Yfirfull fangelsi – og enginn skilur neitt í neinu Vilhelm Jónsson skrifar 19. apríl 2026 14:00 Það hlýtur að vera komið nóg af innantómum afsökunum hjá hinu opinbera um hvar vandinn liggur. Aftur og aftur heyrist sama krafan: meira fjármagn í kerfi sem virðist verða sífellt ábyrgðarlausara og ráðaleysið alsráðandi. Nú síðast ryðjast fangaverðir fram á sjónarsviðið og kalla eftir betra vinnuumhverfi. Þeir ættu að íhuga þær aðstæður sem sjúklingar og starfsfólk á Landspítalanum eru að takast á við. En vandinn er ekki nýr. Og hann er ekki leystur með meiri peningum. Réttarkerfið er í molum – ekki vegna skorts á fjármagni, heldur vegna þess að sýn stjórnvalda er í litlum sem engum tengslum við raunveruleikann. Það sést best á einu einföldu mynstri:Í hvert sinn sem nýtt fangelsi er opnað er öðrum rýmum lokað. Og síðan er spurt, með grafalvarlegum svip:Hvers vegna eru fangelsin yfirfull? Árið 1995 var endurbyggt fangelsi tekið í notkun að Litla-Hrauni sem átti að breyta öllu. Á sama tíma var Síðumúlafangelsi lokað og rifið skömmu síðar – þrátt fyrir að hafa nýlega verið endurbætt fyrir tugi milljóna króna. Undirritaður tók sjálfur þátt í þessum framkvæmdum. Á meðan fangelsið var í fullum rekstri var sagað upp gólf og veggir brotnir til að endurnýja lagnir. Umfangsmiklar og kostnaðarsamar framkvæmdir fóru fram við erfiðar og nánast óviðunandi aðstæður. Kærur gengu fram og til baka vegna hávaða og óþæginda og reynt var að halda friðnum með því að múta föngum með pizzum, myndböndum og öðrum bráðabirgðalausnum til dægrastyttingar. Allt þetta – til einskis. Ári síðar var fangelsið rifið. Þrátt fyrir að dýrustu mögulegu lausnir hefðu verið valdar, eins og húsið ætti að „standa um ókomna tíð“. Þegar ríkisvaldið á í hlut virðist kostnaður ekki skipta máli. Því flóknara sem verkefnið er gert, því meira geta aðilar skammtað sér með digrum reikningum. Þetta er ekki undantekning.Þetta er kerfið. Kvennafangelsi í Kópavogi, Byrta, Skólavörðustígur, Akureyri – listinn er langur. Mynstrið er alltaf það sama: byggja, loka, endurtaka. Hólmsheiðarfangelsi er nýjasta dæmið. Kostnaður tvöfaldaðist – án þess að nokkur skýr tilgangur fylgdi með. Það virðist hafa gleymst að gera ráð fyrir að fangar þyrftu að hafa eitthvað fyrir stafni annað en að bryðja lyf. Takmarkaður greinarmunur er gerður á milli kaldrifjaðra afbrotamanna og þeirra sem eiga minniháttar brot að baki. Þetta er ekki stefna.Þetta er skeytingarleysi. Ekki fyrir svo alls löngu síðan fengu svokallaðir „útrásarkrimmar“, fyrir um einum og hálfum áratug, að gangast undir sýndarmennsku-afplánun. Þeir gerðu sér að góðu, með litlum tilkostnaði fyrir sjálfa sig, opið gæslurými að Kvíabryggju og komu með ný sófasett, rúm og flatskjái – eins og um flutninga í þægilegra húsnæði væri að ræða. Refsingin fór fram á methraða. Kvíabryggja er eitt besta dæmið um fangelsi sem raunverulega getur skilað árangri. Þar eru fangar með tengingu við náttúruna og hafa eitthvað fyrir stafni, til dæmis beitningu. Einföld verkefni – en raunveruleg. En slík úrræði krefjast ábyrgðar. Og þar virðist áhuginn dvína. Fyrir „háu herrana“ gilti annað. Engar kröfur. Engin ábyrgð. Kerfið lagði sig einfaldlega fram um að trufla þá sem minnst. Á meðan heldur sama kerfi áfram að tala af mikilli alvöru um „yfirfull fangelsi“ og „skort á úrræðum“. Sama kerfi og ræður ekki við grunnatriði – forgangsröðun, skipulag eða ábyrgð – telur lausnina vera meiri peninga og fleiri byggingar. Það er ekki bara rangt.Það er vandræðalegt. Kerfið krefst aga af föngum – en sýnir sjálft engan.Kerfið talar um ábyrgð – en ber hana ekki.Kerfið kallar eftir úrbótum – en lærir aldrei neitt. Kannski er vandamálið einfaldara en haldið er fram. Ekki fangarnir.Ekki rýmin.Heldur þeir sem halda að þeir séu að stjórna þessu. Þungir og kostnaðarsamir dómar eru felldir eftir langvarandi réttarhöld – og síðan fara fangelsismálayfirvöld með fullnustu þeirra af léttúð og eigin geðþótta. Fangelsið á Hólmsheiði er lifandi dæmi um þetta. Byggingarkostnaður tvöfaldaðist án þess að efnahagslegar aðstæður skýrðu það. Ríkissjóður er notaður eins og féþúfa, þar sem ábyrgðarlausir embættismenn virðast hvorki sýna skynsemi né eðlilega stjórnsýslu. Og á meðan er rammgirt fangelsi notað til að hýsa blásaklaust flóttafólk og smákrimma – eins og um hættulega afbrotamenn sé að ræða. Það segir meira en flest annað um stöðuna. Að innkalla einstæða móður korter fyrir jól til að hefja afplánun í rammgerðu fangelsi á nýju ári fyrir umferðarlagabrot – og hafa síðan ekki pláss þegar á reyndi – er ekki bara klaufaskapur. Það er kerfisbilun. Meðan heilbrigðiskerfið blæðir er löngu tímabært að aðrar stofnanir fari að haga sér með ábyrgari hætti. Spurningin er ekki hvort kerfið þurfi meira fjármagn.Spurningin er hvort það sé yfirhöfuð í höndum fólks sem kann að fara með það. Höfundur er athafnamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhelm Jónsson Fangelsismál Mest lesið Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir Skoðun Má segja að börn á Íslandi hafi það gott? Hjördís Eva Þórðardóttir Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Á allt Ísland heima á höfuðborgarsvæðinu? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Reykjanesundrið - næsti kafli Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekkert að spila um Sigurður Hallur Jónsson skrifar Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir skrifar Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Má segja að börn á Íslandi hafi það gott? Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35 borgar ekki reikningana Elliði Vignisson skrifar Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Von er ekki aðgerð Hermína Gunnþórsdóttir,Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við erum náttúran – náttúran er við Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Byggjum upp netöryggisgetu og fögnum áfangasigrum Hrannar Ásgrímsson skrifar Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar Skoðun Kostir og gallar Schengen Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar
Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun