Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. maí 2026 14:09 Magnús Orri Schram, formaður knattspyrnudeildar KR, handsalar samninginn við Óskar Hrafn. Mynd/KR Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur framlengt samning sinn sem þjálfari KR, sem og yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu, til ársins 2030.
KR tilkynnti um framlenginguna á samfélagsmiðlum félagsins í dag. Óskar Hrafn tók við þjálfun liðsins í ágúst 2024 af Gregg Ryder. Pálmi Rafn Pálmason hafði þá þjálfað liðið tímabundið í millitíðinni. KR gekk vel það haustið og átti góðan lokakafla í neðri hluta Bestu deildarinnar. Við tók martraðartímabil í fyrra þar sem KR bjargaði sér ekki frá falli fyrr en í lokaumferð deildarinnar. Aftur á móti hefur tímabilið í ár byrjað glimrandi vel. KR hefur unnið sjö af níu leikjum í deildinni og er með 22 stig í öðru sæti, aðeins þremur frá toppliði Víkings. Í tæplega tveggja ára þjálfaratíð Óskars Hrafns hafa fjölmargir uppaldir KR-ingar snúið heim í félagið og hópurinn yngst að auki. Óskar framlengir nú samning sinn út næstu fimm leiktíðir, til ársloka 2030, en fyrri samningur gilti til 2027. „Ég er mjög þakklátur fyrir traustið sem KR hefur sýnt mér og að framlengja samninginn var auðveldasta ákvörðunin sem ég hef tekið á mínum starfsferli. Það er forréttindi að vakna á hverjum morgni og vinna að því að gera KR að betra félagi,“ er haft eftir Óskari í tilkynningu KR. „Það er afar gleðilegt fyrir okkur KR-inga að framlengja við Óskar Hrafn út keppnistímabilið 2030. Ástríða hans, kraftur og dugnaður er einstakur og ávallt með fagmennsku að leiðarljósi í öllum hans störfum. Það er full ástæða til að óska KR-ingum til hamingju með nýjan samning sem er grunnur að stöðugleika í störfum félagsins,” er haft eftir Magnúsi Orra Marínarsyni Schram, formanni knattspyrnudeildar KR.
KR Besta deild karla Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport Fleiri fréttir MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjá meira