Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. apríl 2026 20:14 Donald Trump ávarpaði blaðamenn fyrr í dag. EPA Boðuð herkví Bandaríkjaforseta á ströndum Írans tók gildi nú síðdegis og samkvæmt forsetanum hafa skip þegar fengið að sigla um Hormússund. Hann hótar því að öllum írönskum skipum sem nálgist skip bandaríska sjóhersins verði útrýmt.
Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarpaði óvænt blaðamenn í Hvíta húsinu í dag eftir að hann setti á herkví bandaríska sjóhersins við strendur Írans. Hann boðaði herkvína í kjölfar þess að friðarviðræður Írans og Bandaríkjanna runnu út í sandinn. Að sögn Trumps var úranauðgun helsti ágreiningur ríkjanna en Bandaríkjamenn vilja koma í veg fyrir að Íranir geri slíkt og búi til kjarnorkuvopn. Hins vegar vilja Íranir ekki gefa upp vopnin. „Ef þeir samþykkja það ekki, verður ekkert samkomulag,“ sagði forsetinn á blaðamannafundinum. Hann ítrekaði hins vegar að Íranir vildu virkilega gera einhvers konar friðarsamning. Verði ÚTRÝMT samstundis Nú síðdegis tók áðurnefnd herkví gildi en Íranir hafa hingað til stjórnað umferð um Hormússund, þar sem um tuttugu prósent af allri olíu og gasi í heiminum er siglt í gegn. Herkví Bandaríkjamanna hefur ekki áhrif á flutninga hlutlausra aðila um Hormússund svo lengi sem þeir séu ekki á leiðinni til eða frá Íran. Trump sagði að bandaríski sjóherinn myndi sprengja alla Írani í loft upp sem ráðast á herinn. „Viðvörun: ef eitthvað af þessum skipum kemur nálægt HERKVÍNNI okkar verður þeim ÚTRÝMT samstundis,“ skrifaði hann á Truth Social, samfélagsmiðil í hans eigu. Hann skrifaði aðra færslu og sagði að 34 skip hefðu siglt í gegnum sundið eftir að herkvíin var komin á. Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu en segist ekki geta staðfest færsluna. Hins vegar getur miðillinn staðfest að að minnsta kosti eitt skip hefur nú komist í gegn eftir að bandaríski sjóherinn stöðvaði Írani. Vert er að taka fram að Arsenio Dominguez, aðalritari Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) að samkvæmt alþjóðlögum hafi ekkert land réttinn til þess að loka fyrir umferð um Hormússund.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira