Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2026 22:33 Lionel Messi grét eftir tapið á móti Spáni í úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Getty/Maja Hitij Það verður algjörlega undir Lionel Messi sjálfum komið hvort hann vilji spila á Copa América sumarið 2028. Argentínska knattspyrnusambandið mun leyfa ofurstjörnunni að ákveða hvenær og hvort hann vilji keppa með landsliðinu að sögn forseta argentínska knattspyrnusambandsins.
Hinn 39 ára gamli Messi hefur ekki rætt framtíð sína með landsliðinu eftir frábæra frammistöðu sína á HM 2026, þar sem hann skoraði átta mörk og gaf fjórar stoðsendingar á leið Argentínu í úrslitaleikinn. „Þetta er algjörlega hans persónulega ákvörðun,“ sagði Claudio Tapia, forseti argentínska knattspyrnusambandsins, í samtali við TyC Sports þegar hann var spurður hvort Messi myndi spila á Copa América 2028. „Ég naut þess að horfa á hann á vellinum; hann var aðalmaður þessa heimsmeistaramóts, rétt eins og hann hefur verið í öllum keppnum sem hann hefur tekið þátt í. Árið 2022 vissum við ekki hvort hann myndi spila árið 2026. Hann sagði að hann tæki „einn leik í einu“ og við sáum hann í sínu besta formi, ef ekki því allra besta,“ sagði Tapia. Messi var valinn verðmætasti leikmaður HM 2022 eftir að hafa leitt þjóð sína til sigurs. Messi, sem vann Copa América 2021 og 2024, hefur leikið metfjölda leikja fyrir Argentínu, 207 talsins, og er markahæsti leikmaður þjóðarinnar frá upphafi með 125 mörk á 21 ári með landsliðinu. „Við ættum að vera stolt af honum. Megi hann halda áfram að njóta þess að spila fótbolta og við megum njóta þess að horfa á hann og megi hann taka þá ákvörðun sem hann telur rétta,“ sagði Tapia. Tapia vonast á meðan til að sannfæra þjálfarann Lionel Scaloni um að halda áfram við stjórnvölinn hjá Argentínu. Scaloni, en samningur hans rennur út í lok þessa árs, sagði eftir 1-0 tap liðsins gegn Spáni í framlengingu í úrslitaleik HM að hann myndi endurmeta framtíð sína. „Minn valkostur A, minn valkostur B og minn valkostur C er Scaloni,“ sagði Tapia. „Ég vil að hann haldi áfram; við viljum öll að hann haldi áfram. Ég verð að virða ákvörðun hans; leyfa honum að hugsa málið og taka þá ákvörðun sem hann telur rétta. Ég get ekki haldið honum föstum ef hann finnur ekki fyrir nauðsynlegum drifkrafti eða sér ekki leið til frekari velgengni,“ sagði Tapia.
Fótbolti HM 2030 í fótbolta Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti FH - Stjarnan | Hefja tímann undir stjórn Arons Pálmarssonar Handbolti Fleiri fréttir Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Real Betis - Real Madrid | Heldur Real Madrid sigurgöngunni áfram? Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Sjá meira