Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar 1. október 2026 16:32 Sjónvarpið með stóru essi varð sextugt í gær og af því tilefni var sýndur sérstakur afmælisþáttur í gærkvöldi þar sem stiklað var á stóru í sögu miðils sem hefur líkast til verið einn áhrifamesti fjölmiðill landsins frá því fyrstu útsendingar hófust. Ég geri mér fulla grein fyrir þeim mikla vanda að freista þess að gera sextíu ára sögu Sjónvarpsins viðhlítandi skil á einni klukkustund. Þúsundir hafa komið að dagskrárgerð og vandinn við að velja fólk og efni blasir við öllum. Margt var vel valið. Ýmsir frumherjar og eftirminnilegar persónur fengu sinn sess. Hinrik Bjarnason, Magnús Bjarnfreðsson, Markús Örn Antonsson, Egill Eðvarðsson, Hermann Gunnarsson, Svala Thorlacius, Sigrún Stefánsdóttir, Laddi og Edda Björgvinsdóttir voru meðal þeirra. Sjálfum fannst mér umgjörðin full létt í samræmi við tilefnið. Á köflum, sérstaklega í upphafi, minnti hún helst á áramótaskaup, með dönsum, frumsömdum lögum og textum og mikilli áherslu á skemmtiefni. Fyrir vikið varð yfirferðin að mínum dómi yfirborðskenndari en efni stóðu til. En það er huglægt mat. Öðrum kann að hafa fundist þessi léttleiki hæfa afmælinu vel. Hitt er umhugsunarefni: Hverjir voru valdir til að segja þessa sextíu ára sögu – og hverjir lágu óbættir hjá garði? Ómar Ragnarsson kemur fyrstur upp í hugann. Ómar var raunar ekki með öllu fjarverandi. Rödd hans heyrðist í gömlu fréttainnslagi en maðurinn sjálfur sást ekki og honum voru engin skil gerð. Það er merkileg fjarvera. Fáir hafa komið jafn víða við í sögu íslensks sjónvarps. Ómar var skemmtikraftur, dagskrárgerðarmaður, fréttamaður og ferðalangur um landið. Stiklur hans sýndu Íslendingum landið með nýjum augum og síðar varð náttúruvernd snar þáttur í starfi hans. Ferill hans spannar stóran hluta af sögu Sjónvarpsins sjálfs. Andrés Indriðason var heldur ekki nefndur. Hann tilheyrði fyrstu kynslóðinni og starfaði áratugum saman við fjölbreytta dagskrárgerð. Barnaefni, viðtöl, skemmti- og fjölskylduþættir. Andrés kom víða við og setti svip á íslenska sjónvarpshefð meðan hún var enn að slíta barnsskónum. Sama á við um Tage Ammendrup. Hann var einn þeirra frumkvöðla sem fengu það verkefni á bernskuárum miðilsins að búa til íslenskt sjónvarp án þess að nokkur íslensk sjónvarpshefð væri til. Hann kom að fjölbreyttri dagskrárgerð, allt frá barnaefni til tónlistar- og skemmtiþátta. Tage tók þátt í að móta miðilinn sjálfan. Bryndís Schram varð eitt þekktasta andlit fyrstu ára Sjónvarpsins. Hún tilheyrði þeirri kynslóð sem kynnti þjóðinni ekki aðeins nýja þætti heldur alveg nýjan fjölmiðil. Fyrir heila kynslóð er hún órjúfanlegur hluti fyrstu ára íslensks sjónvarps. Ólafur Ragnarsson fékk heldur enga eiginlega umfjöllun. Honum brá fyrir í gömlu myndefni, meðal annars þar sem hann kynnti aukafréttatíma, og sást eitt augnablik að tjaldabaki. Nafn hans var hins vegar aldrei nefnt. Ólafur var þulur, stjórnandi og dagskrárgerðarmaður frá fyrstu árum Sjónvarpsins og tilheyrði hópnum sem mótaði þennan nýja miðil. Þá er erfitt að ganga fram hjá Bjarna Felixsyni – Bjarna Fel. Í áratugi var hann eitt þekktasta andlit og ein kunnasta rödd íþróttasjónvarps á Íslandi. Enski boltinn og stórir íþróttaviðburðir tengdust honum í hugum heilla kynslóða. Jónas R. Jónsson á líka heima í þessum hópi. Hann setti sterkan svip á tónlistar- og skemmtiefni Sjónvarpsins um langt árabil og varð eitt kunnasta andlitið á skjánum. Jónas var auk þess nátengdur íslensku tónlistarlífi og brúaði þannig bilið milli þess og Sjónvarpsins. Þegar saga tónlistar í íslensku sjónvarpi er rifjuð upp er erfitt að ganga fram hjá honum. Síðast en ekki síst þarf að nefna Hrafn Gunnlaugsson. Sjónvarpið var ekki aðeins fréttir, íþróttir og skemmtiþættir. Það var um áratugaskeið mikilvægur vettvangur íslenskrar leiklistar og leikins sjónvarpsefnis. Hrafn var meðal þeirra sem könnuðu hvað hægt væri að gera með miðilinn, listrænt og efnislega. Verk hans vöktu oft deilur en spor hans í íslenskri sjónvarps- og kvikmyndagerð eru djúp og eftirminnileg. Auðvitað mætti nefna fleiri. Um leið og eitt nafn er dregið fram vaknar spurning um annað. En í þessu greinakorni er ég alls ekki að velja besta eða vinsælasta sjónvarpsfólk Íslandssögunnar. Ég velti því aðeins upp hverjir skildu eftir sig svo djúp spor í sögu Sjónvarpsins að fjarvera þeirra vekur athygli þegar sextíu ára saga miðilsins er rifjuð upp. Svarthvíta íslenska sjónvarpið sem birtist okkur fyrst 30. september 1966 var fjarri því að vera fullkomið. En það var dásamleg byrjun á nýjum tíma, þrátt fyrir snjókomuna á skjánum og „Afsakið – hlé“-skiltin sem birtust fulloft. Íslenskt sjónvarp varð til í höndum fólks sem hafði engar íslenskar fyrirmyndir til að styðjast við og þurfti að finna upp fréttatímann, barnaefnið, skemmtiþáttinn, viðtalið og sjónvarpsleikritið. Eða með öðrum orðum: að finna út hvernig ætti að tala við þjóð í gegnum litla myndavél sem allt í einu var komin inn á íslensk heimili í formi mublu með leiftrandi skjá. Og við börnin sátum límd við skjáinn yfir Dýrlingnum og teiknimyndunum um Flintstone-fjölskylduna, Denna dæmalausa, Tom og Jerry. Nokkrir þeirra sem tóku þátt í þessu brautryðjendastarfi voru nefndir í afmælisþættinum í gær. En ekki allir. Ómar Ragnarsson, Andrés Indriðason, Tage Ammendrup, Bryndís Schram, Ólafur Ragnarsson, Bjarni Felixson, Jónas R. Jónsson og Hrafn Gunnlaugsson skildu öll eftir sig djúp spor.Þögnin um þau segir líka sína sögu. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður, meðal annars í Sjónvarpi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Ríkisútvarpið Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun