SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. ágúst 2026 17:51 Benedikt S. Benediktssyni er framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Vísir/Einar Samtök verslunar og þjónustu og netáfengisverslanir hafa sent alþingismönnum áskorun um að setja skýran lagaramma utan um vefverslun með áfengi. Þeir segja neytendur hafa þegar valið.
Samtökin og netverslanir með áfengi standa að heimasíðunni Valfrelsi.is. „upplýsingasíða um hvernig áfengissölu er háttað á Íslandi og hvernig megi skapa skýrari ramma utan um þennan markað og tryggja gott eftirlit með vefverslun með áfengi,“ eins og segir á síðunni. Á síðunni eru ekki tíundaðar þær netáfengisverslanir sem standa að framtakinu en um ræðir verslanir eins og Santé, Smáríkið, Nýja vínbúðin og fleiri. Í yfirlýsingunni segir hópurinn að löggjöfin hafi ekki fylgt þróun markaðarins eða hegðun neytenda. Nýleg könnun Gallup sýni að um þriðji hver Íslendingur hafi keypt áfengi í vefverslun og að hlutfallið nálgist tvo þriðju landsmanna á þrítugs- og fertugsaldri. Um varanlega breytingu á kauphegðun almennings sé að ræða. „Neytendur hafa þegar valið. Þriðji hver landsmaður hefur keypt áfengi í vefverslun og hlutfallið er enn hærra meðal yngra fólks. Löggjöfin er hins vegar barn síns tíma og tekur ekki mið af þeim markaði sem hefur orðið til með breyttri kauphegðun og auknum hraða og aukinni skilvirkni í flutningum á þeim tíma sem liðinn er frá því að Ísland gerðist aðili að EES-samningnum,“ er haft eftir Benedikt S. Benediktssyni, framkvæmdastjóra SVÞ. Ábyrgir rekstraraðilar hafi innleitt aldurseftirlit við kaup og afhendingu. Skýran lagaramma skorti til að tryggja að sömu kröfur gildi um alla sem selja áfengi til íslenskra neytenda og að stjórnvöld hafi fullnægjandi úrræði til eftirlits. „Það er breið samstaða um að vernda börn og ungmenni og vinna gegn skaðlegri áfengisneyslu. Skýrar reglur og skilvirkt eftirlit eru forsenda þess að þau markmið náist. Um smátt skref er að ræða og því getur ÁTVR áfram gegnt sínu hlutverki samhliða því að Alþingi setji vefverslun skýran og nútímalegan ramma,“ segir Benedikt.
Netverslun með áfengi Neytendur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira