Af hverju Viðreisn 16. maí? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 8. maí 2026 09:10 Skýr sýn, ábyrg fjármál og forgangsröðun Hagkvæmur rekstur sveitarfélaga hefur áhrif á lífsgæði okkar. Þar á þjónustan að vera traust, skilvirk og byggð á raunverulegum þörfum fólks. Til að svo megi verða þarf skýra sýn, aga í rekstri, íbúalýðræði og hugrekkis til að forgangsraða. Viðreisn leggur áherslu á að ákvarðanir byggi á gögnum, gagnsæi og faglegri nálgun. Aldrei á sérhagsmunum. Við viljum stjórnsýslu sem er hagkvæm og skilvirk, sveigjanleg og í stöðugri þróun í takt við þarfir íbúa. Með skýrum verkferlum og nýtingu nýrra lausna má auka hagkvæmni og bæta þjónustu án þess að auka álögur á íbúa. Markmiðið er að nýta fjármuni þannig að þeir skili sem mestu lífsgæðum til íbúa hvers sveitarfélags. Lífsgæði á öllum æviskeiðum Ætlunarverkið er að þjóna fólki á því æviskeiði sem það er á. Við viljum að allir hafi viðeigandi þjónustu og tækifæri frá fyrstu árum til efri ára. Menntakerfin virki með góðum aðbúnaði, gæða í kennslunni og leitað sé hagkvæmni m.a. með virkara samstarfi milli skóla, fjölskyldna og atvinnulífs þar sem það á við. Samfélag þar sem allir fá að njóta sín Viðreisn vill samfélag þar sem allt litróf mannlífsins fær að njóta sín. Það er pláss fyrir okkur öll. Við leggjum áherslu á að skapa menningu þar sem við mætum hvert öðru með velvild og virðingu. Þar sem fólk upplifir að það skipti máli og hafi tækifæri til að taka þátt. Öll eigum við að hafa tækifæri til að njóta lífsins sem allra best. Með því að opna samfélagið og skapa fleiri snertifleti milli fólks minnkum við einmannaleika. Við byggjum upp umhverfi þar sem fólk er óhrætt við að stíga fram, taka þátt og vera það sjálft. Íþróttir, tómstundir og þátttaka Aðgengi að íþróttum og tómstundum er lykilatriði í lífsgæðum eldri sem yngri. Við viljum tryggja að eldri borgarar og ungmenni hafi raunhæfan kost á að taka þátt, óháð efnahag eða aðstæðum. Það krefst markvissrar uppbyggingar innviða, stuðnings við íþróttafélög og áframhaldandi styrkingar á frístundakerfinu. Samhliða því þarf að hlúa að félagsstarfi og skapa vettvang þar sem allir geta fundið sig, tekið þátt og þroskast. Viðreisn vill þróa opið samfélag þar sem skapaðar eru aðstæður þar sem við getum notið fjölbreyttrar menningar. Skipulag sem styður daglegt líf Gott skipulag hefur bein áhrif á lífsgæði fólks. Við viljum fjölbreytta íbúðakosti sem mæta ólíkum þörfum, þar sem hverfin eru lifandi og samgöngur virka. Græn svæði, snyrtilegt umhverfi og það ríki langtíma hugsun í uppbyggingu innviða og forgangsröðun verkefna. Með faglegri greiningu og skýrri framtíðarsýn má tryggja að samfélagið þróist á sjálfbæran og íbúavænan hátt. Sterkt atvinnulíf og ný tækifæri Blómlegt samfélag byggir á öflugu atvinnulífi. Viðreisn vill styðja við fyrirtæki í heimabyggð, efla samvinnu og skapa jarðveg fyrir þróttmikla nýsköpun. Með því að nýta mannauðinn, efla vilja og sjálfstraust innan sveitarfélags verða til ný tækifæri fyrir nýsköpun og öflugra atvinnulíf. Lýðræði sem virkar í reynd Lýðræði á að vera lifandi afl. Við viljum efla samráð við íbúa og tryggja að ákvarðanir séu teknar með viðeigandi hagsmunaaðilum. Þegar stjórnsýslan er gagnsæ og opin eykst traust. Þegar íbúar fá raunverulegt tækifæri til þátttöku verður verkefnum forgangsraðað í samræmi við þarfir fólksins. Til að tryggja að vel sé farið með fjármuni beinist þjónustan alltaf að því að auka lífsgæði almennings, ekki sérhagsmuna. Af hverju á að gefa Viðreisn tækifæri 16. maí? Kosningarnar 16. maí eru tækifæri til að velja skýra stefnu, ábyrg fjármál, forgangsröðun verkefna og samfélag þar sem stuðlað er markvisst að því að allir fá að njóta sín. Gefum Viðreisn tækifæri 16. maí, ef þú vilt styrkja íbúðalýðræði, fagmennsku og auka lífsgæði í sveitarfélaginu þínu. Eflum þjónustu í takt við óskir íbúa og sköpum enn betri tækifæri fyrir alla til að njóta lífsins enn betur. Höfundur er með MS í stjórnun og stefnumótun - stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson Skoðun Lítil skítseiði Hrafn Jónsson Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir skrifar Skoðun Lítil skítseiði Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Um hvað snýst þetta allt saman? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Styðjum betur við börn í Kópavogi Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn 16. maí? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Við stýrum hraða í landi Blikastaða Hilmar Gunnarsson skrifar Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkur sveitarfélaga Irina S. Ogurtsova skrifar Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hjólakynslóð framtíðar verður til Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko skrifar Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar
Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar