Innlent

Rann­saka líkams­á­rás í mið­svæðis

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Nánari staðsetning og alvarleiki arásarinnar kemur ekki fram í dagbók lögreglu. Myndin er úr safni.
Nánari staðsetning og alvarleiki arásarinnar kemur ekki fram í dagbók lögreglu. Myndin er úr safni. Vísir/KTD

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í miðsvæðis í Reykjavík í gærkvöldi eða nótt. 

Þetta er meðal þeirra 73 mála sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti í gærkvöldi og í nótt. Einn sé vistaður í fangageymslu lögreglu.

Líkamsárásin átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi. Nánari staðsetning, alvarleiki árásarinnar né afleiðingar hennar eru tilgreind í dagbók lögreglu.

Í nægu var um að snúast í miðborginni en auk þessa hafði lögregla afskipti af tveimur í annarlegu ástandi. Annar hafði reynst illa áttaður og kaldur og var í kjölfarið fylgt heim. Þá barst lögreglu tilkynning um menn sem höfðu verið til ama og með hótanir framan við skemmtistað. Tilkynnt var um annan sem hafði verið með ógnandi hegðun í verslun og umferðaslys þar sem ekið var á brunahana.

Í umdæmi lögreglustöðvar tvö, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ, var tilkynnt um ölvaðan gest veitingastaðar sem áreitti bæði aðra gesti og starfsfólk hans. Hann eigi von á kæru vegna eignaspjalla en hann reyndist hafa skemmt muni á staðnum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði einnig afskipti af ökumönnum. Tveir voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis- og/eða fíkniefna og einn fékk sekt fyrir að aka án ökuréttinda




Fleiri fréttir

Sjá meira


×