Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. maí 2026 07:30 Rannsókn Washington Post virðist benda til þess að árásir Írana á bandarísk skotmörk í Mið-Austurlöndum hafi valdið mun meiri skaða en stjórnvöld hafa viljað kannast við. Getty/Sjóher Bandaríkjanna Íranir hafa valdið mun meiri skaða á innviðum Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum en Bandaríkjastjórn hefur viljað kannast við. Þetta eru niðurstöður Washington Post, sem byggja á rannsóknum á gervihnattamyndum.
Miðillinn segir loftárásir Írana hafa valdið skemmdum á að minnsta kosti 228 byggingum eða búnaði, þar á meðal herbúðum, flugskýlum, eldsneytisgeymslum, flugvélum og ýmsum samskipta- og varnarinnviðum. Að því er fram kemur í umfjöllun Washington Post hefur reynst erfitt að nálgast gervihnattamyndir af Mið-Austurlöndum eftir að átök brutust út, þar sem Bandaríkjastjórn fór þess á leit við fyrirtæki í bransanum að þau birtu ekki myndir á meðan aðgerðir stæðu yfir. Miðillinn byggir rannsóknir sínar því á myndum sem birtar hafa verið í Íran. Samkvæmt greiningu Washington Post hafa að minnsta kosti 217 byggingar og ellefu vélar á borð við flugvélar verið skemmdar eða eyðilagðar, á fimmtán stöðum. Sérfræðingar sem rætt var við segja þetta til marks um að Bandaríkjamenn hafi vanmetið getu Írana til að gera hnitmiðaðar árásir. Þeir vilja þó ekki meina að skaðinn sé þannig að hann hafi takmarkað getu Bandaríkjanna til að halda úti aðgerðum. Hermálayfirvöld vestanhafs hafa ekki viljað tjá sig um niðurstöður Washington Post. Sjö bandarískir hermenn hafa látist og yfir 400 særst frá því að Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran þann 28. febrúar síðastliðinn. Hér má finna ítarlega umfjöllun um málið.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira