Erlent

„Eins og að horfa á hamfaramynd um heims­endi“

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Abdias Yosue Santiago Rosales, 32 ára frá Venesúela.
Abdias Yosue Santiago Rosales, 32 ára frá Venesúela. Ap/Vísir/sigurjón

Óttast er að tugir þúsunda manna séu látnir eftir öfluga jarðskjálfta í Venesúela. Umfangsmikilar björgunaraðgerðir standa nú yfir og hafa hundruðir bygginga þegar hrunið. Maður frá Venesúela sem býr á Íslandi segist ekki hafa fest svefn í alla nótt vegna hamfaranna.

Tveir stærðarinnar jarðskjálftar gengu yfir landið klukkan sex í gærkvöldi, miðvikudaginn 24. júní, að staðartíma en óttast er að tugir þúsunda manna hafi farist í skjálftunum. Eins og er hafa ríflega hundrað og sextíu dauðsföll verið staðfest en tæplega þúsund eru staðfest slasaðir. Þrjátíu þúsund manns er enn leitað.

Um er að ræða kraftmestu jarðhræringar í Venesúela frá árinu 1900. Fyrri skjálftinn mældist 7,2 að stærð en sá seinni 7,5 sem reið yfir mínútu seinna. Upptök skjálftans voru vestan við höfuðborgina Caracas.

Neyðastigi lýst yfir í landinu

Viðbragðsaðilar og björgunarmenn hafa leitað í rústum bygginga í höfuðborginni og í héraðinu La Guaira sem talið er að hafi orðið verst úti en þar hafa fleiri en hundrað byggingar hrunið. Skemmdir urðu einnig á alþjóðaflugvelli í grenndinni.

Sérhæfðar björgunarsveitir frá ýmsum þjóðum hafa verið kallaðar til og eru margar þeirra á leið á vettvang en neyðarstigi var lýst yfir í landinu í gærkvöldi, miðvikudaginn 24. júní, og segir Delcy Rodrigues, forseti Venesúela, að um áfall fyrir þjóðina sé að ræða.

„Tugir bygginga eru rústir einar. Nú stendur yfir gífurlega umfangsmikil leit til að bjarga þeim lífum sem Guð leyfir okkur að varðveita. Um sannkallaðan harmleik er að ræða,“ sagði hún.

Óttast um ástvini sína 

Abdias Yosue Santiago Rosales er frá Venesúela og hefur búið hér á landi í þrjú ár. Hann segir hamfarirnar mikið áfall.

„Þetta var eins og að vakna við vondan draum. Ég horfði á fréttirnar og myndskeiðin voru rosaleg. Þetta var eins og að horfa á hamfaramynd um heimsendi. Hvað er að gerast í landinu mínu? Ég svaf ekki neitt í nótt, það var svo erfitt.“

Fjölmargir af vinum hans og fjölskyldu voru staddir í höfuðborginni þegar skjálftarnir gengu yfir.

„Margir vinir mínir eru nú án heimilis. Ég er búinn að tala við næstum alla og þau eru í lagi. Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar. Þau eru að reyna að bjarga honum. Það er svo erfitt að vera hér og geta ekki hjálpað. Þau sögðu við mig: Þetta er eins og heimsendir. Það var fullt af fólki úti um allt hlaupandi í allar áttir og grátandi.“

Upptök skjálftanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×