Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2026 23:21 Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistan, og Masoud Pezeshkian, forseti Íran. Pakistanar og Íranir hafa átt í góðu sambandi en Pakistan gerði nýverið varnarsamkomulag við Sádi-Arabíu og Tyrkland. Getty/Forsetaembætti Íran Erindrekar frá Pakistan komu í dag viðvörun á framfæri við ráðamenn í Íran. Klerkastjórnin var beðin um að koma böndum á Húta eftir umfangsmiklar árásir þeirra á Sádi-Arabíu, ellegar væri hætta á því að átök á svæðinu gætu stigmagnast verulega.
Íranir svöruðu viðvöruninni með því að segja að Hútar væru ekki handbendi þeirra. Heimildarmenn Reuters fréttaveitunnar í Íran segja hins vegar að ráðamenn þar hafi í síðustu viku beðið leiðtoga Húta um að gera árásir á Sádi-Arabíu. Í staðinn myndu þeir fá vopn og peninga og voru hermenn úr íranska byltingarverðinum sendir til Jemen til að aðstoða Húta. Hútar skutu svo í vikunni tugum dróna og eldflauga að herstöð og olíuinnviðum í þremur borgum Sádi-Arabíu. Að minnsta kosti 73 særðust í þessum árásum en Hútar segja að Sádar hafi í dag gert að minnsta kosti 54 loftárásir í Jemen. Hútar, sem stjórna stórum hluta Jemen og eru studdir af klerkastjórninni, og Sádar hafa lengi eldað grátt silfur saman. Sjá einnig: Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Átökin í Jemen hafa aukist töluvert að undanförnu. Fjögurra ára vopnahlé liðaðist í sundur í sumar þegar Hútar hófu árásir á olíuvinnsluinnviði og olíuflutningaskip Sádi-Arabíu, með því markmiði að koma í veg fyrir flutninga Sáda á olíu um Rauðahaf. Árás á einn, árás á alla þrjá Pakistanar skrifuðu nýverið undir varnarsamkomulag við Sádi-Araba og Tyrki. Samkomulag þetta snýst í grunninn um að verði gerð árás á eitt ríki komi hin ríkin því til aðstoðar. Varnarmálaráðherra Pakistan hefur sagt að árásir Húta á Sádi-Arabíu gætu leitt til virkjunar samkomulagsins. Embættismenn í Islamabad hafa þó samkvæmt frétt Reuters ítrekað að aðkoma þeirra myndi eingöngu felast í að verja Sádi-Arabíu. Samkvæmt Reuters komu embættismenn frá Sádi-Arabíu, Tyrklandi og Pakistan saman í Ryiadh og ræddu möguleg viðbrögð við árásum Húta. Ákveðið var að hermenn yrðu ekki sendir inn í Jemen og að ef gerðar yrðu árásir gegn Hútum yrði það gert af Sádum. Enn sem komið er hefur engin ákvörðun verið tekin um að Tyrkir eða Pakistanar geri árásir gegn Hútum, samkvæmt heimildum Reuters. Pakistanar og Tyrkir myndu eingöngu aðstoða Sáda við varnir. Klerkastjórnin í basli Stríð Bandaríkjanna gegn Íran hefur um nokkurt skeið í rauninni snúist um það hver geti þolað átökin lengur. Bandaríkjamenn hafa reynt að þvinga klerkastjórnina til uppgjafar með herkví og með því að reyna að einangra Íran frá öðrum ríkjum. Sjá einnig: Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Stríðið er þó verulega óvinsælt í Bandaríkjunum, eins og víðast hvar annars staðar, og klerkastjórnin virðist hafa séð tækifæri á því að koma höggi á Trump í þingkosningunum í nóvember með því að nota takmarkanir á siglingum um Hormússund til að hækka olíuverð um heiminn allan. Staða klerkastjórnarinnar hefur þó versnað töluvert, þar sem olíusala ríkisins er lítil sem engin. Á sama tíma hefur flæði olíuafurða gegnum Hormússund og um aðrar leiðir aukist.
Íran Pakistan Sádi-Arabía Jemen Tyrkland Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Sjá meira