Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Jón Þór Stefánsson skrifar 9. júlí 2026 08:00 Landsréttur tók fyrir gæsluvarðhaldsúrskurð mannsins. Vísir/Viktor Freyr Ungur maður er grunaður um fjöldamörg afbrot, þar á meðal hnífaárásir og heimilisofbeldi gegn móður sinni. Maðurinn er sagður ekki sýna iðrun þegar hann ræði brotin sem hann er sakaður um að hafa framið, heldur lýsi hann þeim án svipbrigða og segir að honum sé sama um áhrif þeirra á aðra.
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði á hendur manninum sem var kveðinn upp í maí, en birtist nýlega á vef dómstólanna. Sautján brot eru reifuð í úrskurðinum. Það elsta er frá því í júní í fyrra en það nýlegasta frá apríl síðastliðnum. Maðurinn er meðal annars sagður vera einn gerenda í stórfelldri líkamsárás í nóvember síðastliðnum þar sem brotaþoli sagðist hafa verið stunginn í höfuðið að tilefnislausu, og síðan hafi hann misst gleraugun sín og þá hafi verið stappað á þeim. Maðurinn neitaði að tjá sig um málið. Mánuðinn eftir var hann handtekinn grunaður um aðra stórfellda líkamsárás. Í því máli sögðu vitni að brotaþoli hafi dottið og skollið með hnakkann í stéttina eftir að veist var aðhonum, og þá hefði einnig verið í sparkað í höfuð hans. Vitnin sögðu umræddan mann vera gerandann, og við leit lögreglu kom í ljós að hann bar með sér hníf. Aftur neitaði hann að tjá sig um málið, en upptaka er til af atvikinu. Hótaði að stinga móður sína Í febrúar er maðurinn talinn hafa ráðist á móður sína í tvígang. Í fyrra skiptið er hann talinn hafa veist að móður sinni í anddyri lögreglustöðvar, fyrir framan lögreglumenn sem handtóku hann í kjölfarið. Þremur dögum síðar er maðurinn talinn hafa reynt að taka farsíma að móður sinni, og til þess hafi hann dregið hana úr sófa niður á gólf. Þá hafi hann einnig kastað vatnsflösku í ljósmyndaramma sem brotnaði. Móðirin tók atvikið upp á hljóðupptöku og leyfði lögreglunni að hlusta á. Þar heyrðist hann hóta að stinga móður sína. Sjálfur vildi maðurinn meina að móðir hans hefði beitt hann ofbeldi og að hann hafi ýtt henni meðan hún var að veita honum högg. Um hafi verið að ræða sjálfsvörn. Maðurinn er grunaður um að hafa framið hnífaárás í mars, en þá barst lögreglu tilkynning um mann sem var skorinn á hendi með hníf, og svo kom í ljós að hann var einnig með lítinn skurð á kvið. Brotaþolinn sagðist þekkja gerendurna í málinu, og að umræddur maður væri einn af þeim. Í skýrslutöku viðurkenndi maðurinn að hafa „slæsað hann“, hann hafi sett hnífinn í brotaþola einu sinni. Sagðist ætla að sprengja sprengju í lögreglubíl Síðar í sama mánuði var lögregla kölluð til vegna tilkynningar um að maðurinn hafi framið rán í verslun og beitt hníf við það. Öryggisvörður í versluninni mun hafa fylgst með honum og séð hann setja inn á sig vörur. Hann hafi ætlað að stoppa það, en þá hafi maðurinn dregið upp hníf og hótað að skaða hann, otað hnífnum að honum, og svo ráðist á hann. Maðurinn var handtekinn og í lögreglubílnum mun hann hafa sagt að hann ætlaði sér að drepa öryggisvörð. Þá sagðist hann vera með sprengju á sér og kvaðst hann ætla að sprengja hana í lögreglubílnum. Til viðbótar er maðurinn grunaður um eina árás gegn móður sinni til viðbótar, sem hann mun hafa framið í apríl. Og í sama mánuði hótað að stinga mann með hnífi og kastað flösku í hann. Sýnir ekki sektarkennd Í geðmati dómkvadds geðlæknis kemur fram að maðurinn hafi frá unga aldri verið í verulegum erfiðleikum með hegðun og atferli. Hegðun hans hafi verið markalaus, með slagsmálum og brotum á reglum samfélagsins. Hann er sagður ræða þau afbrot sem hann er sakaður um án þess að sýna iðrun og lýsa ofbeldisverkum án svipbrigða. Hann skýri að honum sé sama um áhrif þeirra á aðra. „Virðist ekki hafa sektarkennd gagnvart neinum þessara hluta. Hann skilur vel að brotin verði þau sönnuð á hann geta leitt til refsingar. Það er hins vegar ekki truflandi hugsun fyrir hann og ekki er að sjá að tilhugsun um fangelsi fæli hann frá þessum verkum,“ segir í úrskurðinum. Fram kemur að hann hafi skýr merki um andfélagslega persónuleikaröskun, en vegna ungs aldurs hans verður sú greining ekki sett. Þá er erfitt að segja hversu mikið af þessari hegðun hans sé litað af vímuefnaneyslu, „en ljóst að það er allnokkuð“. Brýnt sé að stöðva þann „vítahring ofbeldisverka og annarra afbrota sem hann er í“. Í áhættumati lögreglunnar var ástandið metið svo að ofbeldishegðun af hendi hans væri yfirvofandi og að umtalsverðar líkur væru á því að hann myndi beita lífshættulegu ofbeldi. Þá væru möguleg fórnarlömb hans nokkuð handahófskennd.
Lögreglumál Dómsmál Heimilisofbeldi Vopnaburður barna og ungmenna Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira