Innlent

Gjöld fyrir frí­stund hafi hækkað um allt að 37 prósent á þremur árum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kostnaður við vistun í frístund er hvað lægstur í Vestmannaeyjum en hefur þó aukist á tímabilinu samkvæmt samantekinni.
Kostnaður við vistun í frístund er hvað lægstur í Vestmannaeyjum en hefur þó aukist á tímabilinu samkvæmt samantekinni. Vísir/Vilhelm

Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent.

Mestu hækkanirnar eru í Reykjanesbæ og Fjarðabyggð. Í Reykjanesbæ hækka gjöldin um 37 prósent, úr 20.266 krónum árið 2023 í 27.768 krónur árið 2026. Í Fjarðabyggð nemur hækkunin 36 prósentum, þar sem gjöld fara úr 17.073 krónum í 23.247 krónur á sama tímabili samkvæmt nýrri samantekt ASÍ. Þar kemur fram að minnstu breytingarnar eru í Vestmannaeyjum, Akureyri og á Seltjarnarnesi þar sem hækkun gjalda er á bilinu fjögur til tíu prósent.

Í samantekt ASÍ kemur einnig fram að í Garðabæ er dýrustu gjöldinþegar kemur að frístundaheimilum. Þar hækkar gjaldskráin úr 32.662 krónum í 39.550 krónur, eða um 21 prósent á tímabilinu. Á Seltjarnarnesi eru gjöld einnig há, 38.750 krónur árið 2026, þó hækkunin þar sé minni en víða annars staðar.

Samantekt ASÍ miðast við eitt barn í 63 stunda vistun á mánuði eða um þrjár klukkustundir á dag auk þess að fá síðdegishressingu.

Lækka í Mosfellsbæ

Í Reykjavík hækka gjöld frístundaheimila um 15 prósent á tímabilinu og fara úr 21.310 krónum í 24.452 krónur. Sambærileg þróun er í Árborg og á Akranesi þar sem hækkunin er einnig um 15 prósent.

Mosfellsbær sker sig úr í samanburðinum sem eina sveitarfélagið þar sem gjöld lækka. Þar lækkar mánaðargjaldið um tvö prósent, úr 26.586 krónum árið 2023 í 25.984 krónur árið 2026.

Í samantekt segir að munurinn milli sveitarfélaga sé jafnframt áfram mikill. Í ár muni yfir 21 þúsund krónum á hæstu og lægstu gjaldskránni í samanburðinum.

Sé tekið tillit til verðbólgu má sjá að yfir sama tímabil hefur verðbólga verið 20 prosent og einungis í Garðabæ, Akranesi og Reykjanesbæ sem gjöld hafa hækkað umfram verðbólgu.

Miðast þessi úttekt við eitt barn í 63 stunda vistun á mánuði eða um 3 klukkustundir á dag auk þess að fá síðdegishressingu. Sé horft til að fleiri en eitt barn sé í vistun í frístund er ýmist veittur afsláttur af gjaldi þess barns eða gjaldi elsta barns, en hann er ýmist 25-100% fyrir annað barn en 75-100% fyrir þriðja barn.

Sum sveitarfélög bjóða uppá sérstaka afslætti fyrir ákveðna hópa, t.d. veitir Kópavogsbær 25% afslátt fyrir einstæða foreldra, öryrkja og námsmenn. Garðabær veitir tekjutengdan 40% afslátt af almennu dvalargjaldi fyrir einstaklinga eða fjölskyldur undir tekjuviðmiðum. Akranes býður einnig uppá afslátt fyrir einstæða foreldra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×