Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Samúel Karl Ólason skrifar 21. apríl 2026 18:06 Bandarískir sjóliðar á ferð nærri Íran. Bandaríkjamenn hafa sett Íran í herkví og reyna að stöðva öll skip sem siglt er þaðan og reynt er að sigla þangað. Sjóher Bandaríkjanna Ráðamenn í Íran hafa ekki enn ákveðið hvort þeir muni senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Tveggja vikna vopnahlé í átökum Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran fellur úr gildi á morgun og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagst tilbúinn til að hefja árásir á Íran að nýju.
Einnig er enn óljóst hvort JD Vance, varaforseti, muni fara til Islamabad í Pakistan eða ekki. Til stóð að hann færi í dag en ferð hans var frestað. Fjölmiðlar vestanhafs segja að Vance geti lagt af stað með stuttum fyrirvara, berist jákvæð skilaboð frá Tehran. Steve Witkoff, vinur Trumps og sérstakur erindreki hans, og Jared Kushner, tengdasonur forsetans, eiga einnig að koma að viðræðunum, ef af þeim verður. Þeir eru enn í Bandaríkjunum, eins og Vance. Embættismenn í Pakistan eru sagðir vera að ræða við bæði Írani og Bandaríkjamenn um það að halda viðræður. Talsmaður utanríkisráðuneytis Íran sagði í viðtali við ríkismiðil þar í landi í dag að þar á bæ væru menn ósáttir við misvísandi skilaboð frá Bandaríkjamönnum og hegðun þeirra. Skilaboðin væru oft andstæð öðrum skilaboðum og hegðun Bandaríkjamanna væri þar að auki alfarið óásættanleg. Esmail Baghaei, talsmaðurinn, vísaði einnig til árása Bandaríkjamanna á flutningaskip tengd Íran og herkví Bandaríkjamanna um ríkið og sagði þetta helstu ástæður þess að ekki væri búið að taka lokaákvörðun um viðræðurnar. Eftir að fréttin var birt sendi Seyed Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, út yfirlýsingu þar sem hann sagði að herkví Bandaríkjanna gagnvart Íran væri brot á vopnahléinu og stríðsyfirlýsing. Hann nefndi ekki viðræðurnar í Pakistan. Blockading Iranian ports is an act of war and thus a violation of the ceasefire. Striking a commercial vessel and taking its crew hostage is an even greater violation.Iran knows how to neutralize restrictions, how to defend its interests, and how to resist bullying.— Seyed Abbas Araghchi (@araghchi) April 21, 2026 Bandarískir hermenn fóru í morgun um borð í olíuflutningaskip á Indlandshafi sem beitt hefur verið refsiaðgerðum. Þá stöðvuðu Bandaríkjamanna annað skip á dögunum með því að skjóta á það. Overnight, U.S. forces conducted a right-of-visit, maritime interdiction and boarding of the stateless sanctioned M/T Tifani without incident in the INDOPACOM area of responsibility.⁰⁰As we have made clear, we will pursue global maritime enforcement efforts to disrupt illicit… pic.twitter.com/EGwDe3dBI3— Department of War 🇺🇸 (@DeptofWar) April 21, 2026 Trump er sagður hafa lítinn áhuga á því að framlengja vopnahléið, eigi engar viðræður sér stað. Þá hefur hann einnig sagt að hann hafi nægan tíma og finni sig ekki knúinn til að reyna að binda enda á átökin eins fljótt og auðið er. Hann hafi meiri áhuga á því að binda enda á ógnina frá klerkastjórninni í Íran. Íranir halda Hormússundi enn lokuðu. Samkvæmt Wall Street Journal var í dag birt yfirlýsing á Telegramsíðu Mojtaba Khamenei, æðstaklerks Íra, þar sem hann hótaði dróna- og eldflaugaárásum gegn Bandaríkjamönnum og Ísraelum. Hann hefur ekki sést opinberlega síðan hann var gerður að æðstaklerki í kjölfar þess að faðir hans og forveri og aðrir fjölskyldumeðlimir voru felldir í loftárás við upphaf átakanna. CNN sagði frá því í dag að Bandaríkjamenn hafa gengið verulega á vopnabúr sín í fjölmörgum árásum þeirra á Íran á undanförnum vikum og vegna varna gegn árásum frá Íran. Þá þykir ólíklegt að hægt verði að fylla á vopnabúrin aftur til skamms tíma. Á undanförnum vikum eru Bandaríkjamenn sagðir hafa notað að minnsta kosti helming allra THAAD-flugskeyta, sem notuð eru til að skjóta niður stýriflaugar, og nærri því helming allra Patriot-flugskeyti þeirra. Þau hafa mikið verið notuð til að skjóta niður ódýra dróna frá Íran, þó hvert flugskeyti kosti margar milljónir dala og dróninn nokkra tugi þúsunda. Sjá einnig: Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Þeir hafa einnig gengið verulega á forða þeirra á eldflaugum sem notaðar eru til árás og sprengjum sem varpað er með herþotum. Fyrr á þessu ári gerði varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna samning við hergagnafyrirtæki um að auka framleiðslu eldflauga og flugskeyta en ólíklegt er að sú vinna muni skila árangri fyrr en í fyrsta lagi eftir þrjú til fimm ár.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Pakistan Donald Trump Hernaður Tengdar fréttir Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Ráðamenn í Íran virðast ekki enn hafa tekið ákvörðun um það hvort þeir senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Undirbúningur viðræðna er sagður standa yfir í Islamabad en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sem mun sækja viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda þar í landi, ku ekki vera lagður af stað. 21. apríl 2026 07:21 Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Ríkismiðlar í Íran greindu frá því í gærkvöldi að stjórnvöld í Tehran hefðu engar áætlanir uppi um að taka þátt í viðræðum við fulltrúa Bandaríkjanna í Pakistan. Nokkrum klukkustundum áður hafði Donald Trump lýst því yfir að sendinefnd landsins myndi ferðast til Islamabad í dag. 20. apríl 2026 06:47 Barist á hafi úti Íranir gerðu í kvöld drónaárás á bandarísk herskip, samkvæmt írönskum ríkismiðlum. 19. apríl 2026 22:40 „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Bandaríkjaforseti sakar Írani um brot á vopnahléssamkomulaginu eftir að Íranir skutu flutningaskip skömmu eftir að Hormússundi var lokað í gær. Fulltrúar Bandaríkjanna eru á leið til Pakistan til að halda áfram friðarsamkomulagi en vopnahléið rennur út eftir örfáa daga. 19. apríl 2026 14:29 Mest lesið Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Erlent Harður árekstur á Reykjanesbraut Innlent Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Erlent Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Innlent Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Innlent Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Innlent Fleiri fréttir Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest Taívanar líta til Úkraínu og Íran Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Trump verður að leita samþykkis þingsins fyrir aðgerðum í Íran Samþykkja að koma á vopnahléi Vilja banna rússneska túrista Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Sjá meira
Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Ráðamenn í Íran virðast ekki enn hafa tekið ákvörðun um það hvort þeir senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Undirbúningur viðræðna er sagður standa yfir í Islamabad en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sem mun sækja viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda þar í landi, ku ekki vera lagður af stað. 21. apríl 2026 07:21
Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Ríkismiðlar í Íran greindu frá því í gærkvöldi að stjórnvöld í Tehran hefðu engar áætlanir uppi um að taka þátt í viðræðum við fulltrúa Bandaríkjanna í Pakistan. Nokkrum klukkustundum áður hafði Donald Trump lýst því yfir að sendinefnd landsins myndi ferðast til Islamabad í dag. 20. apríl 2026 06:47
Barist á hafi úti Íranir gerðu í kvöld drónaárás á bandarísk herskip, samkvæmt írönskum ríkismiðlum. 19. apríl 2026 22:40
„Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Bandaríkjaforseti sakar Írani um brot á vopnahléssamkomulaginu eftir að Íranir skutu flutningaskip skömmu eftir að Hormússundi var lokað í gær. Fulltrúar Bandaríkjanna eru á leið til Pakistan til að halda áfram friðarsamkomulagi en vopnahléið rennur út eftir örfáa daga. 19. apríl 2026 14:29