Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar 30. maí 2026 17:00 Í umræðu um fjölbreytni, aðgengi og þátttöku í listum er einn hópur sem sjaldan ber á góma. Það er eldra sviðslistafólk. Helst kemst það í sviðsljósið, yfirleitt einn á ári, þegar heiðursverðlaun Grímunnar eru veitt fyrir ævistarfið. Ég vil nota tækifærið til að óska Þórunni Elísabetu Sveinsdóttur leikmynda- og búningahöfundi innilega til hamingju með verðskuldaðan heiður og frábært starf sem er hvergi nærri lokið. Í starfi mínu hef ég um árabil fylgst með því hvernig atvinnumöguleikar leikara breytast eftir því sem aldurinn færist yfir. Þegar litið er til þeirra sem eru komnir um og yfir sextugt blasir við veruleiki sem við verðum að ræða af alvöru. Hlutverk fyrir eldri leikara í íslenskum leikhúsum eru fá og þessum hópi eru helst fengin léttvæg verkefni sem aukapersónur í verkefnum sem hverfast um yngri aðalpersónur. Hvað veldur? Fá hlutverk fyrir eldri leikara stafa ekki af skorti á verkum. Leikbókmenntir heimsins eru fullar af stórkostlegum persónum á sextugs-, sjötugs- og áttræðisaldri. Spurningin er frekar hversu oft/sjaldan íslensk leikhús velja að setja slík verk á dagskrá, nú eða þróa ný verk þar sem líf og reynsla þessa aldurshóps er í forgrunni, hlutverk fyrir eldra fólk, sögur þess og reynsla, væntingar og vonir. Vona að þetta sé ekki sjokkerandi, en fólk um og yfir sextugu glímir við ýmsar áskoranir lífsins. Það hefur væntingar, langanir, breyskleika, gæsku, illsku og alla þá flóru mannlegrar hegðunar sem leikhúsið vill gjarnan fjalla um, spegla samtímann. Margir af reynslumestu listamönnum landsins, fólk sem hefur byggt upp íslenskt leikhúslíf í áratugi, fá lítil sem engin tækifæri í stóru leikhúsunum. Þetta á ekki síst við um verkefnaráðið listafólk sem stendur frammi fyrir því að hverfa nær alfarið af vinnumarkaði á sama tíma og það hefur enn mikið fram að færa. Eldri leikarar, leikstjórar, leikmynda- og búningahöfundar, danshöfundar sem í eina tíð voru allt í öllu – hvar er allt þetta fólk? Líta stjórnendur íslenskra sviðslistastofnana á aldur og reynslu sem minnisvarða um liðinn tíma, þegar það er ein verðmætasta auðlind greinarinnar? Þetta er ekki aðeins spurning um atvinnu og afkomu. Þetta er líka spurning um það hvaða sögur við veljum að segja og hverjir fá að birtast á sviðinu. Ef leikhús sem njóta opinbers stuðnings ætla að vera leikhús allra landsmanna hljóta þau einnig að þurfa að endurspegla alla aldurshópa samfélagsins, á sviðinu og í listrænni stjórnun. Það er lítið rætt um þessa þróun. Fólk hættir störfum hljóðlega, hverfur af sviðinu án mikillar umræðu og sífellt sjaldnar eru gefin tækifæri til að ljúka löngum og farsælum ferli með hlutverkum sem hæfa reynslu, þroska og getu viðkomandi listamanns. Þannig svipta leikhúsin listamann tækifæri til að kveðja með reisn. Áhorfendur eru líka sviknir, fá ekki að kveðja sitt uppáhaldsfólk með þökkum og lófataki, kannski í síðasta sinn. Á sama tíma og eldri leikarar verða næstum ósýnilegir þá er íslenskt samfélag að eldast. Eldra fólk er sýnilegra en nokkru sinni fyrr í samfélaginu, atvinnulífinu og menningunni. Sú þróun virðist hins vegar ekki skila sér að sama marki inn á leiksvið landsins. Leikhúslistakonur 50+ er hópur listakvenna og fengu þær Grímutilnefningu í flokknum Hvatningarverðlaun Grímunnar. Þær hafa ítrekað sótt um styrki til að setja upp sýningar en ekki fengið. Sá leikari sem hlaut Grímuverðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki verður 75 ára á árinu. Í Þjóðleikhúskjallaranum sýna nú þrír eldri leikarar, fyrir fullu húsi, samstarfsverkefnið Harry og Heimir. Meðalaldur þeirra er 68 ár. Áhorfendur vilja sannarlega sjá eldra fólk á sviðinu og fagfólkið kann að meta framlag þess, svo stóru leikhúsin ættu kannski að sinna þessum hópi listamanna betur. Markmið þessa pistils er ekki að pota í einstakar stofnanir eða einstaklinga. En það er nauðsynlegt að við spyrjum okkur hvort íslenskt leikhúslíf sé farið að sniðganga ákveðinn aldurshóp. Ef svarið er já þá þarf að ræða hvernig við ætlum að bregðast við. Reynsla, þekking og listrænn þroski eru nefnilega verðmæti. Leikhús sem missa tengsl við þá eiginleika verða fátækari fyrir vikið. Höfundur er Framkvæmdastjóri Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikhús Menning Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira