Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar 30. september 2026 15:00 Sjálfsagt er það einhver tegund af mótþróaröskun að þverskallast við að spila golf með rúmlega þrjátíu í forgjöf ár eftir ár án þess að fleygja settinu út í buskann og leggja golfhanskann á hilluna. Sannleikurinn – eða upplifunin – er hins vegar þessi: Ég finn að golfið gerir mér gott. Útiveran, hreyfingin og félagsskapurinn eru nærandi fyrir líkama og sál. Metnaðarleysið lýsir sér best í því að tveir fuglar á ári veita mér ómælda ánægju. Það er ekki svo langt síðan golf var jaðaríþrótt fárra hér á landi. Nú eru um 33.600 kylfingar skráðir í íslenska golfklúbba og væru eflaust fleiri ef klúbbarnir gætu tekið við öllum sem vilja ganga í þá. Vöxturinn er dæmalaus: skráðum kylfingum hefur fjölgað um nær 90 prósent frá árinu 2019. Lýðheilsuátak lækna Það er ef til vill ekki á allra vitorði að upphaf golfíþróttarinnar á Íslandi má að nokkru rekja til lýðheilsuátaks tveggja lækna. Þegar Golfklúbbur Íslands var stofnaður árið 1934 voru læknarnir Gunnlaugur Einarsson og Valtýr Albertsson þar fremstir í flokki. Þeir höfðu háleitar hugmyndir um áhrif golfiðkunar á heilsu landsmanna. Í tímaritinu Kylfingi árið 1944, þegar klúbburinn varð tíu ára, er rifjað upp að læknarnir hafi viljað draga menn „út úr daunillri reykjasvælu vindlinganna á heimilum þeirra, og út í guðs græna náttúruna“. Þar áttu menn að njóta fagurs umhverfis og hreyfingar, gleyma hversdagslegu amstri og fá jafnvel bót meina sinna. Gunnlaugur „hugðist lækna þannig ótætis kvefið, sem alltaf fyllir nef manna og hálf, svo þeir fylltu aftur biðstofu hans og gáfu honum ekki matarfrið, en Valtýr hugðist lækna á grasinu hálfónýta maga og þarma, svo hann fengi frið til þess að lækna önnur mein manna, á meðan hinir berðu bolta á golfvellinum,“ eins og segir í tímaritinu. Það má alveg brosa út í annað yfir þessum texta. En hugmyndir læknanna hafa elst ótrúlega vel. 31,2 milljarðar Golfsamband Íslands og KPMG kynntu á dögunum greiningu á samfélagslegu virði golfíþróttarinnar á Íslandi. Þar er niðurstaðan stór í sniðum: Samfélagslegt virði golfs er metið á 31,2 milljarða króna á ári. Ég kann engin skil á þeim reiknikúnstum sem gefa þá niðurstöðu að þar af felist 15,7 milljarðar í aukinni vellíðan og lífsgæðum, 11,7 milljarðar í jákvæðum áhrifum á heilsu og framleiðni og 3,8 milljarðar í svokölluðum samfélagslegum sparnaði. Í greiningunni kemur líka fram að útgjöld vegna golfiðkunar séu metin á 15,7 milljarða króna. Niðurstaðan er því sú að hver króna sem fer til golfiðkunar skili um tveimur krónum í samfélagslegum verðmætum. Þetta eru stórar tölur sem sjást hvorki í heimilisbókhaldi né ríkisreikningi. Greiningin var unnin í samstarfi við Finnish Society of Sport Sciences og byggir á svokallaðri SROI-aðferðafræði, þar sem reynt er að meta samfélagslega ávöxtun fjárfestinga og útgjalda. Finnarnir beittu sömu aðferðafræði við sambærilega rannsókn á virði golfs í Finnlandi. Niðurstöður beggja rannsókna eru sláandi líkar, enda kemur finnska stofnunin að íslensku greiningunni og aðferðafræðin er náskyld. Íslenska rannsóknin notar hins vegar íslensk gögn, meðal annars svör 1.897 þátttakenda úr landskönnun um heilsu, hegðun og líðan. Merkilegastir að mínum dómi eru 15,7 milljarðarnir sem sagðir eru vera virði aukinnar vellíðunar og lífsgæða kylfinga. Sú tala er nefnilega nákvæmlega sú sama og áætluð heildarútgjöld kylfinga. Það er ekki tilviljun. Aðferðin gengur út frá því að það sem kylfingar eru reiðubúnir að greiða fyrir íþróttina endurspegli peningalegt virði þeirrar ánægju og vellíðunar sem þeir fá í staðinn. Finnsku rannsakendurnir viðurkenna sjálfir að útgjöldin mæli vellíðan ekki beint. Þetta er allt dálítið loðið og teygjanlegt. Hvar er til dæmis frádrátturinn vegna þeirra kylfinga sem ganga sneyptir og vansælir af velli? Ekki 30 milljarðar í ríkissjóð Ef ég greiði árgjaldið í klúbbinn minn, kaupi bolta, tí og annan búnað, fæ ég vonandi ánægju sem mér finnst peninganna virði. Það er samt ekki sjálfgefið. Útgjöld mín fara jafnframt inn í atvinnulífið og skapa þar tekjur og störf. Sé hvoru tveggja talið til samfélagslegs virðis verður talan fljótt há. Það þýðir ekki að ríkissjóður hafi sparað samsvarandi fjárhæð. Golfsambandið hefur sagt að golfið geti skilað ríkinu um 30 milljarða króna sparnaði vegna jákvæðra áhrifa á heilsu og líðan. Tölurnar í greiningunni sjálfri styðja ekki þá fullyrðingu. Þar eru 3,8 milljarðar sérstaklega flokkaðir sem samfélagslegur sparnaður. Heildartalan, 31,2 milljarðar, er hins vegar mat á samfélagslegu virði af ýmsum toga. En jafnvel 3,8 milljarðana má ekki lesa eins og þá sé hægt að finna á sérstökum tekjulið í ríkisreikningi. Þar er um að ræða reiknaðan ávinning sem meðal annars tengist heilsu, vinnufærni og minni kostnaði samfélagsins. Og kylfingar stunda ekki aðeins golf. Í finnsku rannsókninni sögðust nær níu af hverjum tíu kylfingum stunda aðra hreyfingu samhliða golfinu. Því er erfitt að segja hversu stóran hluta af betri heilsu og meiri hreyfingu þeirra megi rekja til golfsins sjálfs. Fólk sem kýs að stunda golf kann einfaldlega að vera líklegra en annað fólk til að hreyfa sig yfirleitt. Sérstaða golfsins En golf getur svo sannarlega verið heilsubót. Vísindarannsóknir á golfi og líkamlegri heilsu hafa sýnt að íþróttin getur stuðlað að ráðlagðri hreyfingu og tengist jákvæðum áhrifum á ýmsa þætti líkamlegrar heilsu. Golf hefur auk þess þá sérstöðu meðal íþrótta að hægt er að stunda það langt fram eftir aldri – og jafnvel bæta árangurinn fram að síðasta hring. Hvort sem leiknar eru níu eða átján holur þýðir það margra kílómetra göngu, nokkurra klukkustunda útiveru og samveru með öðru fólki. Gunnlaugur og Valtýr höfðu á sínum tíma hvorki SROI-líkön né Excel-reikninga og hefðu líklega ekki látið sér detta í hug hugtak eins og samfélagslega arðsemi. Þeir sáu einfaldlega fólk sem sat heima í vindlingareyk og töldu að því myndi líða betur ef það færi út undir bert loft, hreyfði sig, nyti náttúrunnar og gleymdi amstri hversdagsins um stund í góðum félagsskap með kylfu og kúlu. Vitaskuld höfum við nærri öld síðar miklu meiri þekkingu á gildi hreyfingar, útiveru og félagslegra samskipta fyrir heilsu og líðan, að ég tali nú ekki um skaðsemi reykinga. Hvort hægt sé að setja nákvæmlega 31,2 milljarða króna verðmiða á ávinninginn er önnur saga. Og hvort golfið hafi reynst jafn áhrifarík lækning við „hálfónýtum maga og þörmum“ og Valtýr læknir vonaðist til á enn eftir að sannreyna. Golfsambandið gæti gengist fyrir könnun! Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun