Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2026 20:19 Nærri því tuttugu þúsund sjómenn eru taldir sitja fastir í skipum á Persaflóa. AP Hermenn úr byltingarverði Íran tóku í dag yfir stjórn á tveimur skipum á Hormússundi og fylgdu þeim til hafnar í Íran. Þá varð þriðja skipið fyrir árás en Írönum tókst ekki að taka stjórn á því. Bandaríkjamenn meina enn öllum skipum að sigla til og frá Íran og Hormússundi er enn lokað.
Áhafnir skipanna tveggja, sem heita MSC Francesca og Epaminondas, hafa setið fastar á Persaflóa frá því átökin hófust. Hermenn á hraðbátum sem búnir eru vopnum eru sagðir hafa tekið stjórn á skipunum. Sameinuðu þjóðirnar kölluðu í dag eftir því að áhafnarmeðlimum skipanna yrði sleppt úr haldi. Íranir birtu í kvöld myndband af áhlaupunum um borð í skipin. The IRGC has published footage of its forces seizing two cargo ships, the Panama-flagged MSC Francesca and the Liberian-flagged Epaminondas, in the Strait of Hormuz today. https://t.co/X2veK83UK7 pic.twitter.com/xfwF6lJYK3— Shayan Sardarizadeh (@Shayan86) April 22, 2026 Samkvæmt BBC er talið að nærri því tuttugu þúsund sjómenn sitji fastir á Persaflóa vegna lokunar Hormússunds. Vopnahléi milli Bandaríkjanna og Ísrael annars vegar og Íran hins vegar átti að ljúka í dag en Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, framlengdi það um ótilgreindan tíma í gær. Hann sagði að Bandaríkjamenn myndu áfram halda Íran í herkví. Sjá einnig: Framlengir vopnahléið og herkvína Karoline Leavitt, talskona Trumps, sagði í kvöld að Trump liti ekki á árásir Írana á skipin í dag sem brot á vopnahléinu, þar sem þau tilheyrðu hvorki bandarískum eða ísraelskum fyrirtækjum. Francesca er í eigu fyrirtækis frá Sviss og Epaminondas er í eigu grísks fyrirtækis. Leavitt sagði einnig að Trump hefði framlengt vopnahléið til að gefa ráðamönnum í Íran tíma til að gyrða sig í brók. Hún sagði að „ruglið“ sem Íranir segðu opinberlega væri ekki sambærilegt því sem þeir segðu í einrúmi. Leavitt sagðist ítrekað hafa bent blaðamönnum á það og þeir ættu að taka mark á henni. Q: Iranian state media is openly mocking President Trump. What's your response?LEAVITT: What they say publicly is much different than what they concede privately. You should take our word for it. pic.twitter.com/l5FEagPxWA— Aaron Rupar (@atrupar) April 22, 2026 Þá ítrekaði hún að markmið Bandaríkjamanna væri að koma í veg fyrir að klerkastjórnin eignaðist kjarnorkuvopn. Leavitt sagði að Íranir þyrftu að láta af hendi það úran sem þeir hefðu auðgað. Vitað er til þess að þeir áttu fyrir nokkrum árum tæplega hálft tonn af tiltölulega mikið auðguðu úrani sem gæti verið notað til framleiðslu kjarnorkuvopna. Bandaríkjamenn telja úranið grafið undir braki eftir loftárásir á rannsóknarstöðvar í Íran síðasta sumar. Yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum gaf það út í dag að 29 skipum sem reynt hefði verið að sigla frá Íran hefði verið snúið aftur til hafnar frá því herkví var sett á Íran. Það væri ekki rétt að nokkrum skipum hafi verið siglt í gegnum raðir Bandaríkjamanna, eins og haldið hafi verið fram í fjölmiðlum. Þrjú skip eru nefnd sérstaklega og mun tveimur þeirra hafa verið snúið aftur til hafnar en það þriðja sótt til Indlandshafs og ku það nú vera í fylgd bandarísks tundurspillis. Í yfirlýsingu segir að bandarískir hermenn starfi um allan heim. U.S. forces have directed 29 vessels to turn around or return to port as part of the U.S. blockade against Iran. Over past 24 hours, media reports have alleged that several commercial ships evaded the blockade, citing M/V Hero II, M/V Hedy, and M/V Dorena as examples. These… pic.twitter.com/SKelkSOr77— U.S. Central Command (@CENTCOM) April 22, 2026 Viðræður milli Bandaríkjamanna og Írana áttu að hefjast í Pakistan í dag en þeim hefur verið frestað. Óljóst er hvort af þeim verði en ráðamenn í Islamabad hafa reynt að hafa milligöngu milli fylkinga.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Hernaður Ísrael Skipaflutningar Tengdar fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í dag fjárlagatillögu ríkisstjórnar Donalds Trump varðandi varnarmál og vill ríkisstjórnin að þingið verji 1,5 billjón dala til varnarmála á næsta ári. Það myndi þýða um 42 prósenta aukningu á milli ára. Ekki er talinn með aukafjárveitingarbeiðni vegna stríðsins gegn Íran, sem gæti hljóðað upp á tvö hundruð milljarða dala. 21. apríl 2026 23:03 Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ráðamenn í Íran hafa ekki enn ákveðið hvort þeir muni senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Tveggja vikna vopnahlé í átökum Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran fellur úr gildi á morgun og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagst tilbúinn til að hefja árásir á Íran að nýju. 21. apríl 2026 18:06 Barist á hafi úti Íranir gerðu í kvöld drónaárás á bandarísk herskip, samkvæmt írönskum ríkismiðlum. 19. apríl 2026 22:40 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira
Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í dag fjárlagatillögu ríkisstjórnar Donalds Trump varðandi varnarmál og vill ríkisstjórnin að þingið verji 1,5 billjón dala til varnarmála á næsta ári. Það myndi þýða um 42 prósenta aukningu á milli ára. Ekki er talinn með aukafjárveitingarbeiðni vegna stríðsins gegn Íran, sem gæti hljóðað upp á tvö hundruð milljarða dala. 21. apríl 2026 23:03
Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ráðamenn í Íran hafa ekki enn ákveðið hvort þeir muni senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Tveggja vikna vopnahlé í átökum Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran fellur úr gildi á morgun og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagst tilbúinn til að hefja árásir á Íran að nýju. 21. apríl 2026 18:06
Barist á hafi úti Íranir gerðu í kvöld drónaárás á bandarísk herskip, samkvæmt írönskum ríkismiðlum. 19. apríl 2026 22:40