Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Lovísa Arnardóttir skrifar 24. júní 2026 15:49 Ekki verður tekin upp gjaldskylda við Kringluna líkt og í Smáralind. Aðsend og Vísir/Anton Brink Ekki stendur til að taka upp gjaldskyldu á bílastæði við Kringluna líkt og ákveðið hefur verið að gera við verslunarmiðstöðina Smáralind. Markaðsstjóri Kringlunnar segir meiri aðsókn í verslunarmiðstöðina en bílastæðaskortur sé ekki sérstakt vandamál. „
Þetta hefur verið til umræðu en það stendur ekki til að rukka fyrir bílastæði Kringlunnar. Við finnum ekki fyrir því að þetta sé vandamál en finnum fyrir aukinni aðsókn í húsið. Það er búin að vera mikil aukning í húsið,“ segir Unnur María Pálmadóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, og að aðsókn sé til dæmis tólf prósentum meiri en í júní í fyrra. „Það eru skólar í kring og húsnæði og við finnum almennt fyrir meiri umferð í húsið. Það er aukin aðsókn og þá eru færri laus bílastæði. En þetta hefur ekki verið vandamál hjá okkur,“ segir Unnur í samtali við fréttastofu. Fjallað var um málið í fréttum í gær en þar kom fram að gjaldskyldan muni bara taka gildi ef lagt er við Smáralind lengur en í fjóra klukkutíma. Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar, sagði í kvöldfréttum Sýnar að það hefði átt sér stað mikil uppbygging í kringum verslunarmiðstöðina og það væri aukin aðsókn í bílastæðin. Fram kom í frétt um gjaldskyldu í Smáralind að innheimtar yrðu 450 krónur á klukkustund að fjórum klukkustundum liðnum á bílastæðinu. Fólk ætti til dæmis að geta farið út að borða og í bíó á þessum fjórum klukkustundum.
Bílastæði Kringlan Smáralind Reykjavík Kópavogur Neytendur Bílar Mest lesið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Villandi framsetning Sparibíls að tala um „sömu bíla, bara miklu ódýrari“ Neytendur Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira