„Ég er í góðu standi og með meiri trú á sjálfum mér“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 17. maí 2026 20:13 Stefan Ljubicic í baráttunni gegn KR Viktor Freyr/Vísir Keflavík gerði 1-1 jafntefli við Stjörnuna á HS Orku vellinum í Keflavík þegar sjöunda umferð Bestu deild karla hélt áfram göngu sinni í dag. Stefan Ljubicic hefur átt flott tímabil með Keflavík til þessa og hann ræddi við okkur eftir leik. „
Svekkjandi niðurstaða, við fengum nógu mörg færi til að fá þrjú stig út úr þessum leik“ sagði Stefan Ljubicic eftir leikinn í dag. „Ég kannski sérstaklega [fékk færin] þannig ég þarf að gera aðeins betur en margt bara jákvætt. Kannski smá erfiður völlur en bara svekkjandi líka að fá mark úr föstu leikatriði“ „Við erum lang sterkastir þar og það er kannski það eina neikvæða úr þessu“ Keflavík fékk færin í leiknum og var Stefan Ljubicic á því að það sem vantaði var bara að klára færin betur. „Það er bara að setja boltann í netið, það er mjög einfalt. Við óðum í færum og áttum mun betri færi en þeir þannig ég held að það sé bara það, að skora“ Stefan Ljubicic fékk ófá færin í dag en inn vildi þó boltinn ekki fara. Framherjinn hefur þó verið öflugur fyrir Keflavík í upphafi móts. „Mörkin eru að detta, ég er búin að skora fjögur núna þannig þetta datt bara ekki í dag og þá er bara næsti leikur“ „Það að ég sé í færum er líka bara mjög mikilvægt fyrir okkur en það er bara að vera rólegur og næsti leikur“ „Ég er í góðu standi og með meiri trú á sjálfum mér og liðið er líka bara mjög gott. Við erum með mjög marga fríska og spilum upp á okkar styrkleika og það er bara að virka“ Keflavík fær hina nýliða deildarinnar í næstu umferð og horfir það verkefni vel við Stefan Ljubicic. „Það er bara skemmtilegt, tvö lið sem eru með stig þannig það er bara barátta. Hver einasti leikur er erfiður í þessari deild og við erum bara í stigasöfnun núna og áttum að fá þrjú í dag en það er bara næsti leikur og stefnum á þrjú stig þar“ sagði Stefan Ljubicic.
Keflavík ÍF Besta deild karla Fótbolti Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Írland - Austurríki | Lykilleikur fyrir Heimi í miðjum stormi Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Heimspekingurinn Winston jós úr viskubrunni sínum Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Sjá meira