Innlent

Lög­reglan leitar að Cezary

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Cezary Kobiela sást síðast í gær.
Cezary Kobiela sást síðast í gær. Lögreglan

Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Cezary Kobiela, 15 ára. Hann sást síðast í gær í strætisvagni á leið frá Borgarnesi.

Cezary er um 178 sentimetrar á hæð, grannur og dökkhærður. Hann var klæddur í svarta úlpu með loðkraga og dökkar buxur.

Hann fór í strætó í gær suður til Reykjavíkur eða Akraness.

Þau sem vita eitthvað um ferðir Cezary eða vita hvar hann er niðurkominn eru beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 112.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×