Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar 25. september 2026 08:01 Þessa dagana er vakin sérstök athygli víða um heim á táknmálum, heyrnarlausum, heyrnarskertum og fólki með samþætta sjón-og heyrnarskerðingu.. Hér heima gefst því gott tilefni til að staldra við og spyrja: Hvernig stendur íslenskt táknmál í raun og veru í dag? Hvað hefur gerst á undanförnum árum og hvert stefnum við? Ég skrifa þessa grein sem heyrnarlaus einstaklingur og táknmálstalandi manneskja sem hefur lengi haft mikinn áhuga á stöðu íslensks táknmáls og réttindum þeirra sem nota það. Ég sit ekki í stjórn Félags heyrnarlausra, er ekki í verkefnisstjórn vegna málstefnu íslensks táknmáls og þigg ekki fjármagn úr ríkissjóði vegna verkefna sem tengjast framkvæmd hennar. Ég hef því enga sérstaka innsýn „innan frá“ í það hvernig einstök verkefni ganga. En ég hef eitt mikilvægt plagg fyrir framan mig. Málstefnu íslensks táknmáls 2024–2027 og aðgerðaáætlun, sem Alþingi samþykkti 20. mars 2024. Hægt er að lesa aðgerðaáætlunina hér:https://www.althingi.is/altext/154/s/1298.html Og þegar ég les hana vakna margar spurningar. Metnaðarfull áætlun Aðgerðaáætlunin er að mörgu leyti mjög merkilegt skjal. Þar er fjallað um máltöku táknmálsbarna, menntun, rannsóknir og varðveislu íslensks táknmáls, jákvætt viðhorf til málsins, fjölgun þeirra sviða samfélagsins þar sem íslenskt táknmál er notað, lagaumhverfi og máltækni. Markmiðin eru því ekki lítil. Í málstefnunni segir meðal annars að stuðla eigi að þróun, rannsóknum, kennslu og útbreiðslu íslensks táknmáls og styðja við menningu og menntun táknmálsfólks og táknmálsbarna. Einnig er lögð áhersla á jafna þátttöku táknmálstalandi fólks í íslensku þjóðlífi og að íslenskt táknmál sé notað til jafns við íslensku. Þetta eru stór orð. Þess vegna finnst mér eðlilegt, nú þegar meira en tvö ár eru liðin frá samþykkt áætlunarinnar og árið 2027 nálgast, að við spyrjum: Hvar stöndum við? „Framkvæmd hafin“ – en hvað þýðir það? Það er ekki þannig að ekkert hafi verið gert. Í opinberu yfirliti Alþingis um framkvæmd ályktunarinnar er málstefna íslensks táknmáls merkt „framkvæmd hafin“. Þar er jafnframt farið yfir stöðu einstakra aðgerða. Yfirlitið má skoða hér:https://www.althingi.is/altext/157/s/0260.html Samkvæmt því yfirliti hafði framkvæmd hafist við fjölmargar aðgerðir, meðal annars varðandi snemmtæka íhlutun fyrir börn og fjölskyldur, samþættingu þjónustu, nám í kennslufræði táknmáls, ráðgjöf um máltöku, rannsóknir, SignWiki, upplýsingar um réttindi, viðburði, þýðingar, málföng og fjarnám. Það er jákvætt. En þá kemur næsta spurning: Hvað þýðir í raun að „framkvæmd sé hafin“? Þýðir það að sérstakt verkefni hafi verið sett af stað? Að starfshópur hafi verið skipaður? Að starfsmaður hafi verið ráðinn? Að fjármagn hafi verið tryggt? Að afurð sé þegar komin út? Eða getur verkefni fengið þessa merkingu vegna þess að starfsemi sem þegar var til staðar fellur að markmiði aðgerðarinnar? Ég myndi gjarnan vilja sjá meira en stöðumerkinguna „framkvæmd hafin“. Ég vil sjá hvað hefur verið gert, hver gerði það, hvað það kostaði og hver árangurinn er. Sum verkefni voru enn óhafin Opinbera yfirlitið vekur líka spurningar vegna þess að nokkrar aðgerðir voru þar enn merktar „framkvæmd ekki hafin“. Þar má meðal annars nefna færnimat í íslensku táknmáli á grundvelli evrópskra staðla, fræðsluefni um íslenskt táknmál, endurmenntun og sérhæfingu táknmálstúlka, endurskoðun laga um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, mat á lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls og þjálfun táknmálstalandi fólks í þeirri tækni sem þarf við uppbyggingu málheildar íslensks táknmáls. Sum þessara verkefna áttu samkvæmt áætluninni að hefjast þegar árið 2024 eða vera í gangi allt tímabil áætlunarinnar. Þess vegna væri fróðlegt að fá nýja stöðu á þeim nú. Hafa þau farið af stað síðan þetta yfirlit var tekið saman? Ef svo er, hvernig? Hvar fóru peningarnir? Svo er það fjármögnunin. Í tengslum við fjárlög 2024 kom fram að gert væri ráð fyrir fjármagni í málefni íslensks táknmáls, þar á meðal til aðgerða hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra vegna málstefnunnar. Einnig hefur Málnefnd um íslenskt táknmál fjallað um stöðuna og bent á að fjármögnun einstakra aðgerða sé ekki alltaf skýr. Ályktun Málnefndar um íslenskt táknmál um stöðuna árið 2025 má lesa hér:https://islenskan.is/wp-content/uploads/2019/01/Alyktun-malnefndar-um-islenskt-taknmal-2025-.pdf Sem almennur lesandi aðgerðaráætlunarinnar langar mig að geta séð framhaldið. Hversu miklu fjármagni hefur alls verið varið til framkvæmdar málstefnunnar frá árinu 2024? Hefur sambærilegt fjármagn fylgt henni árin 2025 og 2026? Hvaða aðgerðir hafa fengið fjármagn og hversu mikið? Hvað hefur verið framleitt eða byggt upp fyrir það fé? Og hvað með þá ábyrgðaraðila sem eru aðrir en Samskiptamiðstöðin? Hafa þeir fengið sérstakt fjármagn til að framkvæma sín verkefni? Þetta ætti að vera hægt að setja fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Hverjir vinna verkin? Önnur spurning sem mér finnst mikilvæg snýr að fólkinu sjálfu. Hversu margir heyrnarlausir eða aðrir táknmálstalandi einstaklingar koma að framkvæmd aðgerðaráætlunarinnar? Hafa orðið til ný störf vegna hennar? Hafa verið ráðnir táknmálstalandi sérfræðingar, verkefnastjórar, rannsakendur, kennarar, þýðendur eða annað starfsfólk? Ein af aðgerðunum segir beinlínis að táknmálstalandi fólk eigi að vera menntað og þjálfað í tækni sem notuð er við uppbyggingu málheildar íslensks táknmáls. Það eitt og sér kallar á spurningu: Hvar stendur það verkefni í dag? Aðgerðaáætlun sem snýst um framtíð íslensks táknmáls á ekki aðeins að skapa verkefni um táknmálstalandi fólk. Hún ætti einnig að skapa tækifæri til virkrar þátttöku fólks sem býr yfir málinu, menningunni, reynslunni og þekkingunni. Hver fylgir heildinni eftir? Við lestur áætlunarinnar sést að ábyrgðin dreifist víða. Þar koma við sögu ráðuneyti, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Háskóli Íslands, Rannsóknastofa í táknmálsfræðum, Málnefnd um íslenskt táknmál, Félag heyrnarlausra, skólar, sveitarfélög, RÚV og fleiri. En þá spyr ég: Hver heldur utan um heildarmyndina? Hver fylgist reglulega með því hvort verkefnin séu á áætlun? Hver kallar eftir skýringum ef verkefni fer ekki af stað? Hver fylgist með fjármögnuninni? Og hvar getur ég, sem almennur borgari og táknmálstalandi einstaklingur, séð á einum stað hvað er búið, hvað er í vinnslu og hvað er ekki hafið? Kannski vantar einfaldlega opinbert og aðgengilegt mælaborð fyrir allar aðgerðirnar. Þar gæti staðið við hverja aðgerð: Ábyrgðaraðili – staða – fjármagn – hvað hefur verið gert – næsta skref – áætluð verklok. Þá þyrfti enginn að giska. Þetta er of mikilvægt plagg til að gleymast Tilgangur minn með þessum spurningum er ekki að gera lítið úr þeirri vinnu sem hefur verið unnin. Ég veit vel að ýmislegt gott starf fer fram hjá stofnunum, félagasamtökum og einstaklingum. En einmitt þess vegna langar mig að sjá það. Aðgerðaáætlunin er of mikilvæg til þess að aðeins þeir sem eru inni í kerfinu viti hvernig henni miðar áfram. Hún var samþykkt af Alþingi. Hún varðar tungumál sem nýtur sérstakrar lagalegrar stöðu á Íslandi. Og hún varðar líf, menntun, réttindi, menningu og framtíð táknmálstalandi fólks. Ég er ekki við fundarborðið og má því spyrja hvað hafi orðið úr ákvörðunum sem teknar voru fyrir hönd táknmálssamfélagsins og af Alþingi. Mér finnst heilbrigt að fleiri spyrji líka: Hvað hefur verið gert?Hvað er í gangi?Hvað hefur ekki verið gert?Hversu miklu fé hefur verið varið?Hver ber ábyrgð?Hverjir hafa fengið störf og tækifæri vegna áætlunarinnar?Og síðast en ekki síst: Hvað hefur raunverulega breyst fyrir táknmálstalandi fólk? Málstefna íslensks táknmáls 2024–2027 er gott og mikilvægt plagg. Nú langar mig einfaldlega að sjá hvernig orðin á blaðinu eru að verða að veruleika. Höfundur hefur verið heyrnarlaus frá 8 ára aldri, kynntist táknmáli fyrst 10 ára og lærði það af öðrum heyrnarlausum jafnöldrum sínum. Hefur barist fyrir táknmáli á Íslandi, kennt táknmál og búið til táknmálsnámsefni, sagt fréttir á táknmáli RÚV. Setið á Alþingi. Hefur mikla þekkingu á táknmálsaðgengi og hjálpartækjum fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta. Höfundur er með alþjóðlega diplómu í frumkvöðlafræðum, leiðsögumaður í ferðaþjónustu með táknmál sem aðalmál og verkefnastjóri með IPMA D-vottun. Heimildir og nánari upplýsingar Málstefna íslensks táknmáls 2024–2027 og aðgerðaáætlun:https://www.althingi.is/altext/154/s/1298.html Opinbert yfirlit Alþingis um framkvæmd þingsályktana:https://www.althingi.is/altext/157/s/0260.html Ályktun Málnefndar um íslenskt táknmál um stöðuna 2025:https://islenskan.is/wp-content/uploads/2019/01/Alyktun-malnefndar-um-islenskt-taknmal-2025-.pdf Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar