Innlent

Slasaðist al­var­lega við hey­skap

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Heyskapur í Búðardal í Dalabyggð. Mynd tengist frétt ekki með beinum hætti.
Heyskapur í Búðardal í Dalabyggð. Mynd tengist frétt ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm

Maður slasaðist alvarlega í vinnu við heyvinnuvél í grennd við Kirkjubæjarklaustur í gærkvöldi.

Lögreglan á Suðurlandi segir á samfélagsmiðlum að tilkynning hafi borist rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Maður hafði slasast við vinnu við heyvinnuvél.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og maðurinn var fluttur á bráðadeild.

Maðurinn er alvarlega slasaður en ekki í lífshættu. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn á tildrögum slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×