Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar 23. september 2026 11:02 Haustlitirnir eru fallegir. Trén skarta gulu og rauðu og við stöldrum við til að njóta þeirra. Samt vitum við hvað þeir boða. Gróðurinn er að leggjast í dvala og fram undan er kaldur vetur. Þannig getur líka verið farið með pólitíkina. Falleg orð um hagræðingu og ábyrgð geta boðað harðan vetur á heimilum fólks. Í ágúst var tilkynnt um uppsagnir 86 starfsmanna Reykjavíkurborgar. Af þeim fengu 32 boð um ný eða breytt störf en 54 ekki áframhaldandi starf. Áður hafði hátt í tuttugu manns verið sagt upp í júní. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur síðan boðað frekari uppsagnir. Á heimilum þeirra sem missa vinnuna þarf áfram að greiða húsnæðislán eða leigu og kaupa í matinn. Börnin þurfa sitt og reikningarnir halda áfram að berast. Starfsfólkið sem eftir situr þarf á sama tíma að laga sig að breyttu skipulagi og velta því fyrir sér hvort röðin komi næst að því. Þannig berst óvissan langt út fyrir hóp þeirra sem fá uppsagnarbréfið. Borgaryfirvöld verða að fara vel með sameiginlega fjármuni okkar. Til þess þarf líka að meta hvað tapast þegar reynslumiklu starfsfólki er sagt upp og hvernig breytingarnar snerta þjónustuna við íbúana. Sparnaður á launalið segir ekki alla söguna. Fólkið sem þarf á þjónustunni að halda á rétt á skýrum svörum um hvað taki við. Nú hefur endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar óskað eftir upplýsingum um fjárhagsaðstoð borgarinnar, meðal annars sundurliðuðum eftir þjóðerni viðtakenda. Borgarstjóri hefur lýst stuðningi við athugunina og rætt mikilvægi þess að stuðningur sé ekki misnotaður. Tölfræði um þjóðerni getur hjálpað til við að greina hindranir sem fólk mætir og bæta stuðning við það. En þegar slíkri gagnaöflun fylgir tal um misnotkun verður að gæta þess að sá ekki tortryggni gagnvart heilum hópum. Þjóðerni einstaklings segir ekkert eitt og sér um þörf hans fyrir aðstoð eða heiðarleika. Að mínu mati er hætt við að þessi áhersla á þjóðerni viðtakenda ýti undir rasíska umræðu um fólk sem þegar stendur höllum fæti. Það er napurt að horfa á borgina segja upp starfsfólki á sama tíma og rætt er um að fólk festist ekki í stuðningskerfum. Hvar eru tækifærin fyrir það fólk? Hvernig hyggst borgin hjálpa því til að ná fótfestu á ný? Við þetta kemur ísdrottning ævintýranna upp í hugann, með valdasprota sem lætur kuldann breiðast út. Í Reykjavík tekur sá kuldi á sig hversdagslegri mynd: uppsagnarbréf og áhyggjur við eldhúsborðið. Ég vil að borgarstjórn mæti þessum veruleika með meiri hlýju og virðingu fyrir fólkinu sem ákvarðanir hennar snerta. Við þurfum ekki að sætta okkur við langan pólitískan vetur. Við getum staðið með starfsfólki, varið þjónustuna og hafnað því að fólk sé tortryggt vegna uppruna síns. Þannig vinnum við að Vori til vinstri. Höfundur er ritari Vors til vinstri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun