Engin fyrirtæki engin þjónusta Guðný María Jóhannsdóttir skrifar 23. apríl 2026 08:17 Grunnrekstur borgarinnar er fjármagnaður af útsvari og fasteignagjöldum borgarbúa. Launatekjur fólks standa því að stórum hluta undir rekstrinum, og því ekki ofsögum sagt að atvinnurekendur séu grunnstoð velferðar í Reykjavík. Borgaryfirvöld virðast þó ekki meðvituð um það. Fjöldi fyrirtækja hafa undanfarin ár ákveðið að flytja starfsemi sína úr Reykjavík og yfir í nágrannasveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Ástæðan er sögð vera háar álögur, lítið framboð af atvinnulóðum, skortur á samráði, hringlandaháttur í samskiptum og takmarkanir á fjölda bílastæða. Það er löngu kominn tími á að taka upp nýja nálgun gagnvart atvinnulífinu í Reykjavík, hlusta á þeirra þarfir og tryggja að öflug fyrirtæki hafi möguleika á að vaxa og dafna í borginni. Öflug borg þarf öflug fyrirtæki Stefna núverandi meirihluta hefur því miður orðið þess valdandi að öflug fyrirtæki og opinberar stofnanir hafa ákveðið að yfirgefa Reykjavík og byggja upp starfsemi sína í nágrannasveitarfélögunum. Icelandair, Valitor, Orkuhúsið, Marel, Hafrannsóknastofnun, Sýslumannsembættið, Malbikunarstöðin, Tækniskólinn og Origo. Allt eru þetta fyrirtæki sem hafa ákveðið að flytja starfsemi sína frá Reykjavík síðastliðin ár og síðast í dag bárust fréttir af því að Hekla er að flytja sína starfsemi í Garðabæ eftir að hafa verið með starfsemi í Reykjavík í 93 ár. Fækkun atvinnulóða í Reykjavík hefur leitt til þess að iðnaðarfyrirtæki hafa mörg hver farið á Vellina í Hafnarfirði, í Mosfellsbæ eða til Keflavíkur. Reykjavík er að verða undir í samkeppni um fyrirtækin. Meirihlutinn reyndi í örvæntingu sinni að koma græna gímaldinu fyrir í Breiðholti og ég held að við séum öll sammála um að það mál er eitt stórt klúður. Á Höfðanum eru atvinnurekendur í baráttu við borgina sem ætlar að reka þá af lóðum sínum bótalaust. Er það svona sem við viljum þjónusta fyrirtækin í Reykjavík? Á Suðurlandsbraut eru fyrirhugaðar breytingar sem munu að öllu óbreyttu hafa gríðarleg áhrif á þau fyrirtæki sem þar starfa. Mönnum er tíðrætt um víðtækt samráð en það er ekki í samræmi við það sem forsvarsmenn fyrirtækjanna hafa upplifað. Fermetrafjöldi fyrirtækjanna á Suðurlandsbraut er á við eina Smáralind, og umfang rekstrar eftir því. Samt mæta eigendur þessara fasteigna tómlæti af hálfu borgarinnar. Hugsum í lausnum ekki hindrunum Við verðum að bæta samvinnu og samtal við atvinnulífið. Ekki bara hvað varðar meiriháttar skipulagsbreytingar, heldur einnig það sem snýr að daglegum rekstri, hvort sem um ræðir eftirlit eða leyfisumsóknir. Hlutverk borgarinnar er að þjónusta fyrirtækin í borginni - ekki standa í vegi fyrir þeim. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að auðvelda fyrirtækjum að byggja framtíð sína í Reykjavík og bjóða ný fyrirtæki velkomin. Aðeins þannig tryggjum við samkeppnishæfni Reykjavíkur til framtíðar og góða þjónustu við borgarbúa. Höfundur skipar 6. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Guðný María Jóhannsdóttir Mest lesið Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar