Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. apríl 2026 17:27 Kjartan og Marta fengu tillögu sína samþykkta. Vísir/Bjarni Sjö borgarfulltrúar sátu hjá þegar samþykkt var í borgarstjórn í dag að óháðu borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir myndu fá að verða áheyrnarfulltrúar í borgarráði, umhverfis- og skipulagsráði og forsætisnefnd borgarinnnar. Laun Kjartans hækka því um 868 þúsund og laun Mörtu um 578 þúsund.
Kjartan og Marta voru kosin í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn en sögðu sig nýverið frá flokknum eftir að ekki var óskað eftir frekari kröftum þeirra í forystu borgarstjórnarflokksins. Þau tilkynntu síðar meir að þau væru gengin til liðs við Miðflokkinn. Þann 9. mars tilkynntu þau að þau hefði stofnað borgarstjórnarflokk óháðra og myndu starfa innan hans út kjörtímabilið, ásamt varaborgarfulltrúanum Helga Áss Grétarssyni sem einnig var kjörinn fyrir Sjálfstæðisflokk. Voru þau síðar fjarlægð úr nefndum og ráðum borgarinnar að tillögu Sjálfstæðisflokksins og skertust kjör þeirra verulega við það. Tillagan var samþykkt á borgarstjórnarfundi í dag með níu atkvæðum gegn sjö á meðan sjö sátu hjá líkt og áður kom fram. Dóra Björt Guðjónsdóttir í Samfylkingu, Einar Þorsteinsson og Árelía Eydís Guðmundsdóttur í Framsókn, Sanna Magdalena Mörtudóttur í Sósíalistaflokki studdu tillöguna auk Kjartans og Helga Áss. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Vinstri grænna og borgarfulltrúi Sósíalista Andrea Helgadóttir greiddu atkvæði gegn tillögunni. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Sabine Leskopf, Sara Björg Sigurðardóttir, Birkir Ingibjartsson og Ellen Calmon og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Aðalsteinn Haukur Sverrisson, sátu hjá við afgreiðslu málsins. Fyrir samþykkt tillögunar námu laun þeirra Kjartans og Mörtu hálfum borgarstjórnarlaunum, 578 þúsund krónum, auk fast starfskostnaðar upp á 84 þúsund krónur eða alls 662 þúsund krónum. Með samþykkt tillögunnar munu þau Kjartan og Marta bæði njóta fullra borgarfulltrúalauna auk kostnaðar, alls 1,25 milljóna króna. Í ofanálag fær Kjartan 25 prósenta álag sem áheyrnarfulltrúi í borgarráði og fengi því alls 1,53 milljónir króna. Þannig hækka laun Mörtu um 578 þúsund og Kjartans um 868 þúsund.
Reykjavík Borgarstjórn Miðflokkurinn Kjaramál Rekstur hins opinbera Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira