Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. ágúst 2026 14:30 Kara Guðmundsdóttir vippar yfir Önnu Arnarsdóttur, markvörð Keflavíkur. kr Kara Guðmundsdóttir skoraði einkar laglega þrennu þegar KR vann stórsigur á Keflavík, 1-5, suður með sjó í Lengjudeild kvenna í gær.
Eftir þrjá leiki í röð án sigurs komst KR aftur á beinu brautina í gær. KR-ingar lentu reyndar undir strax á 4. mínútu þegar Rakel Inga Ágústsdóttir skoraði fyrir Keflvíkinga. Á 24. mínútu jafnaði Kara fyrir KR. Hún lék þá skemmtilega á varnarmann Keflavíkur og vippaði boltanum svo yfir markvörðinn Önnu Arnarsdóttur. Fjórum mínútum síðar var Kara aftur á ferðinni. Hún skoraði þá með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá hægri. Tveimur mínútum fyrir hálfleik, á markamínútunni sjálfri, þeirri 43., skoraði Kara svo þriðja og flottasta mark sitt. Hún lék þá á fjóra Keflvíkinga og vippaði boltanum svo aftur smekklega yfir Önnu. KR skoraði svo tvö mörk undir lok leiks. Þau gerðu Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir og Rakel Grétarsdóttir. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Það var boðið upp á alvöru markaveislu í Keflavík í kvöld. KR fór heim með 3 stig eftir frábæran 1-5 sigur. Kara Guðmunds með þrennu og Rakel Grétarsdóttir með mark og 3 stoðsendingar. Skýr skilaboð frá Meistaravöllum. Takk.Biðjumst velvirðingar á lýsandanum sem missti röddina… pic.twitter.com/m3FwtsxACd— Livey (@liveyevents) August 18, 2026 Kara, sem er fædd 2010, hefur skorað sjö mörk í fjórtán leikjum í Lengjudeildinni í sumar og er markahæst í liði KR. Í fyrra skoraði hún fjögur mörk í fjórtán leikjum í Lengjudeildinni. Hjá KR spilar Kara með eldri systur sinni, Kötlu. Kara hefur leikið þrettán leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað átta mörk. KR er í 2. sæti Lengjudeildarinnar með 26 stig, sex stigum á eftir toppliði Gróttu. Hörð barátta er um að komast upp í Bestu deildina en Haukar eru með 24 stig í 3. sætinu og Selfoss og HK eru bæði með 23 stig í 4. og 5. sætinu. Næsti leikur KR er gegn FHL á Meistaravöllum á laugardaginn.
Lengjudeild kvenna KR Keflavík ÍF Tengdar fréttir Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið KR gerði sig líklegra til að koma sér upp úr Lengjudeild kvenna með frábærum sigri á Keflavík í kvöld. Á sama tíma varð Tindastóll formlega fallið eftir tap gegn Haukum. 18. ágúst 2026 20:02 Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Frakkar vilja Infantino burt Fótbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Fleiri fréttir „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ Sjá meira
Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið KR gerði sig líklegra til að koma sér upp úr Lengjudeild kvenna með frábærum sigri á Keflavík í kvöld. Á sama tíma varð Tindastóll formlega fallið eftir tap gegn Haukum. 18. ágúst 2026 20:02