Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Agnar Már Másson skrifar 28. maí 2026 23:53 Séra Friðrik Friðriksson stofnaði KFUM og sömuleiðis íþróttafélögin Val og Hauka. Þessi stytta hefur verið fjarlægð. Vísir/Vilhelm Tillaga um að reisa á ný styttu af séra Friðriki Friðrikssyni í sumar var í kvöld felld á aðalfundi knattspyrnufélagsins Vals. Á sama fundi var Arnar Þór Sævarsson kjörinn formaður félagsins en hann er framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Þetta herma heimildir Vísis en tillagan var felld með 40 atkvæðum gegn 31 á aðalfundi félagsins sem haldinn var í kvöld. Í desember 2023 ákvað knattspyrnufélagið að fjarlægja styttu af séra Friðriki Friðrikssyni, stofnanda félagsins, sem hefur staðið á lóð félagsins. Var það gert eftir að Guðmundur Magnússon sagnfræðingur upplýsti í nýlegri bók um Friðrik að hann hefði leitað á unga drengi. Séra Friðrik var æskulýðsfrömuður mikill og kom meðal annars að stofnun KFUM og KFUK á sínum tíma auk þess sem hann var stofnandi Vals. Sjá einnig: Mál séra Friðriks Sömuleiðis var stytta af Friðriki við Lækjargötu í Reykjavík fjarlægð. KFUM og KFUK sögðu í yfirlýsingu að frásagnirnar væru hafnar yfir skynsamlegan vafa. Á sama fundi í kvöld var Arnar Þór Sævarsson, sem var aðstoðarmaður í ráðherratíð Ásmundar Einars Daðasonar, kjörinn nýr stjórnarformaður Vals. Frá 2023 hefur hann verið framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga en hann var áður bæjarstjóri Blönduóss. Arnar Þór Sævarsson er framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga og nú nýr formaður Vals.Baldur Kristjánsson Arnar Þór tekur við af Hafrúnu Kristjánsdóttur, sem hefur gegnt formennsku í félaginu síðan í fyrra, fyrst kvenna. Hún gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Fréttin hefur verið uppfærð. Í fyrri útgáfu stóð að styttan fengi ekki að rísa á nýjan leik. Hið rétta er að tillagan sem var felld laut að því að styttan myndi rísa fyrr en síðar. Fyrir liggur vilji stjórnar þess efnis að styttan muni rísa á nýjan leik.
Mál séra Friðriks Friðrikssonar Valur Reykjavík Kynferðisofbeldi Styttur og útilistaverk Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira