Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar 30. september 2026 13:02 Ég var heppin á mínum uppvaxtarárum. Afi minn og amma voru bændur og ég ólst upp við góðan mat, ferskvöru og nóg af kjöti. Þegar ég var í námi í næringarfræði tók ég einu sinni viðtal við ömmu mína og skráði matarsögu hennar. Mig langaði meðal annars að vita hvað þau hefðu borðað, því langlífi hafði verið áberandi í fjölskyldunni, mikil matarástríða og áhugi á matargerð. Langamma mín og langafi náðu bæði háum aldri, nærri hundrað árum og amma mín fetaði síðar í þau skóspor en hún lést 99 ára. Það var gaman að hlusta á ömmu rifja upp matarhefðirnar frá æskuárunum. Þau borðuðu mikið af ferskum fiski, sérstaklega silungi, og lambakjöt var reglulega á borðum enda bjuggu þau í sveit. Langafi verkaði hákarl og amma lýsti því þannig að þegar þau krakkarnir voru úti að leika eða hjálpa til við störfin gátu þau alltaf náð sér í harðfisk eða hákarl ef þau urðu svöng. Það var nóg til af mat. Þegar amma og afi hófu síðan sinn eigin búskap hélt þessi matarmenning áfram. Amma sagði mér líka frá yndislegri hefð frá því hún var að alast upp. Það þurfti að eiga brauð og kökur fyrir vikuna og því komu konurnar í fjölskyldunni saman á föstudögum og bökuðu. Það sem var nauðsynlegt heimilisverk varð um leið að fallegri samverustund. Þegar ég hugsa um þetta í dag get ég næstum séð þær fyrir mér í eldhúsinu, spjallandi og hlæjandi yfir bakstrinum. Ég sé fyrir mér hlýjuna, finn næstum lyktina úr eldhúsinu og þessa félagslegu nánd sem fylgdi því að koma saman og útbúa mat fyrir fjölskylduna. En þegar ég vann verkefnið um ömmu mína fór ég að velta einu fyrir mér. Ef ég ætlaði að útskýra langlífið þeirra út frá mataræðinu, hvað ætti ég þá að velja? Var það fiskurinn? Kjötið? Heimagerði maturinn? Þau borðuðu líka reyktan mat, sykur og bakkelsi. Á móti kom að þau hreyfðu sig mikið og daglegt líf þeirra var allt annað en hjá flestum okkar í dag. Félagsleg nánd var til staðar og það skiptir máli. Ég gat því ekki tekið einn þátt út úr þessari sögu og sagt: Þarna er skýringin á langlífinu. Á námsárunum í HÍ var mikið lesið af rannsóknum og kannski var þetta eitt það mikilvægasta sem ég lærði: Þegar kemur að heilsu er sjaldnast hægt að taka eina breytu út úr heildarmyndinni og gera hana að skýringunni. Samt gerum við það oft. Kannski vegna þess að einfaldar skýringar eru þægilegri. Þær búa líka til miklu betri fyrirsagnir. Þess vegna staldra ég gjarnan við þegar fyrirsögn segir okkur að eitthvað sé sérstaklega hollt eða óhollt og spyr: Hvað var eiginlega rannsakað? Mér varð hugsað til ömmu og matarsögunnar hennar þegar ég sá nýlega fyrirsögnina: „Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem segja að þau borði rautt kjöt einu sinni í viku í það minnsta.“ Þetta vakti athygli mína. Ekki vegna þess að ég telji að það skipti máli hvernig kjöt er borðað s.s. unnið eða fersk afurð. Heldur vegna þess að mig langaði að vita hvort rannsóknin sem fréttin byggði á hefði í raun rannsakað hvort neysla á rauðu kjöti skýrði aukningu krabbameina hjá yngra fólki. Það gerði hún ekki. En hvað rannsakaði hún? Rannsóknin birtist í The Lancet Regional Health – Europe og byggir á NORDCAN, krabbameinsskrám Norðurlandanna. Rannsakendur skoðuðu þróun í nýgengi 18 tegunda krabbameina frá 2003 til 2022 hjá fólki á aldrinum 20–84 ára. Niðurstöðurnar eru mikilvægar og full ástæða til að taka þær alvarlega. Nýgengi 12 af 18 krabbameinum jókst marktækt hjá fólki á aldrinum 20–49 ára. Mest var aukningin í krabbameinum í ristli, nýrum og skjaldkirtli. Nýgengi ristilkrabbameins jókst að meðaltali um 2,7% á ári hjá 20–49 ára samanborið við 0,4% hjá 50–84 ára. Þetta finnst mér vera stóra fréttin. Við erum að sjá breytingu hjá yngra fólki sem við þurfum að skilja betur. En rannsóknin svarar ekki sjálfkrafa næstu spurningu: Af hverju? Og þarna skiptir aðferðafræðin máli Rannsakendurnir vissu hvaða krabbamein greindust, á hvaða aldri og hvernig nýgengið hafði þróast. En þeir vissu ekki hvað einstaklingarnir höfðu borðað. Þeir höfðu ekki einstaklingsbundna sögu um mataræði eða aðra áhættuþætti sem hægt var að tengja við krabbameinsgreiningarnar. Höfundarnir segja þetta sjálfir. Vegna þess að rannsóknin er lýsandi(population-based descriptive study) þá sé ekki hægt að segja út frá henni að hve miklu leyti þeir áhættuþættir sem þeir ræða skýri aukninguna. Þeir segja að þörf sé á rannsóknum með einstaklingsgögnum um áhættuþætti, þar á meðal offitu og aðra lífsstílsþætti. Það gerir rannsóknina ekki lélega. Hún er einfaldlega að svara ákveðinni spurningu. Hún sýnir okkur þróunina. Hún getur ekki sagt okkur hvað veldur henni. Þetta finnst mér vera mikilvægi munurinn. En rautt kjöt kemur samt fyrir í rannsókninni Og hér þarf líka að gæta sanngirni. Höfundarnir ræða mögulegar skýringar á þessari þróun og setja niðurstöðurnar í samhengi við það sem þegar er vitað. Rautt kjöt kemur því ekki úr lausu lofti í umfjölluninni. Höfundar rannsóknarinnar ræða það sem einn af mörgum mögulegum áhættuþáttum, ásamt meðal annars offitu, hreyfingu, reykingum og áfengi. En það er munur á því að ræða rautt kjöt sem mögulegan áhættuþátt út frá fyrri rannsóknum og því að þessi rannsókn hafi sýnt að rautt kjöt skýri aukningu krabbameina hjá yngra fólki. En það er munur á því að ræða rautt kjöt sem þekktan áhættuþátt út frá fyrri rannsóknum og að þessi rannsókn hafi sýnt að rautt kjöt skýri aukningu krabbameina hjá yngra fólki. En kjötneyslu og tengsl við krabbamein rannsakaði hún ekki. Erum við með alla þættina inni í jöfnunni? Þetta finnst mér miklu áhugaverðari spurning. Höfundarnir sjálfir telja líklegt að skýringarnar séu margar og mismunandi eftir krabbameinum. Þeir nefna breytingar á áhættuþáttum snemma á ævinni en líka breytingar á því hvernig og hversu mikið við greinum krabbamein. Þeir benda meðal annars á aukna notkun ómskoðana, tölvusneiðmynda og segulómunar og segja að næmari greiningaraðferðir geti hafa stuðlað að aukinni greiningu ákveðinna krabbameina. Þeir ræða offitu en benda jafnframt á að munurinn milli krabbameinstegunda sé slíkur að aukninguna sé ekki hægt að skýra með offitu einni saman. Þannig verður myndin fljótt flóknari.Hvað hefur breyst í mataræði okkar? Hreyfingu? Kyrrsetu? Líkamsþyngd? Áfengisneyslu? Umhverfi? Greiningaraðferðum? Og hvað með samspil allra þessara þátta yfir heila ævi? Þarna finnst mér við eiga að staldra við því við megum ekki vera svo fljót að velja okkur eina skýringu að við hættum að leita að hinum. Kannski lærði ég þetta fyrst af ömmu minni Þegar ég hugsa aftur til verkefnisins um matarsögu ömmu finnst mér svolítið skemmtilegt hvað það kenndi mér. Ef ég hefði aðeins horft á fiskinn hefði ég getað ákveðið að þar væri leyndarmálið á bak við langlífið. Ef ég hefði aðeins horft á kjötið hefði ég getað sagt það sama. En svo var þarna reykti maturinn, sykurinn og baksturinn. Og á móti kom mikil dagleg hreyfing, heimagerður matur, annað samfélag, meiri nánd og allt annar lífsstíll. Hvað skipti mestu máli? Ég veit það ekki. Og það er einmitt punkturinn. Heilsa okkar verður ekki til úr einni matartegund. Hún verður til úr erfðum, umhverfi, mataræði, hreyfingu, lífsstíl og ótal öðrum þáttum sem hafa áhrif hver á annan yfir heila ævi. Þess vegna finnst mér þessi Lancet-rannsókn mikilvæg. Hún bendir á þróun sem við ættum svo sannarlega að taka alvarlega: ákveðin krabbamein greinast í auknum mæli hjá yngra fólki á Norðurlöndunum. Næsta stóra verkefni er að skilja hvers vegna. Við eigum að rannsaka mataræðið og rauða kjötið. Við eigum að skoða offitu og hreyfingu. En við eigum líka að skoða umhverfi, áfengi, reykingar, greiningaraðferðir og aðra þætti sem kunna að hafa breyst milli kynslóða. Við þurfum alla myndina. Því stundum er vandamálið ekki að rannsóknin sé röng. Vandamálið er þegar umræða um hana lætur hana svara spurningu sem hún rannsakaði aldrei. Höfundur er næringarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elísabet Reynisdóttir Matur Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun