Frumkvöðlar hér heima heiðraðir Aron Guðmundsson skrifar 7. september 2026 18:01 Fjölskylda, afkomendur og vinir Jóns S Halldórssonar við minningarskjöldinn sem var afhjúpaður honum itl heiðurs. Áletrunin á skildinum kemur frá fjölskyldu Jóns. Mynd: Bergur Bergsson Á dögunum var haldinn viðburður þar sem að frumkvöðlar að byggingu RallyCross brautarinnar í Hafnarfirði voru heiðraðir. Þrjátíu og fimm ár eru liðin síðan hún var tekin í notkun. Við sama tilefni var afhjúpaður minningarskjöldur um Jón S. Halldórsson, goðsögn í íslensku mótorsporti, sem lést í umferðarslysi árið 1991.
Á upphafstímum RallyCross hér á landi hófu ungir menn og konur að aka gömlum bílum í ýmis konar malargryfjum. Einnig var búinn til hringur, afmarkaður með dekkjum og steinum, á stöðum á borð við Móa á Kjalarnesi, í Mosfellsbæ og á Kjóavöllum við Rjúpnahæð. Er akstursíþróttin tók framförum og fór hópur manna af stað með þá hugmynd að byggja varanlega RallyCross braut. Eftir nokkra þrautargöngu fékkst að lokum leyfi fyrir braut hjá Hafnarfjarðarbæ. Brautin er svo byggð í nafni RallýCross deildar Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur og að þessu stóðu að mestu aðilar og fyrirtæki þeirra sem lögðu til fjármagn, vélar, bifreiðar, búnað og mannskap. Halldór Gíslason, arkitekt og rallymaður hannaði brautina eftir að hafa skoðað nokkrar brautir erlendis. „Í upphafði voru fremstir í flokki, ásamt Jóni S Halldórssyni, þeir Einar Gíslason frá ET dráttarbílum, Birgir Vagnsson frá Hjólbarðahöllinni, Ólafur Sigurjónsson frá Bílbót í Keflavík, Guðbergur Guðbergsson og Karl Gunnlaugsson heitinn sem afsalaði sér síðar hlut sínum til Einars,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum viðburðarins. „Að sjálfsögðu voru miklu fleiri aðilar sem komu að þessu með einum eða öðrum hætti, vinir og vandamenn þessara aðila, keppendur og aðrir sjálfboðaliðar. Allir þessir aðilar eiga miklar þakkir skildar fyrir þetta mikla framtak.“ Ofantaldir menn voru gerðir að heiðursfélögum í Akstursíþróttafélagi Hafnarfjarðar en sá klúbbur á brautina í dag. Klúbburinn hefur haldið úti mjög öflugu starfi. Á sama viðburði var afhjúpaður skjöldur til minningar um Jón S. Halldórsson sem var sjálfur mikill frumkvöðull í íslensku mótorsporti. Páll H. Halldórsson, goðsögn í íslensku mótorsporti og Ólafur Guðmundsson, margreyndur ökuþór og dómari í mótorsporti, við minningarskjöldinn um Jón S. HalldórssonMynd: Bergur Bergsson Jón lét lífið í umferðaslysi þann 17 apríl 1991 og náði því ekki að aka þessa braut en einn af draumum hans var að koma upp góðu svæði, þar sem ökumenn ungir sem aldnir gætu komið og æft sig, í samvinnu við tryggingarfélögin og um leið skilað betri ökumönnum út í umferðina.
Akstursíþróttir Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Markvörður Eista meiddur Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Mun Conte taka við Manchester United? Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Þrír framherjar sem Manchester United gæti sótt í janúar Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Gylfi búinn að vera rifbeinsbrotinn í þrjár vikur Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Sjá meira