Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 23. maí 2026 22:23 Donald Trump Bandaríkjaforseti og Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans. Vísir/Samsett Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum að samkomulag um að binda enda á átökin í Miðausturlöndum lægi að mestu fyrir. Meðal ákvæða þess væri að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund. Þessu hafna írönsk stjórnvöld alfarið.
Samkvæmt miðlinum Fars News sem haldið er úti af íranska byltingarverðinum hafa bandarískir embættismenn ítrekað sagt írönskum stjórnvöldum að samfélagsmiðlafærslur forsetans séu gerðar í áróðursskyni og að þær beri að hunsa. Eins og greint var frá fyrr í dag hafa stjórnvöld bæði í Bandaríkjunum og Íran látið það í veðri vaka að þokast hafi í friðarviðræðum. Áfram hélt þó Trump Bandaríkjaforseta að klifa á gjöreyðingarhótunum sínum enn sem áður. Seinnipartinn ræddi Bandaríkjaforseti símleiðis við leiðtoga Sádí-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Katars, Pakistans, Egyptalands, Tyrklands, Jórdaníu og Barein. Í færslu á dreifimiðli sínum sagðist Trump hafa rætt „friðarviljayfirlýsingu“ (e. Memorandum of Understanding pertaining to PEACE). „Samkomulagi hefur að mestu verið náð, með fyrirvara um endanlega útfærslu milli Bandaríkjanna, Íslamska lýðveldisins Írans og hinna ýmsu landa sem talin eru upp. Að auki átti ég símtal við Bibi Netanyahu [svo], forsætisráðherra Ísraels, sem gekk sömuleiðis mjög vel. Síðustu smáatriði samningsins eru nú til umræðu og verða tilkynnt innan skamms. Auk margra annarra ákvæða samningsins verður Hormússund opnað,“ hafði hann að segja um það. „Fjarri sanni“ Íranski ríkismiðillinn Fars gaf í kjölfarið út að enn væri talsvert lengra í land en Bandaríkjaforseti gaf í skyn. Nánar tiltekið segir í umfjöllun miðilsins að fullyrðingar Trump annars vegar um að siglingar um Hormússund sneru aftur til fyrra horfs að samkomulaginu undirrituðu og hins vegar að téð samkomulag lægi fyrir séu fjarri sanni. „Samkvæmt nýjasta blaði sem hefur gengið á milli mun Hormússund áfram vera undir stjórn Írans ef til hugsanlegs samkomulags kemur. Þrátt fyrir að Íran hafi samþykkt að leyfa þeim fjölda skipa sem fara um sundið að ná sama stigi og fyrir stríð, þýðir það á engan hátt að sigling sé aftur frjáls líkt og fyrir stríð,“ segir í umfjöllun Fars. Tístin í áróðursskyni Íran muni halda áfram að stýra umferð um sundið og gefa út leyfi til siglinga um það. „Þess má geta að Trump hafði áður lýst því yfir að samningaviðræður um kjarnorkuáætlun Írans yrðu lykilskilyrði fyrir hvers kyns samkomulagi. Hins vegar hefur Íran ekki gefið nein loforð og kjarnorkumálið hefur alls ekki verið rætt á þessu stigi,“ segir þar sömuleiðis. „Þess má geta að bandarískir embættismenn hafa viðurkennt í fjölmörgum skilaboðum til Írans að tíst Trumps séu aðallega birt í áróðursskyni og til neyslu innan Bandaríkjanna og hafa mælt með því að þessar yfirlýsingar séu hunsaðar,“ segir í umfjöllun Fars.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira