Ógnandi, vopnaður hníf og í annarlegu ástandi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. september 2026 06:30 Lögreglan fylgdist grannt með ökumönnum. Myndin er úr safni. Vísir/Viktor Freyr Einn var vistaður í fangaklefa fyrir að hafa verið ógnandi og í annarlegu ástandi með hníf innandyra. Hann er sömuleiðis grunaður um vörslu fíkniefna.
Alls voru fjórir vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu klukkan fimm í morgun samkvæmt dagbók lögreglu. Lögreglan á varðsvæði eitt, sem nær yfir vesturhluta borgarinnar og Seltjarnarnes, hafði afskipti af óvelkomnum einstaklingi sem var vísað á brott úr mathöll. Sá gekk leiðar sinnar. Þá var annar óvelkominn gestur á matsölustað sem lögregla þurfti að vísa út. Á varðsvæði tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi þurfti einnig aðstoð lögreglu við að vísa óvelkomnum einstaklingi úr fjölbýlishúsi. Lögreglan hafði þá töluverð afskipti af ökumönnum sem óku of hratt eða voru taldir vera í óhæfu ástandi fyrir akstur. Á varðsvæði tvö var ökumaður stöðvaður fyrir að aka á 123 km/klst á götu þar sem hámarkshraðinn er 80 km/klst. Þess er getið að ökumaðurinn hafði verið með ökuréttindi í sólarhring. Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á varðsvæði þrjú, Kópavogi og Breiðholti, vegna ökumanns sem var talinn vera í annarlegu ástandi og ók næstum því á önnur ökutæki. Sá var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna, lyfja og áfengis. Sömuleiðis reyndist hann sviptur ökuréttindum og hafði gerst brotlegur við vopnalög. Ökumaðurinn var vistaður í fangaklefa og er málið til rannsóknar hjá lögreglunni.
Lögreglumál Kópavogur Reykjavík Garðabær Hafnarfjörður Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Fleiri fréttir Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Sjá meira