Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar 6. júní 2026 16:31 Klukkan var korter yfir fimm og suðaustan rokið reif í bílhurðina á Hverfisgötunni þegar ég ætlaði að stíga út. Ég lokaði henni aftur. Í útvarpinu spilaði Nirvana órafmagnaða útgáfu af „The Man Who Sold the World“ og ég ákvað að sitja áfram og klára lagið. Yfirheyrslan átti ekki að byrja fyrr en hálf sex. Ég sat þarna fyrir utan lögreglustöðina, á leiðinni inn í enn eitt leikrit fáránleikans, enn eina skýrslutökuna yfir ungmennum sem voru mætt til að stimpla sig inn í kerfið, þegar búin að tapa leiknum og áttu sér enga undankomuleið. Þarna mættu gaurar sem maður vissi strax að yrðu með fasta áskrift í fangelsunum til frambúðar eða enduðu inni í fíkniefnaheiminum þar sem þeir áttu engan séns. Ég reyndist því miður sannspár. Þessi málaflokkur hefur lítið breyst á þeim áratugum sem ég hef starfað í honum. Grunnurinn að þessari glötun var lagður löngu fyrr, fóstraður af algjöru úrræðaleysi og getuleysi kerfisins til að grípa þessa krakka áður en gatan tók þá yfir og sumir þeirra eiga í dag mannslíf á samviskunni. Kraftaverk í skugga samfélagsmeinsins Það var inn í þetta umhverfi sem ég steig fyrst árið 1994, þegar ég hóf minn feril á þessum vettvangi hjá Útideildinni. Fyrir utan það að hafa verið sjálfur olnbogabarn í kerfinu, þá er ég búinn að vera báðum megin við borðið. Ég byrjaði þarna í 50% hlutastarfi á móti því að vinna hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur í Mótorsmiðjunni í 50% starfi. Mótorsmiðjan var sérhæfð félagsmiðstöð hugsuð fyrir unglinga með sérstakan áhuga á mótorhjólum, og þar sá maður mörg kraftaverkin gerast. Þarna kynntist ég Bjössa vini mínum sem varð mentor minn í þessu, sem er mér algjörlega ómetanlegt. Bjössi var í fullu starfi hjá Útideildinni, sem var á vegum Unglingadeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkur og staðsett niðri í miðbæ. Stuttu síðar fór ég svo sjálfur í fullt starf þar. Útideildin sinnti vettvangs- og leitarstarfi, aðallega á kvöldin og um helgar, jafnt í miðbænum sem úti í úthverfunum. Starfið fólst í því að brjóta upp óæskilegar hópamyndanir og keyra drukkna unglinga í athvarf þar sem foreldrar þurftu svo að koma og sækja þá. Þar sá maður oft bitran sannleikann, því þessir krakkar áttu ekki langt að sækja vandamálin sín sum hver. Það eru mörg minnisstæð atvik því tengd. Eins og þegar foreldri kom að sækja unglinginn sinn, sjálft undir áhrifum á bíl og það gerðist ekki einu sinni. Langflestir foreldrar sem mættu til okkar voru bláedrú, hræddir og miður sín yfir krökkunum sínum. En þetta litla, örfáa brot sem mætti sjálft í vímunni var samfélagsmeinið sem við vorum í raun að berjast við. Þarna sá maður hvar keðjan slitnaði í uppeldinu og það voru þessi fáu atvik sem sátu í manni. Á þessum árum var mikil carnival-stemning í miðbænum. Rómantískur bíóheimur vs. hrár raunveruleiki Þegar ég horfi til baka til þess tíma þegar ég byrjaði var aðalvandamálið þessi stöðuga unglingadrykkja. Það var ekki mikið um neyslu á sterkum efnum nema þá hassi, og það var ekki mikið útbreitt í þessum aldurshópi. En var ástandið eitthvað verra eða betra en það er í dag? Ég er sannfærður um að Útideildin myndi eiga fullt erindi við nútímann, nákvæmlega eins og hún starfaði þá, en hún þyrfti eflaust að vera inni í netheimum líka. Hana er fyrir löngu síðan búið að leggja niður, því miður, þótt einhver vísir að henni sé enn til, en það mætti gera miklu betur að mínu mati í þeim efnum. Við vorum með fjölbreytt hópstarf í útideildinni bæði fyrir stráka og stelpur. Ég byrjaði með minn fyrsta hóp í afbrotaforvörnum þarna og minn mentor í því var Bjössi. Það fólst aðallega í því að hætta að tala við þessa gaura yfir skrifborð. Í staðinn fyrir það fórum við í vettvangsvinnu og hittum fólk sem var í raunverulegri snertingu við málaflokkinn og sá afleiðingarnar og orsakirnar fyrir afbrotum og ofbeldi. Þannig fengu þeir alvöru snertingu við það hvað væri að gerast í ofbeldis- og afbrotaheiminum. Við vildum rjúfa þá jafningjafræðslu sem þeir fengu á götunni, jafningjafræðslu sem átti miklu meira skylt við rómantískan bíóheim en hinn hráa raunveruleika. Gatan dýrkar ofbeldi og glæpi eins og það sé töff, en hún sýnir þeim aldrei endastöðina. Hún sýnir þeim ekki blóðuga andlitið á fórnarlambinu daginn eftir, hvað þá fangaklefana og sárin á sálinni. Þetta leikrit fáránleikans hefur ekkert breyst í grunninn; það er bara komin önnur uppfærsla á því í dag miðað við þegar ég byrjaði á þessum vettvangi árið 1994. Fjarlægðin á milli tveggja heima Eins sátum við oft yfirheyrslur hjá ungmennum sem voru að brjóta af sér. Þessir drengir voru engum líkir; yfirheyrslurnar skiptu tugum og það átti enginn séns í þá með hefðbundnum aðferðum kerfisins. Það sýndi sig fljótt hversu mikil fjarlægð var á milli tveggja heima í þessum málaflokki. Annars vegar var það fólkið sem skipulagði úrræðin út frá skrifstofum og reglugerðum og hins vegar við sem stóðum á gólfinu og mættum veruleikanum á götunni andspænis þeim augnhæð. Að stilla þessum krökkum upp bak við skrifborð á lokaðri skrifstofu skilaði litlu; það þurfti að taka á þeim af alvöru á þeirra eigin forsendum, líkt og hópastarfið okkar gerði. Það var stöðug barátta að brúa þetta bil og halda tilvist starfsins áfram, því það getur verið erfitt að átta sig á þörfum götunnar þegar maður horfir á hana úr fjarlægð innan úr kerfinu. Enda fór eins og það fór. Þessi málaflokkur hefur lítið breyst á þeim áratugum sem ég hef starfað í honum. En þarna var ég að byrja. Þegar lagið kláraðist loksins í útvarpinu ýtti ég hurðinni upp aftur og steig beint út í nístandi rokið á Hverfisgötunni. Ég dró andann djúpt og gekk inn á lögreglustöðina, tilbúinn að taka minn stað á sviðinu í þessu leikriti fáránleikans sem beið mín inni. Á meðan samfélagið og netheimar halda áfram að dást að fölskum töffaraskap sitja nýjar kynslóðir krakka inni á lögreglustöðvum og átta sig ekki á því að sýningunni er lokið og raunveruleikinn tekinn við. Kerfið stendur of oft lamað gagnvart eigin úrræðaleysi á meðan gjáin á milli skrifstofunnar og götunnar breikkar og gatan heldur áfram að krefjast fórnarlamba. Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar og áhugamaður um betra samfélag Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun