Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. september 2026 15:36 Trump rétt áður en hann steig upp í pontu í New York. AP Photo/Seth Wenig Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl eins og hans er von og vísa í árlegri ræðu hans frammi fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segist standa frammi fyrir mikilli ákvörðun hvað varðar Íran, að gera samning við þarlend stjórnvöld eða eyða íslamska lýðveldinu. Þá gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum og forsetinn sagði Bandaríkjamenn bera höfuð og herðar yfir Kína þegar kemur að gervigreind, sem hann nefndi nýju nafni.
Þess er getið í helstu erlendum miðlum að forsetinn hafi haldið sig við marga kunnuglega talpunkta í ræðunni. Hann ítrekaði meðal annars rétt landa til þess að verja landamæri sín og þá fullyrti hann að stutt væri í að friður myndi nást í Úkraínu, án þess þó að víkja nánar að því. Þá hefur vakið sérstaka athygli erlendis tal Trump um Íran. Horfa má á ræðuna í heild sinni hér fyrir neðan en valdar klippur neðar í fréttinni. WATCH IN FULL: President Donald J. Trump delivers powerful remarks at the 81st session of the United Nations General Assembly in New York City pic.twitter.com/Ko5KWU2vwu— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) September 22, 2026 „Ég stend frammi fyrir stórri ákvörðun. Verður gerður samningur við Íran sem gerir þeim kleift að endurreisa og skapa mun stórkostlegra land en það var nokkru sinni áður, kannski eitt það stórkostlegasta í Mið-Austurlöndum eða jafnvel í heiminum? Eða á ég að gereyða íslamska lýðveldinu, og gera það hratt, og gefa þeim aldrei tækifæri til að drepa og eyðileggja aftur? Á ég að reka þá til helvítis án nokkurra möguleika á því að lifa af og án nokkurrar vonar um mikilfengleika í framtíðinni?“ .@POTUS: I have a big decision to make. Will a deal be made with Iran that lets them rebuild and create a far greater country than it ever was before — maybe one of the greatest in the Middle East or even the world? Or do I annihilate the Islamic Republic, and do it quickly,… https://t.co/RxA76o2HKU pic.twitter.com/0IWfkVxTyj— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) September 22, 2026 Þá vék hann sér einnig að stjórnvöldum í Kúbu. Sagði hann stjórnvöld þar hafa eytt áratugum í samstarfi og stuðning við róttæklinga í Bandaríkjunum. Ítrekaði hann að kommúnismi myndi aldrei eiga upp á borðið í Bandaríkjunum. Við þessi orð gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum. .@POTUS: The Cuban regime has also spent decades coordinating with left-wing radicals and Communist networks here in the United States. As our State Department has detailed, they have cultivated ties to subversive and radical groups such as the Communist Party USA, Antifa, and… pic.twitter.com/Bopz3W6sXz— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) September 22, 2026 Forsetinn vék orðum sínum þá einnig að gervigreind. Hann segir Bandaríkin hafna öllum tillögum „glóbalista“ um að ná böndum á gervigreindinni, sem hér eftir heiti ofurgervigreind (e. Super Intelligence). „Sá sem sigrar í gervigreind, SIGRAR! Við erum með forystu yfir Kína og öllum öðrum og ég mun sjá til þess að svo verði áfram.“ .@POTUS: The United States totally rejects any attempt to construct a globalist scheme of control for Artificial Intelligence — hereinafter officially be called ‘Super Intelligence.’Whoever wins AI, WINS! We are leading now over China, and everyone else — and I’m going to keep… pic.twitter.com/mWqQBkCBjl— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) September 22, 2026
Sameinuðu þjóðirnar Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Gervigreind Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira