Skoðun

Hver kennir okkur að hugsa?

Sigrún Ólafsdóttir, Rannveig Björk Þorkelsdóttir og Ingibjörg Ágústsdóttir skrifa

Flest okkar muna eflaust eftir einhverjum ákveðnum kennara frá skólagöngunni. Þeim sem fann aðra leið til að útskýra þegar við skildum ekki, tók spurningarnar okkar alvarlega eða hvatti okkur til að halda áfram þegar við vorum við það að gefast upp.

Það er auðvelt að hugsa um kennslu sem miðlun þekkingar: kennarinn veit eitthvað, nemandinn veit það ekki enn og svo færist þekkingin á milli. Í raun er þetta sjaldnast svo einfalt, allra síst í háskóla.

Við sem kennum við háskóla sjáum reglulega rök sem virðast sannfærandi en standast ekki nánari skoðun. Heimildin segir annað en haldið er fram. Gögnin gefa minna tilefni til fullyrðingar en textinn gefur í skyn. Stundum er svarið meira að segja mjög vel orðað, sem getur gert það enn erfiðara að koma auga á vandann. Þá þarf að spyrja: Hvernig veistu það? Þetta er líka grundvallarspurning í rannsóknum. Hvaða gögn styðja niðurstöðuna? Er önnur skýring möguleg? Hversu örugg getum við verið? Og stundum sú óþægilegasta: Hvað ef við höfðum einfaldlega rangt fyrir okkur?

Háskólanám snýst því ekki bara um að tileinka sér það sem þegar er vitað. Nemendur þurfa líka að kynnast því hvernig þekking verður til, hvernig gagna er aflað, hvernig tilgátur eru settar fram og prófaðar og hvers vegna það gerist að stundum þarf að endurmeta það sem áður var talið rétt.

Þegar svarið er ekki til

Prófessorar kenna á fræðasviðum sem þeir rannsaka sjálfir. Það sem gerist í rannsóknum ratar því inn í kennsluna. Ný niðurstaða getur breytt því sem kennt var fyrir fáeinum mánuðum, spurning úr kennslustofunni getur orðið kveikjan að nýju rannsóknarverkefni og stundum kemur nemandi með athugasemd sem fær kennarann sjálfan til að hugsa málið upp á nýtt.

Stundum er svarið einfaldlega: Við vitum það ekki enn. Það er í sjálfu sér mikilvæg lexía. Sérfræðingur getur ekki alltaf vitað allt. Það sem er mikilvægt er að geta greint á milli þess sem er vitað, þess sem við teljum líklegt og þess sem við höfum einfaldlega ekki nægar upplýsingar um.

Það reynir jafnvel meira á þessa hæfni nú þegar hægt er að fá sannfærandi svar við nánast hverju sem er á örskotsstundu. Leitarvélar og gervigreind geta verið frábær verkfæri en þau leysa okkur ekki undan því að hugsa. Það er auðvelt að finna svar en getur verið erfiðara að vita hvort það er gott eða sannleikanum samkvæmt. Einmitt hér gegna háskólar grundvallarhlutverki því gagnrýnin hugsun er mikilvægari núna en nokkurn tímann fyrr, ekki síst til að standa vörð um lýðræði og upplýsta umræðu.

Þekking sem samfélagið byggist á

Háskólarnir mennta fólkið sem við treystum á og má finna á ótal stöðum í samfélaginu: Kennara, lækna, verkfræðinga, sálfræðinga, félagsráðgjafa, rithöfunda, menningarrýna, fjölmiðlafólk, stefnumótendur, vísindafólk og sérfræðinga á sviðum sem flest okkar hugsa sjaldan um fyrr en eitthvað bregst.

Samfélagið þarf fólk sem kann að meta gögn, þekkir mörk eigin þekkingar og getur tekið afstöðu til nýrra upplýsinga þegar aðstæður breytast. Aðgengi að háskólanámi snýst ekki bara um tækifæri einstaklingsins heldur líka um hvaða þekkingar og hæfni samfélagið fær að njóta síðar. Það sama gildir um rannsóknirnar. Þær geta stundum virst fjarri daglegu lífi, sérstaklega þegar viðfangsefnið er sérhæft og niðurstaðan langt frá því að vera tilbúin í fréttatilkynningu. En þannig verður þekking oftast til; hægt, í litlum skrefum, með mistökum, leiðréttingum og nýjum spurningum. Svo koma stundum augnablik þar sem rannsókn sem virtist mjög sérhæfð reynist skyndilega skipta miklu máli. Tækni á borð við snertiskjái, þráðlaus samskipti og örflögur byggðist til dæmis á áratuga rannsóknum áður en snjallsíminn varð til. Á öðrum sviðum hefur endurskoðun eldri þekkingar ekki síður skipt máli: lengi vel mótuðust til dæmis rannsóknir og greiningar á hjartasjúkdómum um of af dæmigerðum einkennum karla, sem olli hættu á því að hjartavandamál kvenna voru vangreind. Aukin þekking á þessum mun hefur síðan stuðlað að betri greiningu og meðferð.

Kennarinn sem gaf sér tíma

Góð háskólakennsla tekur tíma. Hún krefst samtals við nemendur, undirbúnings og vandaðrar endurgjafar. Hún krefst þess líka að kennarar hafi svigrúm til rannsókna og geti fylgst með þróun fræðasviðs síns. Annars er hætta á að tengslin milli þess sem kennt er og þeirrar þekkingar sem er að verða til rofni smám saman.

Kannski er það líka ástæðan fyrir því að við munum enn eftir ákveðnum kennurum löngu síðar. Þeir gerðu meira en bara að kenna okkur allar staðreyndirnar sem við þurftum að læra, heldur hjálpuðu okkur að uppgötva þær sjálf. Þeir áttu sinn þátt í að gera okkur að þeim manneskjum sem við erum í dag og þeim starfsferli sem við völdum okkur.

Í dag, 5. október, er alþjóðlegur dagur kennara. Við sendum okkar bestu þakkir til þeirra sem kenndu okkur, samstarfsfólks okkar sem heldur áfram að leggja sig fram um góða kennslu og ekki síst nemenda okkar en spurningarnar þeirra eru oft á tíðum mikilvægari en svörin sem við höfum.

Höfundar eru prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands og formaður Félags prófessora við ríkisháskóla, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og prófessor við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×