„Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. júní 2026 23:01 Erlendur Þorsteinsson formaður Landssambands hjólreiðamanna, vel lögð rafskúta fyrir bakvið hann. Vísir/Sigurjón Hjólreiðamenn eru orðnir langþreyttir á illa lögðum Hopp hjólum á hjólreiðastígum. Þeir segja hjólin hafa valdið slysum og kalla eftir úrbótum. Framkvæmdastjóri Hopp segir hjólaleiguna þegar hafa brugðist við.
Erlendur S. Þorsteinsson formaður Landssambands hjólreiðamanna fór með fréttamanni og tökumanni að vinsælum hjólreiðastíg í Öskjuhlíðinni. Þar er bannsvæði en notendur rafhlaupahjóla lenda gjarnan í því að þau verði rafmagnslaus og eru gjarnir á að skilja þau eftir. „Og þá er ekki krafist skilamyndar eða nokkurs skapaðan hlutar. Og síðan þó þetta líti svona þokkalega út [þ.e. standandi hlaupahjól á hjólreiðastíg] er þetta samt að taka töluverðan hluta af reininni og það er vel þekkt að á Íslandi er mikill vindur, og í næstu vindkviðu þá er hún orðin svona [liggjandi á hlið] og er fyrir öllum.“ Og skapar stórhættu fyrir hjólreiðamenn og hefur valdið fjölda slysa að sögn Erlends og hjólunum sem skilin séu eftir fjölgi mjög á sumrin líkt og nú. „Til þess að koma í veg fyrir þetta er mjög einfalt að einfaldlega leggja henni rétt fyrir utan og leggja henni svona. Þannig að hún sé alfarið fyrir utan stíginn en ekki þannig að hún skagi einhvern veginn inn á stíginn, því þá er hjólið ennþá fyrir en bara með því að fara með hana út fyrir, á grasið, að ef hún dettur núna, þá er hún ennþá ekki fyrir neinum. Eins og þessum hjólreiðamanni hér? Eins og þessum hjólreiðamanni hér.“ Ljóst sé að bæta þurfi eftirfylgni með notkun hjólanna, sérstaklega þeirra sem verða rafmagnslaus. Kristín Hrefna Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Hopp segir vinnu þegar hafna við að bæta úr, með nýrri vefsíðu, parking.hoppreykjavik.is, þar sem hægt sé að tilkynna um illa lögð Hopp hjól auk þess sem nýtt verklag hafi verið tekið upp þegar skúturnar eru skildar eftir af starfsfólki. „Við viljum ekki vera fyrir en við erum með árlega hundrað þúsund notendur á höfuðborgarsvæðinu. Það er auðvitað erfitt að kenna öllum að koma rétt fram við hjólin, eða eins og reiðhjólafólk vill að við gerum það, við erum að reyna að gera okkar allra besta.“ Erlendur bendir á að engum myndi detta í hug að skilja hjól eftir úti á miðri götu. Hvers vegna heldurðu að notendur þessara hjóla skilji þau eftir svona? „Þetta er góð spurning. Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni.“
Samgöngumál Hjólreiðar Rafhlaupahjól Umferðaröryggi Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira