Ekki rétt að hann hafi „risið upp frá dauðum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2026 23:16 Nígeríski knattspyrnumaðurinn Chinedu Ozor er látinn eftir að hafa hnigið niður á vellinum í leik. @katsinaunited Nígeríski knattspyrnumaðurinn Chinedu Ozor er látinn eftir að hafa hnigið niður á vellinum í leik. Fjölmargar fréttir hermdu að Ozor hefði „vaknað“ aftur en það er ekki rétt.
Ozor, sem lék með nígeríska úrvalsdeildarliðinu Katsina United, var úrskurðaður látinn 27 ára að aldri eftir að hafa hnigið niður í æfingaleik fyrir tímabilið gegn Niger Tornadoes. Fréttir bárust síðar af því að Ozor hefði hreyft hönd sína í líkhúsinu, sem vakti vonir um að kraftaverk hefði átt sér stað. Sagan endaði þó ekki vel því Katsina United, félag Ozors, gaf það seinna út að ekkert væri til í fréttunum og að Ozor væri örugglega látinn. Samkvæmt spænska fréttamiðlinum „Mundo Deportivo“ hafði fyrrum félag Ozors, Heartland, staðfest batann með yfirlýsingu. In memory of Ozor Chinedu 🕯️ pic.twitter.com/1zei0TGFxu— Katsina United (@katsinaunited) August 13, 2026 „Áreiðanlegar heimildir staðfesta að Chinedu Ozor hafi verið fluttur úr líkhúsinu á sjúkrahús eftir að hafa sýnt merki um hreyfingu. Hann fær nú súrefni á meðan læknar vinna að því að lífga hann við,“ sagði að sögn í yfirlýsingunni. Hins vegar greindu margir nígerískir fréttamiðlar síðar frá því að kraftaverkabati hefði ekki átt sér stað og jafnvel Katsina United tilkynnti að Ozor væri látinn. „Chinedu Ozor lést í kjölfar atviksins. Fullyrðingar um að hann hafi síðar komist til meðvitundar eða „vaknað til lífsins“ eru rangar og ber að vísa þeim á bug,“ sagði félagið, samkvæmt nígeríska fréttamiðlinum Daily Trust. Ozor lék 190 leiki í nígerísku úrvalsdeildinni, efstu deild knattspyrnunnar í landinu. Hann var aðallega hægri bakvörður en lék einnig oft sem miðvörður. Ozor lék þó aldrei með nígeríska landsliðinu. View this post on Instagram A post shared by Soccer Forever (@soccerforever)
Nígería Fótbolti Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira