Fótbolti

Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á upp­boði

Aron Guðmundsson skrifar
Mynd af atvikinu fræga í leik Argentínu og Englands á HM 1986. Fjörutíu ár liðin síðan þá.
Mynd af atvikinu fræga í leik Argentínu og Englands á HM 1986. Fjörutíu ár liðin síðan þá. Vísir/Getty

Boltinn úr einu sögufrægasta atviki Heimsmeistaramótsins í fótbolta frá upphafi hefur verið seldur á uppboði en var seldur fyrir töluvert minni upphæð en uppboðshaldarar vonuðust til.

Spilað var með umræddan bolta í leik á HM árið 1986 þar sem að Argentína hafði betur gegn Englandi, 2-1 í átta liða úrslitum.

Leikurinn er þekktastur fyrir mark Diego Maradona sem er eitt eftirminnilegasta atvik HM frá upphafi. Markið skoraði Maradona að eigin sögn með:  „hönd guðs.“ 

Í sama leik sýndi Maradona snilli sína með einu fallegasta marki HM er hann fór fram hjá hverjum leikmanni Englands á fætur öðrum áður en hann kom boltanum í netið fram hjá Peter Shilton í marki Englendingu. 

Boltinn sem notaður var í umræddum leik, og var í leik þegar að Maradon skoraði með „hönd guðs“, seldist á uppboði á dögunum fyrir um 3,3 milljónir Bandaríkjadala. Það nemur rúmum 400 milljónum íslenskra króna. 

Er það töluvert undir því sem að uppboðshaldarar reiknuðu með að boltinn færi á. Í kringum 10 milljóni Bandaríkjadala. 

Boltinn hefur lengst af verið í eigu Ali Bin Nasser, dómarans frá Túnis sem dæmdi umræddan leik. Boltinn var í hans eigu í rúma þrjá áratugi og árið 2023 skrifaði hann undir skjal þar sem að hann staðfesti uppruna boltans, að hann hefði verði notaður í þessum leik Englands og Argentínu. 

Bin Nasser seldi boltann þá á 2,37 milljónir Bandaríkjadala og hefur hann síðan þá skotið upp kollinum nokkrum sinnum á uppboði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×