað undir nýjan samning frá 2017. Sjálf hef ég starfað sem talmeinafræðingur á eigin stofu, Talþjálfun Vesturlands, í rétt tæp 10 ár. Stofu sem nú hefur verið tekin ákvörðun um að loka en talmeinafræðingarnir sem þar hafa starfað neita að að vinna áfram á þeim kjörum sem SÍ bíður. Kjör talmeinafræðinga hafa ekki fylgt eftir hækkunum í þjóðfélaginu svo á meðan reksturinn verður dýrari fylgja tekjurnar ekki eftir sem síðan vissulega hefur áhrif á laun talmeinafræðinga. Þá hefur SÍ einnig neitað talmeinafræðingum um tengingu við launavísitölu, eitthvað sem aðrar heilbrigðisstéttir hafa fengið í sínum samningum við SÍ. Talmeinafræðingar eru einn minnsti hópurinn sem SÍ semur við, að stórum hluta konur og sinna að meirihluta til börnum (þó alls ekki megi gleyma þeim hópi fullorðinna sem þurfa þjónustu þeirra), hvaða skilaboð sendir það þegar þetta er hópurinn sem fær ekki inn þær kjarabætur sem aðrir hópar hafa fengið? Er þessi hópur minna virði? Með lokun Talþjálfun Vesturlands er nú enginn stofa sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga frá Mosfellsbæ til Skagafjarðar, þannig að íbúar á Vesturlandi þurfa orðið ansi langt eftir þjónustunni. Svo enn og aftur kemur fjárskortur í heilbrigðiskerfinu harðar niður á landsbyggðinni. En þetta hefur líka áhrif á biðtíma allra skjólstæðinga sem þurfa á þjónustu talmeinafræðinga að halda. Talmeinafræðingar eru mikil skortstétt en á meðan aðeins tæplega 80 talmeinafræðingar starfa á stofum eru um 5000 börn á bið eftir þjónustu þeirra. Það munar því miklu um hvern og einn talmeinafræðing. Þá má búast við að skortur á talmeinafræðingum aukist enn frekar þegar ekki eru gerðir góðir samningar en slíkt getur leitt til þess að samfélagið horfi á eftir fleiri og fleiri talmeinafræðingum hverfa til annarra starfa. Talþjálfun Vesturlands hefur einnig tekið á móti fjölda talmeinafræðinema í starfsnám sem er mikilvægur þáttur þess að fjölga hér talmeinafræðingum, en nú þarf að finna aðrar starfsstöðvar til að koma þeim á, eitthvað sem alltaf er flókið í svona undirmannaðri stétt. Talmeinafræðingar hafa reynt að vekja athygli á stöðunni, meðal annars með samtali við hæstvirtan heilbrigðisráðherra sem sýndi málefninu mjög takmarkaðan áhuga svo þessi fjöldi einstaklinga sem þurfa á aðstoð við að ná valdi á tungumálinu virðist ekki skipta ráðuneytið neinu máli. Þolinmæði talmeinafræðinga er á þrotum. Ein stofa hefur ákveðið að loka og talmeinafræðingar þar hverfa til annarra starfa. Útlit er fyrir að önnur stofa loki í sumar þar sem talmeinafræðingar hætta vegna aldurs og aðrir talmeinafræðingar eru ekki tilbúnir að taka við á þeim kjörum sem SÍ býður. Þá er vitað um fleiri talmeinafræðinga sem íhuga alvarlega stöðu sína og því óljóst hver fjöldi talmeinafræðinga á samningi verður í framhaldinu. En það er kannski þannig sem Valkyrjurnar ætla að útrýma biðlistum, þjónustan verður ekki til svo það verða engir biðlistar að skrá sig á? Verður það arfleið þeirra? Höfundur er talmeinafræðingur og framkvæmdastjóri Talþjálfunar Vesturlands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar