Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar 9. júní 2026 14:01 Alvarleg mengun í Varmá í Mosfellsbæ á dögunum vegna jarðborana vakti eðlilega athygli og hörð viðbrögð í samfélaginu. Þar hafði svokallað svarfvatn sem verður til við boranir runnið af borsvæðinu í Skammadal og í Varmána. Það átti að sjálfsögðu ekki að gerast enda starfsleyfi fyrir borunum háð því að framkvæmdaaðilinn grafi þar til gerðar svarfgryfjur þar sem svarfið sest í botn gryfjunnar og ómenguðu vatni þar með veitt í burtu af borsvæðinu. Við boranirnar í Skammadal hafði framkvæmdaaðilinn Veitur hreinlega vanrækt að grafa svarfgryfju og því fór sem fór en fyrirtækið hefði að sjálfsögðu átt að stöðva boranirnar um leið og mengunarinnar varð vart og tilkynna hana til yfirvalda en gerði það ekki. Atvikið getur því ekki talist óhapp heldur manngerð og meðvituð mengun af hálfu Veitna. Afleiðingin varð sú að áin litaðist gráu svarfi og fíngerðu seti svo sá ekki til botns í ánni svo dögum skipti, allt frá þeim stað þar sem mengunin barst í ánna og fram til sjávar á rúmlega 2 km kafla. Hér er um grafalvarlegt atvik að ræða, enda gruggar setið vatnið og sest svo til botns í ánni sem hefur áhrif á lífríki hennar, svo sem fiskigengd og botngróður. Þá hvarf fuglalíf að mestu úr ánni á meðan mengunin var sem mest auk þess sem dauðir fuglar sáust á floti í straumnum. Ein af undirstöðum líffræðilegrar fjölbreytni í og við Varmána er ýmis botngróður sem þar er til staðar. Þar þrífast ýmsar fæðutegundir smádýra fyrir fiska og fugla ásamt mýflugnategundum sem sveima yfir en samanlagt mynda þessir þættir í raun undirstöðu lífríkisins innan svæðisins. Allt þetta sem byggir undir búsvæði fugla og fiska hvarf við mengunina á þessum viðkvæmasta tíma ársins einmitt þegar allt lífríkið er að lifna við. Um tíma blandaðist svo kolmórauður brúnn litur ofan í gráa svarfið í Varmá loksins þegar Veitur hófust handa við gerð svarfgryfju. Svo virðist sem að fjölmiðlaumfjöllun hafi þurft til að stoppa Veitur af. Tilkynning íbúa dugði ekki til. Til að gera málið enn alvarlegra þá fór mengunin um þrjú friðlýst svæði á leið sinni til sjávar en NáttúruvættiðÁlafoss er meðal þessara svæða en fossinn og umhverfi hans er fjölsótt af bæjarbúum og öðrum gestum og svæðið hefur því mikið útivistar- og fræðslugildi. Þá fellur Varmá um friðlandið Varmárósa sem er mikilvægt verndarsvæði fyrir bæði fugla og sjaldgæfar plöntutegundir. Síðast og ekki síst fellur Varmá í sjó fram þar sem við taka hin friðlýstu lífríku svæði Leiruvogur og Blikastaðakró en þar er m.a. að finna afar mikilvæga viðkomustaði farfugla, einkum vaðfugla og fóstra leirurnar þar því ríkulegt fuglalíf allt árið um kring. Þar að auki er Blikastaðakró viðkomustaður landsela. Um þetta strandsvæði falla svo auk þess tvær þekktar laxveiðiár Leirvogsá og Úlfarsá þar sem bleikjur og urriði og fl. tegundir ganga í. Atvikið í Varmá er því miður ekki einangrað tilfelli því á síðasta ári varð sambærilegt atvik við jarðboranir í Krýsuvík innan Reykjanesfólkvangs þar sem svarfvatni var veitt í nærliggjandi læki. Ekki er vitað hvort atvikið hafði jafn slæmar afleiðingar og í Varmá en framkvæmdaaðilinn HS Orka taldi að svo væri ekki. Engu að síður liggur fyrir að bakkagróður lækja og farvega verða óumdeilt fyrir skaða ef grófu skolvatni er veitt stöðugt út í lífríkið. Þessi tvö atvik undirstrika mikilvægi þess að gott eftirlit sé haft með jarðborunum og framkvæmdir stöðvaðar samstundis ef vart verður við vanrækslu eða eitthvað fer úrskeiðis. Það er því full ástæða til að efla eftirlitið og ekki síst fyrirbyggjandi aðgerðir með mengunarvörnum þar sem stjórnvöld boða nú átak í jarðborunum hringinn í kringum landið. Það skýtur því skökku við að réttu áður en þessi manngerðu mengunaratvik gerðust gengu í gegn laga og reglugerðarbreytingar af hálfu Umhverfis- orku og loftslagsráðherra á eftirliti með jarðborunum til að hraða framkvæmdum. Sömuleiðis fela breytingarnar í sér að Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna, sem hingað til hefur sinnt útgáfu starfsleyfa og eftirliti með borframkvæmdum, hefur ekki lengur það hlutverk og verður embættið lagt niður um næstu áramót. Útgáfa starfsleyfa og eftirlit verður hins vegar fært með breyttu sniði yfir til Umhverfis- og Orkustofnunar sem virðist hins vegar engan veginn tilbúin til að taka við hlutverkinu eins og atvikið í Varmá sýnir. Mengunin í Varmá er því bein afleiðing breytinga stjórnvalda á umgjörð og regluverki fyrir jarðboranir. Náttúruverndarsamtökin Landvernd hafa verulegar áhyggjur af þeirri þróun sem virðist hafa orðið á umgjörð og regluverki því sem á við um jarðboranir. Í ljósi stórtækra áforma stjórnvalda um jarðboranir á komandi mánuðum og árum er tilefni til að styrkja umgjörð og efla eftirlit með jarðborunum fremur en að riðla umgjörðinni og veikja eftirlitið. Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða (SH) gerðu alvarlegar athugasemdir við frumvörp orkumálaráðherra en sérfræðingar eftirlitsaðila telja að um áratuga afturför sé að ræða í eftirliti með framkvæmdum. Þá telja SH að þær breytingar sem er verið að gera í nafni einföldunar og flýtimeðferða muni einmitt leiða til hins gagnstæða þar sem flækjustig en aðhaldið veikist. SH óttast því að með svokölluðum einföldunum og flýtimeðferðum sem ætlað er að ryðja burtu hindrunum að mati ráðherra muni mengunarhætta aukast sem geti ógnað bæði líffræðilegri fjölbreytni og lýðheilsu. Af þeim ástæðum hefur stjórn Landverndar ályktað eftirfarandi: Landvernd skorar á stjórnvöld að falla frá lagabreytingum og reglugerðum í nafni „einföldunar“ ferla með flýtimeðferðum sem ætlað er að greiða götu framkvæmdaðila. Nú hafa laga- og regugerðarbreytingar verið gerðar sem er ætlað að greiða leið jarðhitaframkvæmda á öllum stigum máls sem ráðherra kallar að ryðja burtu hindrunum. Samtökin telja það óheillaspor að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna og vilja að sú ákvörðun verði tekin aftur. Slæm reynsla af einföldunum og minna eftirliti er þegar komin fram, t.d. með alvarlegri mengun vatns. Náttúran nýtur ekki vafans þegar nauðsynlegt eftirlit og leyfisveitingakerfi er stórlega veikt og eða skorið alfarið niður. Eftirlit verður að styrkja og viðurlög þarf við brotum. Landvernd telur því óforsvaranlegt að auka áhættu og veikja náttúruvernd, mengunarvarnir og hollustuvernd með flýtimeðferðum og afnámi og/eða veikingu eftirlits. Að leggja niður heilbrigðiseftirlit sem flækir ábyrgð og eftirlit og eykur hættu á þjónusturofi sem þegar er fram komið er grafalvarlegt mál. Landvernd tekur undir með Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða um að alvarlegt sé að draga úr eftirliti með efnavörum, hollustuháttum, umhverfisgæðum og mengandi starfsemi í náttúru Íslands. Lélegt eftirlit, ásamt því að fylgja ekki eftir fyrirbyggjandi aðgerðum um mengunarvarnir, veldur manngerðri náttúruvá. Höfundur er varaformaður Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Arnar Stefánsson Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar