Inngilding og þátttaka fatlaðra barna Snæfríður Þóra Egilson skrifar 23. apríl 2026 12:03 Þátttaka er lykilhugtak þegar rýnt er í reynslu fatlaðs fólks enda vísar fötlun til þess þegar fólk með skerðingar nær ekki að taka þátt á ólíkum sviðum samfélagsins vegna ýmiss konar hindrana. Þetta kemur skýrt fram í formálsorðum Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) þar sem segir: „… hugtakið fötlun þróast og verður til í samspili fólks með skerðingar og umhverfis og viðhorfa sem hindra fulla og árangursríka samfélagslega þátttöku til jafns við aðra.“ Þannig er sjónum beint að efnislegum, efnahagslegum, menningar- og stofnanabundnum hindrunum, sem skapa og viðhalda fötlun og torvelda fötluðu fólki að lifa góðu lífi. Hugtakið „inngilding“ er óðum að ryðja sér til rúms sem þýðing á enska hugtakinu „inclusion“ en áður var orðalagið „án aðgreiningar“ yfirleitt notað í íslensku samhengi. Hugtakið vísar til samfélags sem tekur mið af margbreytileikanum og kemur til móts við hann, þannig að tækifæri og þátttaka séu í boði fyrir fjölbreytilegan hóp fólks og á forsendum hvers og eins. Inngilding gerir þar af leiðandi kröfu um að skipulag og samfélagsgerð hafi fjölbreytileika að leiðarljósi og taki mið af honum í stefnumörkun og framkvæmd. Þann 12. nóvember 2025 var SRFF loks lögfestur hér á landi. Þriðja grein samningsins fjallar um meginreglur hans, m.a. virðingu fyrir eðlislægri reisn og sjálfræði einstaklinga, bann við mismunun, fulla og árangursríka þátttöku í samfélaginu án aðgreiningar, viðurkenningu á fötluðu fólki sem hluta af mannlegum margbreytileika, jöfn tækifæri og aðgengi. Með fullgildingu og lögfestingu SRFF skuldbatt íslenska ríkið sig til að tryggja rétt fatlaðra barna til menntunar án aðgreiningar. Gagnrýni mennta- og barnamálaráðherra á skóla án aðgreiningar og þar með inngildingu í skólastarfi vekur því athygli og í henni felst ákveðin þversögn. Vissulega hefur innleiðing inngildingar reynst áskorun en færa má rök fyrir því að það tengist kerfislægum vanda, svo sem skorti á starfsfólki, þekkingu og fjármagni og pólitískum vilja. Mikilvægt er að tryggja aðgengi að nauðsynlegri þekkingu og önnur úrræði til að koma til móts við flóknar og fjölbreyttar þarfir nemenda, í takt við alþjóðlegar skuldbindingar og yfirlýsta stefnu. Jafnframt er vert að rýna í menningu og viðhorf, t.d. hvernig menntun og skólastarfi hefur hugsanlega verið þröngvað inn í ákveðið mót þar sem skilvirkni og mælanlegur árangur eru í brennidepli. Í slíku umhverfi er lítið rými fyrir margbreytileikann og hætt við að litið sé á fatlaða nemendur sem vandamál og hindrun en ekki fullgilda þátttakendur. Brýnt er að standa þannig að málum að hægt sé að fylgja inngildingarstefnunni eftir í reynd. Til að svo megi verða þarf stuðning við fagfólk, skólastarf og skýran pólitískan vilja til að forgangsraða mannréttindum og jafnrétti til náms. Höfundur er prófessor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Börn og uppeldi Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar