Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Kristján Már Unnarsson skrifar 25. júní 2026 23:23 Bændurnir á Svalbarði á Vatnsnesi, þau Ástmundur Norland og Hanný Norland Heiler. Egill Aðalsteinsson Á sveitabæ einum á Vatnsnesi er búið að breyta gamla súrheysturninum í gistirými fyrir ferðamenn. Bændurnir segja gestina dolfallna.
Í kvöldfréttum Sýnar var farið í Húnaþing vestra að bænum Svalbarði, sem er um tuttugu kílómetra norðan Hvammstanga. Þar hafa bændur fundið frumleg not fyrir gamla súrheysturninn. Séð yfir bæjarhúsin á Svalbarði. Húnaflói og Strandafjöll í baksýn.Egill Aðalsteinsson Jörðin var í eyði þegar þau Tobbi og Hanný keyptu hana fyrir sjö árum. Þau fluttu svo þangað fyrir fjórum árum í því skyni að stunda hrossarækt og reka hestaleigu fyrir ferðamenn. „Það er bullandi umferð hér. Það eru tugir þúsunda bíla sem fara hér um Vatnsnesið á sumrin,“ segir Ástmundur Norland, sem jafnan er kallaður Tobbi. Og ferðamennirnir, þeir þurfa þak yfir höfuðið. Gamli súrheysturninn sem búið er að innrétta sem íbúð. Egill Aðalsteinsson -Hvernig datt ykkur í hug að gera gistingu í súrheysturni? „Það var bara ónýtur turn en steypan var góð í honum,“ segir Tobbi. „Það var annaðhvort að rífa hann niður eða gera eitthvað úr honum. Þannig að við fórum út í þetta,“ segir Hanný Norland Heiler. Svefnherbergið er á neðri hæðinni.Egill Aðalsteinsson -Og vill fólk gista í súrheysturni? „Við vorum náttúrulega bara að opna. En þetta er að byrja og er að byrja að bókast,“ svarar Hanný. „Og það er að bókast inn. Þetta verður stórsniðugt,“ segir Tobbi. Úr setustofunni á efri hæð turnsins.Egill Aðalsteinsson Í turninum eru þau búin að innrétta eina íbúð. Á neðri hæðinni eru svefnherbergi, baðherbergi og eldhús. En þegar komið er upp stigann tekur við setustofa á efri hæðinni með útsýni yfir Húnaflóann og á Strandafjöllin. -Er dýrt að gista í súrheysturni? „Það er ekkert ódýrt,“ svarar Tobbi. „Nei, þetta er náttúrulega 60 fermetra hús. Fullbúið eldhús og allt saman,“ segir Hanný. Úr eldhúskróknum geta gestir horft út á Húnaflóann og hestagerðið.Egill Aðalsteinsson „Svo fylgir náttúrulega veiði í vatni hérna fyrir ofan, níu hektara veiðivatn. Og strönd um þrjá kílómetra, nánast einkaströnd með sel,“ segir hún. „Menn eru náttúrulega hérna út af fyrir sig. Og menn fá stöng bara með í gistingunni og geta eytt degi þarna upp frá að veiða. Og labbað á ströndinni og bara hvar sem þeir vilja, skilurðu. Og farið á hestbak hjá okkur,“ segir hann. Stapavatn ofan Svalbarðs.Egill Aðalsteinsson „Það sést beint í miðnætursólina hérna úr turninum og norðurljósin á veturna,“ segir Hanný. -Hvað segja gestir eftir að hafa gist í súrheysturni? „Ja, þeir sem hafa gist, þeir ætla að koma aftur, alla vegana,“ svarar Tobbi. „Þeir voru alveg dolfallnir,“ segir Hanný. „Já, menn eru svolítið hissa að koma þarna inn. Og dolfallnir bara,“ segir Tobbi hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Ferðaþjónusta Húnaþing vestra Landbúnaður Hestar Stangveiði Tengdar fréttir Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk Undirbúningur er hafinn að því að stórbæta aðstöðu ferðamanna við klettinn Hvítserk, helsta aðdráttarafl Húnaþings. Reisa á þjónustuhús, leggja göngustíga og smíða tröppur og verða bílastæðagjöld meðal annars nýtt til að standa undir kostnaði. 24. júní 2026 09:10 Gömlum súrheysturni breytt í heilsuhótel Gamall súrheysturn hefur fengið nýtt hlutverk og er nú heilsuhótel. 15. september 2018 20:15 Kastalinn geymir gögnin um Manchester-leikinn Skoskur kastalaturn er orðin ein svipmesta bygging á Vatnsnesi í Húnaþingi. 19. febrúar 2015 20:26 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Biður Jón afsökunar Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk Undirbúningur er hafinn að því að stórbæta aðstöðu ferðamanna við klettinn Hvítserk, helsta aðdráttarafl Húnaþings. Reisa á þjónustuhús, leggja göngustíga og smíða tröppur og verða bílastæðagjöld meðal annars nýtt til að standa undir kostnaði. 24. júní 2026 09:10
Gömlum súrheysturni breytt í heilsuhótel Gamall súrheysturn hefur fengið nýtt hlutverk og er nú heilsuhótel. 15. september 2018 20:15
Kastalinn geymir gögnin um Manchester-leikinn Skoskur kastalaturn er orðin ein svipmesta bygging á Vatnsnesi í Húnaþingi. 19. febrúar 2015 20:26