Samfylkingin vill byggja átta nýja leikskóla og bæta mönnun Skúli Helgason skrifar 12. maí 2026 08:31 Samfylkingin hefur leitt leikskólauppbygginguna í borginni undanfarin átta ár og vill halda því áfram af fullum krafti. Á okkar vakt hafa átta nýir leikskólar opnað um alla borg og við erum með skýra áætlun um að byggja átta til viðbótar næstu árin og bæta við 1500 nýjum leikskólarýmum.Samhliða því þarf að auka enn fjármagn í viðhald og endurbætur núverandi leikskóla og við viljum auka það fjármagn um 10 milljarða á næsta tímabili. Við erum líka eini flokkurinn sem talar skýrt um að vilja setja 2,4 milljarða á næstu 4 árum í að bæta mönnun og starfsumhverfið í leikskólunum okkar.Það eru miklar áskoranir í leikskólamálunum enda borgin að stækka hratt og þarfir ungbarnaforeldra miklar og metnaðarmál að mæta þeim eftir bestu getu. En það er lykilatriði að gott jafnvægi sé á milli þess annars vegar að bæta húsakost og innviði leikskólanna og hins vegar að hlúa vel að starfsfólkinu sem ber hið metnaðarfulla fagstarf og menntunarhlutverk leikskólanna á herðunum.Það hefur verið og verður áfram leiðarljós okkar jafnaðarmanna í þessum mikilvæga málaflokki. Loksins ríkisstjórn sem styður leikskólana Ríkisstjórnin undir forystu Samfylkingarinnar hefur takið af skarið með að vilja styðja við bakið á leikskólunum með lögfestingu leikskólastigsins og sömuleiðis lögfesta rétt barna til leikskólavistar. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðað að ríkið sé tilbúið að komið að fjármögnun leikskóla í samvinnu við sveitarfélögin og er það mikið fagnaðarefni því þannig má efla enn frekar innviði leikskólanna og bæta starfsumhverfið. Það er ekki tilviljun að ríkisstjórnin opnar faðminn gagnvart leikskólunum á vakt Samfylkingarinnar. Uppbygging í fallegu umhverfi Við viljum byggja leikskóla í grænu og fallegu umhverfi þar sem börnin hafa fjölbreytta möguleika til að hreyfa sig og leika úti. Þess vegna munum við opna nýjan leikskóla í Elliðaárdal í haust fyrir um 130 börn og annan í Fossvogsdalnum á næsta ári fyrir um 180 börn. Í þriðja lagi viljum við byggja leikskóla á Klambratún og nýta þar reit sem nú hýsir hverfisstöð borgarinnar til að þjóna leikskólabörnum á einu fallegasta útivistarsvæði borgarinnar þar sem eru fjölmörg tækifæri til fjölbreyttrar útivistar, hreyfingar og leikja. Leikskóli á Klambratúni er eitt sjö nýrra verkefna sem borgarráði samþykkti sl. fimmtudag að taka inn í aðgerðaáætlun Brúum bilið um leikskólauppbyggingu í borginni. Til viðbótar verða svo byggðir leikskóla í Arnarbakka í Breiðholti, við Hlíðarenda og Nauthólsveg, í Miðborg, Völvufelli og Safamýri að ógleymdu nýju leikskólahúsnæði sem verður sérhannað til að mæta nútímalegum þörfum leikskólanna Laugasól og Sunnuás í Laugardal í stað húsnæðis sem komið er til ára sinna og borgar sig ekki að gera við. Til viðbótar þessu erum við að stækka leikskóla með nýjum húsum sem fjölga deildum um eina eða fleiri.Þær deildir eru við leikskóla í Vesturbæ, Grafarvogi, Hlíðum, Ármúla, Breiðholti, Fossvogi, Grafarholti, Árbæ, Miðborg, Háaleiti og Laugardal. Valið er skýrt Í kosningunum á laugardaginn er meðal annars kosið um leikskólamál. Hægri flokkarnir vilja heimgreiðslur sem grafa undan kynjajafnrétti og fyrirtækjaleikskóla sem mismuna börnum eftir stöðu foreldra þeirra á vinnumarkaði. Ef þú vilt leikskóla þar sem öll börn hafa jafnan aðgang, áframhaldandi uppbyggingu vandaðra leikskóla í fallegu umhverfi og stöðugar umbætur í vinnuumhverfi starfsfólks og barna - þá er Samfylkingin rétti kosturinn fyrir þig. X-S! Höfundur er frambjóðandi og borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Skúli Helgason Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar