Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar 18. júlí 2026 08:02 Ég get ekki annað en dáðst að þeim sem berjast fyrir því mikla sanngirnismáli að áfengi sé fáanlegt víðar en það er í dag. Ég dáist að þeim fyrir þrautseigju gagnvart sínum málstað og kjark til að láta reyna á lög og reglur og stundum jafnvel á mörk heilbrigðrar skynsemi. Ég er þó einnig sannfærð um að erindi þeirra er hvorki þarft né til góðs. Áfengi er ekki venjuleg vara heldur þvert á móti skaðleg vara. Um það þarf enginn að efast, því ótal rannsóknir hafa verið gerðar og skýrslur gefnar út um skaðsemi áfengis. Í raun felst í því mikil mótsögn að áfengi skuli vera lögleg vara og áfengisneysla hluti af okkar daglega lífi. Það er hins vegar staðreynd og umræðan snýst ekki um að reyna að gera breytingar á því. Hún snýst um hvort aukið aðgengi auki neysluna og stundum, óskiljanlega, um það hvort aukið aðgengi sé þarft, sjálfsagt eða óumflýjanlegt. Aðgengi að áfengi er mikið í dag og ég held að fáir eigi í vandræðum með að verða sér úti um það. Allt bendir hins vegar til þess að með því að auðvelda kaup á áfengi enn frekar, til dæmis með fjölgun sölustaða og að geta fengið það borið heim í stofu til okkar, muni áfengisneysla þjóðarinnar aukast. Um það hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) til dæmis nýlega fjallað. Niðurstaða stofnunarinnar var skýr; breyting á fyrirkomulagi er líkleg til að auka neysluna. Það er mikil einföldun að láta umræðuna snúast um aðgengi að áfengi sem einhvers konar sanngirnismál. Það er jafnframt ólíðandi að ítrekað sé farið á svig við lög og reglur til að reyna að hafa áhrif á umræðuna og svo sagt: Þetta er staðan, látum löggjöfina endurspegla það. Málið snýst um hvað aukið aðgengi að áfengi þýðir fyrir samfélagið allt. Þykir okkur ásættanlegt að fórna samfélagslegum ávinningi til þess að mæta hagsmunum fárra? Ég vil að stjórnvöld hafi hagsmuni allrar þjóðarinnar í fyrirrúmi. Stjórnvöld setja stefnur sem þau segjast ætla að fara eftir, sem til dæmis lúta að því að efla heilsu frekar en að stofna henni í hættu. Þau setja líka reglur og lög sem miða að því einu að bjarga okkur frá skaða, til dæmis um bílbeltanotkun og brunavarnir. Áfengi er skaðleg vara og áfengisneysla hefur í för með sér alls konar heilsufarsleg vandamál, meðal annars auknar líkur á krabbameinum. Aukið aðgengi mun auka neyslu og aukin neysla hefur slæm áhrif á einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið allt. WHO hefur bent á að aukið aðgengi í gegnum netsölu og heimsendingar sé vaxandi áskorun fyrir lýðheilsu. Ég efast um að sú áskorun sé nokkurs staðar eins augljós og hér á landi í dag. Söluleiðum og sölustöðum áfengis, bæði á vegum ríkisins og einkaaðila, hefur snarfjölgað og aðgengi þar með orðið sífellt auðveldara. Það er í hróplegri andstöðu við þá stefnu sem WHO mælir með. Við tökum yfirleitt mark á alþjóðastofnunum og þeirra ráðleggingum í heilbrigðismálum. Ekki vegna hentugleika heldur vegna þess að þær byggja á bestu þekkingu. Fyrirkomulag á sölu áfengis er ekki sanngirnismál fyrir fáa aðila heldur risastórt samfélagsmál. Við viljum hafa aðgengi að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á, en til þess að við höfum efni á því verðum við að sinna forvörnum og vinna gegn því sem skaðar heilsu okkar. Þar hafa stjórnvöld stóru hlutverki að gegna og aðgengi að áfengi er þannig prófsteinn á raunverulegan vilja og kjark stjórnvalda í því að vinna gegn margþátta heilsufarslegum skaða fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið allt, samhliða því að passa upp á aurinn. Látum ekki hagsmuni fárra aðila skaða heildina. Hér eins og í svo mörgu á við að segja; lífið liggur við. Höfundur er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Þorvaldsdóttir Áfengi Netverslun með áfengi Krabbamein Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun