„Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 16:01 Fram undan er Gulur september. Á vinnustöðum verða hengdar upp gular slaufur, birt falleg skilaboð um geðrækt og jafnvel boðið upp á gula köku með kaffinu. Allt gott og blessað. En áður en við pöntum kökuna skulum við aðeins tala um hana Önnu. En komum fyrst einu á hreint. Það vaknar enginn á mánudagsmorgni og ákveður: „Jæja, í dag ætla ég að vera rosalega leiðinleg, erfið, pirruð og hvöss við þau sem vinna með mér.“ En svo er það hún Anna. Sem er allt í einu orðin voðalega leiðinleg í skapinu og erfið í samskiptum. Hún er þögul, hvöss og óþolinmóð. Hún svarar samstarfsfólki hranalega, bregst illa við ábendingum og á það til að rjúka upp án nokkurrar viðvörunar. Hún tekur hlutum persónulega, mætir sjaldan í föstudagskaffið og virðist almennt ekki hafa mikinn áhuga á að eiga góð samskipti við fólkið í kringum sig. En í stað þess að tala VIÐ Önnu förum við að tala UM hana. „Það er ekkert hægt að tala við hana Önnu lengur.“ „Hún tekur öllu sem árás.“ „Best að láta hana bara eiga sig.“ En Anna var ekki alltaf svona. Hún var hlý, hjálpsöm og virk í hópnum. Hún tók þátt í umræðum, mætti í kaffið og var auðveld í samskiptum. Við finnum að eitthvað hefur breyst. En við vitum ekki hvað liggur að baki. Áður en langt um líður er Anna ekki lengur samstarfsfélagi sem hefur breyst. Hún er orðin „erfið manneskja“. Vandamál sem þarf að leysa. Manneskja sem við viljum helst forðast. En hvað ef við stöldruðum við áður en við dæmum hana og spyrjum: “Hvað gæti verið að gerast hjá Önnu?” Við sjáum hegðunina en ekki það sem liggur að baki Breytingar á líðan birtast oft í hegðun og samskiptum áður en fólk segir frá því að eitthvað sé að. Manneskja sem áður tók virkan þátt getur dregið sig í hlé. Sú sem var þolinmóð verður kannski hvassari, viðkvæmari eða fýlugjörn. Einbeiting minnkar, mæting breytist og áhuginn á sameiginlegum verkefnum dvínar. Ekkert eitt þessara merkja segir okkur hvað er raunverulega að gerast. Og það er auðvitað ekki okkar að greina andlegan vanda hjá samstarfsfólki og ekki getum við gengið út frá því að öll erfið hegðun skýrist af vanlíðan. En við getum tekið eftir þegar manneskja er ekki eins og hún á að sér. Við vitum hvernig Anna hefur hagað sér. Við vitum hins vegar ekki hvað liggur að baki. Á slíkum stundum væri gagnlegt að nema staðar og tala VIÐ Önnu áður en við dæmum hana, förum að forðast hana og hættum smám saman að nenna henni. Samtalið sem við tökum ekki hverfur ekki Við veigrum okkur oft við viðkvæmum samtölum vegna þess að okkur er ekki sama. Við viljum ekki særa. Við óttumst viðbrögðin. Viljum ekki vera afskiptasöm, misskilja aðstæður eða gera málið stærra. Kannski vitum við einfaldlega ekki hvað við eigum að segja. Þess vegna hikum við. Setjum málið á ís og vonum að Anna lagist eða að einhver annar eigi samtalið við hana. En samtalið sem við tökum ekki, hverfur ekki. Það heldur áfram, bara án manneskjunnar sem það snýst um. Og við deilum upplifun okkar á Önnu erfiðu. Áður en við vitum af erum við farin að forðast Önnu, hætt að leita til hennar og farin að útiloka hana smám saman úr samtölum og verkefnum. Anna skynjar breytinguna og dregur sig jafnvel enn meira í hlé. Hún verður pirraðri og samskiptin erfiðari. Við lítum svo á versnandi viðbrögð hennar sem endanlega staðfestingu á því sem við vissum auðvitað allan tímann: „Anna er vandamálið. Hún er bara svo rosalega erfið“ Þannig getur lítið mál orðið stórt. Það sem hófst sem breyting á líðan eða samskiptum getur þróast í alvarlegan samskiptavanda, útilokun og jafnvel einelti. Við þurfum ekki finna hin fullkomnu orð Hugrakkt samtal þarf hvorki að vera stórt né formlegt. Það má meira að segja alveg vera pínulítið klaufalegt. Það getur byrjað á einfaldri setningu: „Anna mín, mig langar aðeins að tékka á þér.“ „Ég hef tekið eftir því að þú hefur verið meira út af fyrir þig undanfarið.“ „Mér finnst þú ekki alveg eins og áður. Hvernig hefurðu það?“ Við þurfum ekki að vera sérfræðingar eða sálfræðingar. Við þurfum ekki að vita hvað er að eða hafa lausnina tilbúna. Það eina sem við þurfum að gera er að staldra við, taka eftir, spyrja og hlusta. Umhyggja þýðir þó ekki að við eigum að samþykkja meiðandi framkomu. Vanlíðan getur hjálpað okkur að skilja hegðun en hún afsakar hana ekki. Við þurfum að geta gert tvennt í einu. Spurt: „Hvað er að gerast hjá þér?“ Og jafnframt sagt: „Hvernig þú talaðir við mig áðan var ekki í lagi.“ Við getum verið hlý og ákveðin. Sýnt skilning og sett skýr mörk. Skýrleiki er ekki harka og umhyggja felst ekki í því að láta allt óátalið. Og þá aftur að gulu kökunni Gulur september er mikilvægt tilefni til að tala um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir á vinnustöðum. Gula kakan má alveg vera á kaffiborðinu. Gulu slaufurnar mega hanga uppi og fallegu skilaboðin eiga fullan rétt á sér. En látum það ekki vera aðalatriðið. Ef Gulur september á raunverulega að skipta máli þarf hann líka að sjást í því hvernig við komum fram hvert við annað. Hvort við tökum eftir þegar samstarfsfélagi breytist. Hvort við nemum staðar áður en við dæmum. Og hvort við tölum VIÐ manneskjuna í stað þess að tala endalaust UM hana. Í vinnu okkar hjá Mental sjáum við aftur og aftur samskiptavanda sem er orðinn stór, sár og flókinn en hefði mögulega aldrei þurft að verða það. Vegna þess að enginn áttið samtalið við hanan Önnu á meðan að málið var enn lítið. Hjá Mental ráðgjöf höfum við ákveðið að nota Gulan september til að hefja samtal á vinnustöðum um samskipti, geðheilsu og ábyrgð okkar allra á að stíga inn. Ekki vegna þess að eitt samtal leysi allan vanda heldur vegna þess að samtal sem er tekið nógu snemma getur komið í veg fyrir að fjarlægð, vanlíðan og ágreiningur vaxi. Áskorunin til okkar allra í september er einföld: Tökum eftir þegar eitthvað breytist. Nemum staðar áður en við dæmum. Tölum við manneskjuna áður en við tölum um hana. Sýnum umhyggju, setjum mörk og stöðvum meiðandi samskipti. Og látum ekki eins og við sjáum ekki það sem við sjáum. Kannski er Anna einfaldlega orðin erfið. En áður en við afgreiðum hana þannig ættum við að minnsta kosti að spyrja hvað sé að gerast hjá henni. Höfundur er sálfræðingur og framkvæmdastjóri Mental ráðgjafar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun