Handbolti

Dagur orðaður við stór­lið en kapallinn langur

Sindri Sverrisson skrifar
Dagur Sigurðsson hefur verið landsliðsþjálfari Króatíu frá því í febrúar 2024.
Dagur Sigurðsson hefur verið landsliðsþjálfari Króatíu frá því í febrúar 2024. Getty/Sanjin Strukic

Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu, er einn af þremur sem orðaðir eru við starf þjálfara þýska handboltaliðsins Flensburg. Ýmislegt þyrfti þó að gerast áður en að því gæti orðið.

Slóveninn Ales Pajovic er þjálfari Flensburg og með samning sem gildir í eitt ár til viðbótar. Þýski miðillinn Sport Bild segir að nú gæti hins vegar þjálfarakapall verið að fara í gang og staðan hjá Flensburg losnað.

Pólska stórveldið Kielce er nefnilega í leit að þjálfara eftir að Talant Dujshebaev ákvað að hætta og er sagt ætla sér að fá Uros Zorman, þjálfara slóvenska landsliðsins og RD Slovan í Slóveníu.

Slovan horfir því að sama skapi til þess að fá Pajovic heim til Slóveníu til að taka við liðinu og með því ætti staða hans að losna. Bild segir jafnframt að umboðsmaðurinn Andrej Golic sé farinn að auglýsa Pajovic á markaðnum, þó að hann eigi eitt ár eftir af samningi sínum við Flensburg.

Hafa horft til Íslendinga undanfarið

Fari svo að Pajovic yfirgefi Flensburg eru Dagur, Dujshebaev og Misha Kaufmann, þjálfari Stuttgart, sagðir líklegastir til að taka við liðinu.

Flensburg hefur verið að horfa til Íslendinga undanfarið og fyrir níu dögum tilkynnti félagið að línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson kæmi í sumar og hefði skrifaði undir samning til eins árs. Í byrjun apríl tilkynnti félagið svo að samið hefði verið við Viggó Kristjánsson um að koma sumarið 2027, þó að mögulega gerist það fyrr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×