Hjólakynslóð framtíðar verður til Sara Björg Sigurðardóttir skrifar 8. maí 2026 07:01 Það er gaman að hjóla, frelsandi tilfinning að setjast á hjólið – fá vindinn í fangið. Hægt að stýra hraðanum, fara hægar yfir þegar útsýnið er fagurt – eða stíga brekkuna og fá hjartað til að pumpa hraðar, taka heilsurækt á leiðinni til og frá vinnu. Hjólið færir fólki á öllum aldri gleði, líka börnum – það eflir sjálfstæði til að komast milli staða og ýtir um leið undir sjálfbærni í samgöngum, kynnir fyrir þeim heilbrigðan lífsstíl og opnar á fræðslu um menningu sem tengist hjólreiðum snemma á lífsleiðinni. Framtíðarsýn hjólaborgarinnar Reykjavík til 2040 Í nýsamþykktri hjólreiðaáætlun Reykjavíkur er markmið hjólaborgarinnar tekið til 2040 en stefnan er að Reykjavík verði orðin hjólaborg á heimsmælikvarða árið 2040. Að hjólreiðar verði einn lykil ferðamáti borgarbúa, sérstaklega fyrir styttri ferðir, enda hjólaleiða netið þéttara, samfelldara og vel tengt við almenningssamgöngur. Áætlunin gerir ráð fyrir að lágmarki sex milljarða króna fjárfestingu í hjólreiða innviðum, að hjólastígar lengist úr 46 km í 60 km, og markmið er sett um að 90% borgarbúa búi innan við 150 metrum frá hjólaleið árið 2030. Stefnt er að því að árið 2040 verði 15% allra ferða í borginni farnar á hjóli. Það er metnaðarfullt markmið. Tækifæri til að fjölga hjólandi ferðum í skólann Í ferðavenjukönnun sem borgin gerði síðasta haust kemur fram að hlutfall barna sem nýta fjölbreytta vistvæna ferðamáta á leið í skólann er 73%, 52% fótgangandi, 16% á hjóli eða hlaupahjóli. Til samanburðar fóru einungis 6% grunnskólanemenda í Reykjavík í skólann. Það er aukning um 10 prósentustig á fjórum árum. Þarna liggja tækifæri. Að búa til og hvetja til heilbrigðrar hjólamenningar hjá yngstu kynslóðunum er verðugt verkefni – að búa til nýja hjólakynslóð. Hjólakynslóð framtíðar verður til Í nýju hjólreiðastefnunni er fyrsta markmið að leggja sérstaka áherslu á að hvetja yngri kynslóðina til hjóla en til að þróa hjólamenningu þarf að kynna, fræða og hvetja börn og ungmenni um kosti þess að hjóla á mismunandi aldursstigum. Kannanir sýna að börn sem eiga foreldra sem hjóla eru líklegri til að hjóla sjálf. Könnun meðal skólabarna um ferðavenjur hefur sýnt að hlutdeild hjólreiða í ferðum grunnskólanemenda á yngsta og miðstigi er almennt há, en lækkar hratt á efsta stigi og þegar komið er í framhaldsskóla. Með því að aðstoða, fræða og styðja við börn og ungmenni til að hjóla verða hjólreiðar auðveldur og aðlaðandi kostur fyrir öll. Stolt hjólaborg - í borg fyrir fólk Önnur markmið í áætluninni snúa að enn frekari þéttingu hjólanetsins, sérstaklega austan Elliðaáa, fjölga stígum innan hverfa og tengja þau betur saman þvert á hverfi. Góðir innviðir fjölga þeim sem hjóla og fjölgun hjólandi eykur sýnileika og öryggi. Þannig bætum við hjólamenninguna og fleiri líta til hjólsins sem fyrsta valkosts. Aukin hreyfing íbúa bætir lýðheilsu. Aðgengi þeirra sem hjóla allan ársins kring er lykill að því að velja hjólið umfram aðra fararmáta. Þess vegna er mikilvægt er að tryggja gott aðgengi og þjónustu til að hjólastígarnir séu aðgengilegir allan ársins kring. Að lokum þarf að tryggja góð hjólastæði út um alla borg. Samfylking er stolt af framtíðarsýn fyrir hjólaborgina Reykjavík til 2040, stolt að því hafa leitt uppbyggingu 46 km hjólastíga víðsvegar um borgina síðustu kjörtímabil. Samfylkingin hafði hugrekki til að byggja upp hjólastíga og hvetja fólk til fjölbreyttari ferðamáta, þrátt fyrir harðar gagnrýnisraddir um að enginn myndi hjóla í veðravítinu Reykjavík. Annað hefur komið á daginn, hér er orðin til hjólreiðamenning og ég held að enginn myndi vilja snúa til baka. Við getum verið stolt – og höldum áfram á fullri ferð með því að setja X-við S 16. maí. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, skipar 10. sæti á lista flokksins í kosningunum 16. maí og kom að gerð hjólreiðaáætlunar til 2040 fyrir hjólaborgina Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sara Björg Sigurðardóttir Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson skrifar Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar