Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar 29. september 2026 16:01 Vísir birti í síðustu viku fréttir af harðri gagnrýni samtaka bænda og Ingibjargar Davíðsdóttur þingmanns Miðflokksins á áform fjármálaráðherra um að leggja fram frumvarp um breytta tollflokkun á pitsuosti með íblandaðri jurtaolíu. Tollflokkunin hefur verið deilumál í rúm sex ár, eða frá því að fjármálaráðuneytið þrýsti á embætti ríkisskattstjóra að breyta tollflokkun pitsuostsins. Ráðuneytið og Skatturinn voru undir miklum þrýstingi hagsmunaaðila í landbúnaði, þ.e. Mjólkursamsölunnar og Bændasamtakanna, að breyta tollflokkuninni, þvert á álit tollflokkunarsérfræðinga Skattsins. Sagan af þessu máli er öll með nokkrum ólíkindum og þeir sem vilja kynna sér hana nánar geta lesið sér til hér. MS og BÍ þrýstu á yfirvöld að breyta tollflokkun ostsins og færa hann úr 21. kafla tollskrárinnar, tollflokki sem ekki ber tolla, í 4. kafla, tollflokk sem ber háa verndartolla. Ástæðan var að Mjólkursamsalan taldi að innflutningur á pitsuosti með íblandaðri jurtaolíu væri farinn að koma niður á sölu fyrirtækisins á rifnum osti. Málið varðar þannig vissulega hagsmuni MS og mjólkurbænda. En það varðar líka margvíslega aðra hagsmuni. Grafið undan alþjóðaviðskiptum Einstaka ríki hafa rúmar heimildir til að leggja gjöld á tollflokka eins og þau kjósa, nema þau hafi samið um annað t.d. í fríverzlunarsamningum. Svigrúm til að ákveða tollflokkunina sjálfa er hins vegar takmarkað. Ríki heimsins hafa nefnilega komið sér saman um tollflokkunarkerfi, hina samræmdu alþjóðlegu tollskrá sem er starfrækt samkvæmt samningnum um Alþjóðatollastofnunina (WCO), sem Ísland á aðild að. Samræmd tollflokkun er nauðsynleg til að alþjóðleg viðskipti virki eins og þau eiga að gera. Það eru hagsmunir Íslands sem ríkis sem á gríðarlega mikið undir milliríkjaviðskiptum að ríki heimsins virði skuldbindingar sínar samkvæmt WCO-samningnum. Annars getum við lent í því að mikilvægar útflutningsvörur okkar, sem samið hefur verið um tollfrelsi á, fái skyndilega á sig verndartolla af því að þær hafi verið endurtollflokkaðar eins og pitsuosturinn. Eftir að belgískur framleiðandi pitsuostsins kvartaði til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins yfir þeirri viðskiptahindrun, sem fólst í breyttri tollflokkun íslenzkra stjórnvalda á vörunni, leitaði ESB úrskurðar Alþjóðatollastofnunarinnar í málinu. Niðurstaða stofnunarinnar var að hin upphaflega tollflokkun á ostinum, í 21. kafla tollskrárinnar, væri sú rétta. Í framkvæmd hafa íslenzk tollayfirvöld ævinlega farið eftir úrskurðum WCO um tollflokkun vöru — nema í þessu eina tilviki. EES-samningurinn brotinn Samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið er tollnúmerið, sem pitsuosturinn ætti réttilega að flokkast í, án tolla. Eftir að Félag atvinnurekenda kvartaði til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) yfir ákvörðun íslenzkra stjórnvalda um að endurtollflokka vöruna, komst ESA að þeirri niðurstöðu að tollflokkunin væri röng og bryti í bága við EES-samninginn. Það blasir við að samkvæmt EES-samningnum geta aðilar hans ekki tekið einhliða ákvarðanir um að færa tilteknar vörur undan gildissviði samningsins með því að tollflokka þær ranglega. Ísland samdi á sínum tíma um að tilteknar vörur væru tollfrjálsar samkvæmt samningnum og samningar eiga að standa. Það veit auðvitað áðurnefndur þingmaður Miðflokksins, með sína löngu reynslu úr utanríkisþjónustunni. Vandinn í þessu máli er að innlendir dómstólar staðfestu núverandi tollflokkun — áður en niðurstöður WCO eða ESA um rétta tollflokkun lágu fyrir. Staðan er því sú að tollflokkun sem ekki samræmist þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands hefur viðgengizt hér á landi og því þarf að breyta. Stjórnvöld eiga ekki annan kost en að flytja lagafrumvarp um málið til að uppfylla þær skuldbindingar. Alþjóðlegar skuldbindingar eru ekki samningsatriði við einkaaðila Fjármálaráðuneytið hafði áður svarað Eftirlitsstofnun EFTA því að málið yrði tekið upp í viðræðum við Bændasamtök Íslands um endurnýjun búvörusamninga. Félag atvinnurekenda benti þá þegar á að það væri auðvitað ekki eitthvert samningsatriði við einkaaðila á borð við Bændasamtökin hvort Ísland færi eftir alþjóðasamningum á borð við EES-samninginn eða WCO-samninginn. Þar við bætist að ákveðið hefur verið að fresta endurnýjun búvörusamninganna um ár, en ESA þrýstir að sjálfsögðu á um skjótar úrbætur á samningsbrotinu. Hvaða hagsmunir eru í húfi? Ingibjörg Davíðsdóttir lét að því liggja í þingræðu um málið, samkvæmt frásögn Vísis, að með fyrirhuguðu frumvarpi ráðherra yrðu „sérhagsmunir örfárra innflytjenda matvæla teknir fram yfir almannahagsmuni.“ Það eru vissulega hagsmunir innflytjenda matvæla að farið sé að alþjóðlegum samningum um tollflokkun og fríverzlun. Það eru líka ríkir hagsmunir veitingamanna að fá gæðavöru á góðu verði, en í umsögn samtaka þeirra um fyrri áform fjármálaráðherra um að færa tollflokkun pitsuostsins til rétts horfs kom fram að ítrekuð gæðavandamál hefðu komið upp vegna rifna ostsins, sem þeim hefur staðið til boða frá Mjólkursamsölunni, „svo sem mygla, stökk áferð og litabreytingar, t.d. gulnun osts, sem hafa valdið umtalsverðu tjóni fyrirtækja og óhjákvæmilegri óánægju viðskiptavina.“ Í umsögn SVEIT kom fram að svo virtist sem innlendi framleiðandinn „geti ekki, eða vilji ekki, framleiða vöru með þeim eiginleikum sem krafist er og eru nauðsynlegir svo fyrirtæki á veitingamarkaði geti viðhaldið gæðum og stöðugleika í framboði sínu til viðskiptavina.“ Það liggur svo í augum uppi að það eru hagsmunir neytenda að veitingamönnum standi til boða vara, sem er bæði betri og ódýrari en það sem er í boði frá innlenda framleiðandanum sem gín yfir markaðnum fyrir rifinn ost. Einhver gæti meira að segja talið það hagsmuni Mjólkursamsölunnar að fá samkeppni, sem myndi hvetja fyrirtækið til að bæta vörur sínar og lækka verð. Ef veitingamenn eða gestir þeirra kaupa hins vegar þann málflutning talsmanna landbúnaðarins að innflutti osturinn sé lakari vara en framleiðsla MS, þurfa fyrirtækið og eigendur þess væntanlega ekki að hafa neinar áhyggjur af réttri tollflokkun, því að reynslan sýnir að ef innlendar vörur taka innfluttum fram að gæðum halda neytendur tryggð við þær, jafnvel þótt þær kosti meira. Síðast en ekki sízt eru það hagsmunir íslenzks samfélags í heild að samningar og reglur um alþjóðaviðskipti séu í heiðri höfð. Almannahagsmunirnir í þessu máli felast einmitt í því að reglurnar gildi jafnt um alla — líka þegar öflugir innlendir hagsmunir vilja annað. Félag atvinnurekenda, sem gætir hagsmuna innflytjenda í þessu máli, biður ekki um annað en að farið sé eftir þeim reglum sem hafa verið settar og þeim samningum sem hafa verið gerðir. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Tollflokkun pitsaosts Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun