Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar 7. júlí 2026 15:02 Nýlegt bann við notkun MS Teams samskiptalausnarinnar í franskri stjórnsýslu er birtingarmynd nýrrar evrópskrar stefnu um stafrænt fullveldi og nýtt vaxtarskeið drifið af tæknigeiranum. Helsta rótin er bandaríska CLOUD Act löggjöfin frá 2018 og niðurstöður Draghi-skýrslunnar varðandi áherslur í atvinnustefnu Evrópu. Vald þess sem ræður skýinu Frönsk stjórnvöld tilkynntu ákvörðun sína seint í janúar á þessu ári. Í stað Teams mun frönsk stjórnsýsla taka upp franska lausn, Visio, sem verður hluti af stafrænu verkfærasafni ríkisins. Markmiðið er ekki aðeins að spara leyfisgjöld eða nota franskan hugbúnað af þjóðernisástæðum. Markmiðið er að tryggja öryggi, trúnað og stjórn á opinberum samskiptagögnum. Þetta kann að virðast léttvæg breyting. Við lítum fæst á samskiptaforrit sem veigamikinn þátt í innviðum ríkisvaldsins. En þegar nánar er að gáð kemur vægi þeirra í ljós. Á síðustu árum hafa samskipti, fundir, skjöl, heilbrigðisgögn, lögreglugögn, kennsla, rannsóknir og ákvarðanataka færst inn í kerfi sem eru í eigu örfárra tæknifyrirtækja, að stærstum hluta bandarískra. Það sem áður var geymt á innri gagnaþjónum er nú í síauknum mæli vistað í skýinu. Og sá sem ræður skýinu ræður meiru en við viljum kannski horfast í augu við. CLOUD Act, þúfan sem velti hlassinu Ein lykilástæða þess að þessi umræða hefur orðið svo áleitin í Evrópu er bandaríska CLOUD Act-löggjöfin frá 2018. Samkvæmt henni geta bandarísk yfirvöld, að vissum skilyrðum uppfylltum, krafið þarlend tæknifyrirtæki um gögn sem þau hafa í sinni vörslu, óháð því hvort gögnin eru vistuð innan eða utan Bandaríkjanna. Með öðrum orðum dugar ekki endilega að gögnin séu geymd í gagnaveri í Evrópu ef þjónustuaðilinn sjálfur er bandarískur. Frakkar eru þegar teknir að bregðast við þessu á viðkvæmum sviðum. Um árabil hefur verið gagnrýnt að heilsufarsupplýsingar (Plateforme des Données de Santé)væru hýstará Microsoft Azure. Gagnrýnin snerist ekki aðeins um tæknilegt öryggi heldur um lögsögu og fullveldi, það hvort viðkvæm heilsufarsgögn franskra borgara eigi að liggja á vefþjónum bandarísks fyrirtækis. Nú hefur verið ákveðið að færa þessi gögn yfir til fransks þjónustuaðila. Nýlega var svo ákvörðun tekin um að Microsoft Windows skuli skipt út fyrir Linux á 2,5 milljónum tölva franskra ríkisstofnana. Lögreglu- og öryggisgögn gera vandann enn augljósari. Slík gögn eru ekki venjulegar viðskiptaupplýsingar. Þau varða rannsóknir, brotaþola, sakborninga, vitni, eftirlit, landamæri og þjóðaröryggi. Ef ríki missir stjórn á slíkum gögnum eða verður háð erlendu fyrirtæki - sem háð er erlendu stjórnvaldi - um aðgang að þeim, er það ekki aðeins tæknilegt vandamál heldur snýst um fullveldi landsins og öryggi persónuupplýsinga borgaranna. Hver verða afdrif Microsoft Copilot innan Evrópu? Ákvörðun Frakka nú er þáttur í víðtækari stefnumótun innan Evrópu. ESB hefur á undanförnum árum sett lög og reglur sem eiga að minnka vald stóru tæknifyrirtækjanna og draga úr innilokun notenda. Data Act á að auðvelda flutning gagna og skipti milli skýjaþjónustuaðila. Digital Markets Act og Digital Services Act eiga að takmarka vald stærstu stafrænu hliðvarðanna. AI Act setur evrópskan ramma um notkun gervigreindar. Chips Act og EuroHPC-verkefni eiga að styrkja eigin innviði Evrópu í örflögum, ofurtölvum og gervigreind. Þessi stefnumörkun hefur einnig áhrif gagnvart almennum gervigreindarlausnum. Þótt Microsoft Copilot sé víða að ryðja sér til rúms í opinbera geiranum, þar á meðal hérlendis, er ljóst að mörg Evrópuríki stefna í aðra átt. Frakkland er ekki eitt um þessa stefnu. Danmörk hefur einnig hafið að færa opinberar stofnanir frá Microsoft Office yfir í opnar lausnir á borð við LibreOffice, ekki fyrst og fremst til að spara peninga heldur til að endurheimta stafrænt sjálfstæði og verða síður háð örfáum erlendum tæknirisum. Þýskaland hefur jafnframt hafið svipaða vegferð og Holland einnig. Efnahagslegt mikilvægi tæknigeirans Undanfarin ár hefur munurinn á hagvexti Bandaríkjanna og Evrópu að stórum hluta legið í tæknigeiranum. Bandaríkin hafa byggt upp fyrirtæki sem ráða yfir skýjaþjónustu, hugbúnaði, gervigreind, gagnainnviðum, örgjörvum, auglýsingatækni og stafrænum vettvöngum. Evrópa hefur að mestu aðeins verið notandi þessara innviða. Efnahagslegu áhrifin af breytingunum nú geta því orðið veruleg. Ef evrópsk ríki færa innkaup sín frá bandarískum lausnum yfir í evrópskar eða opnar lausnir getur það styrkt fyrirtæki á borð við OVHcloud, Scaleway, Outscale, Nextcloud, Mistral, Aleph Alpha og fjölda minni hugbúnaðarfyrirtækja. Opinber innkaup geta skapað markað, þekkingu og rekstrarhæfni sem annars myndi ekki verða til. Evrópa hefur til þessa fyrst og fremst verið neytandi bandarískrar tækni en markmiðiðnú er að verða framleiðandi, rekstraraðili og eigandi eigin innviða. Slík umbreyting hjá hinu opinbera mun vitanlega einnig hafa veruleg áhrif í einkageiranum. Þannig kann CLOUD Act á endanum að leiða af sér áskoranir í bandarísku efnahagslífi sem fæstir sáu fyrir um leið og ný tækifæri skapast í Evrópu. Ákvörðun Frakka um Teams er toppurinn á ísjakanum Stafrænt fullveldi er þannig líka kjarnaþáttur í atvinnustefnu. Það snýst ekki aðeins um að vernda gögn gegn CLOUD Act eða tryggja trúnað opinberra samskipta. Það snýst um hvort Evrópa ætli sjálf að byggja upp þau fyrirtæki, innviði og þekkingu sem verða undirstaða næsta vaxtarskeiðs. Draghi-skýrslan um samkeppnishæfni Evrópu fjallar um vaxandi framleiðni- og nýsköpunarbil milli Evrópu og Bandaríkjanna, sérstaklega í tæknigreinum, en niðurstaða hennar er að án framleiðnivaxtar geti Evrópa ekki fjármagnað velferðarkerfi sitt, varnir sínar og grænu umbreytinguna. Áherslan á stafrænt fullveldi er því um leið liður í að koma tillögum skýrslunnar varðandi aukna samkeppnishæfni í framkvæmd. Þetta þýðir vitanlega ekki að öll tæknin þurfi að vera evrópsk. En Evrópuríkin vilja taka stjórnina í eigin hendur. Þau vilja geta flutt gögn, skipt um þjónustuaðila, rekið eigin kerfi þegar nauðsyn krefur og tryggt að viðkvæm gögn borgaranna séu ekki háð lögum eða utanríkispólitískum ákvörðunum annarra ríkja.Þau vilja jafnframt efla eigin tæknigeira, rannsóknir og nýsköpun. Það að franska stjórnsýslan hætti að nota Microsoft Teams er því ekki ákvörðun sem tekin er í tómarúmi. Hún er liður í áætlun um að tryggja stafrænt fullveldi og efla um leið evrópska tæknigeirann. Markmiðið er ekki aðeins að vernda gögn heldur einnig að skapa nýtt vaxtarskeið í Evrópu. Höfundur er hagfræðingur og sérfræðingur í hagnýtingu gervigreindar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorsteinn Siglaugsson Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun