Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Smári Jökull Jónsson skrifar 9. júlí 2026 15:36 Skilaboð Írana eru skýr. Vísir/Getty Þúsundir Írana fylgja fyrrum æðstaklerkinum Ali Khamenei til grafar á lokadegi útfarar hans í borginni Mashhad í norðaustur Íran í dag. Fjórtán létust í árásum Bandaríkjanna síðustu nótt og þá hafa Íranir svarað með árásum gegn herstöðvum Bandaríkjanna í Kúveit, Katar og Barein.
Æðstiklerkurinn Ali Khamenei lést í árásum Bandaríkjanna og Ísraels í febrúar og hafa minningarathafnir verið haldnar síðustu daga. Síðasti dagur útfarar er í dag og fylgir gríðarlegur fjöldi fólks æðstaklerkinu fyrrverandi til grafar í heimaborg hans Mashhad. Á myndum má sjá fjölda fána og skilta með skýrum skilaboðum þar sem kallað er eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði drepinn. Gríðarlegur fjöldi er á götum Mashhad.Vísir/Getty Síðustu daga hefur skipum sem siglt hafa í gegnum Hormússund fækkað umtalsvert og er sú þróun mála strax farin að hafa áhrif á olíuverð. Nú eftir hádegið greindi byltingarvarðliðið í Íran svo frá því að tíu eldflaugum hafi verið skotið á herstöð Bandaríkjanna í Jórdaníu. Segja Íranir að herstöðin hafi verið eyðilögð en árásin hefur ekki verið staðfest. Repúblikanar þegja en demókratar æfir Árásir Bandaríkjanna héldu áfram síðustu nótt og segja stjórnvöld í Íran að fjórtán hafi látist í árásum síðustu tvo sólarhringa. Árásir Bandaríkjanna hafa beinst að skotmörkum í suðurhluta Íran, meðal annars höfnum, brúm og flugvöllum. Hafa Íranir svarað með árásum á hernaðarleg skotmörk Bandaríkjanna í Barein, Kúveit og Katar en Donald Trump sagði á blaðamannafundi á leiðtogafundi NATO í gær að vopnahlé ríkjanna milli væri komið á endastöð. Á vef BBC er greint frá að nýjum árásum Bandaríkjanna í Íran sé tekið fálega af þingmönnum Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. Demókratar eru hins vegar æfir og vilja að Hvíta húsið fái samþykki þingsins fyrir frekari hernaðaríhlutunum. Þá sagði utanríkisráðherra Íran, Abbas Arahgchi, að hann hafi rætt við kollega sína í Óman og Tyrklandi í síma og rætt mikilvægi þess að deilurnar yrðu leystar eftir diplómatískum leiðum og að koma yrði í veg fyrir að þær myndu stigmagnast enn frekar. Íranir væru þó reiðubúnir til að verja land sitt.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira