Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar 5. október 2026 12:30 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur segir í stefnuyfirlýsingu sinni að unnið verði að því þjóðarmarkmiði að tryggja öllum landsmönnum fastan heimilislækni. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs fer hins vegar lítið fyrir stuðningi við þetta þjóðarmarkmiðið. Margt bendir jafnframt til þess að þeim árangri sem þó hefur náðst varðandi fjölgun heimilislækna verði að öllu óbreytttu varpað fyrir róða. Metnaðurinn dugir skammt einn og sér Þjóðarmarkmið um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn er metnaðarfullt og mikilvægt fyrir þjóðarhag. Augljóslega verður því hins vegar ekki náð, nema mannafli og fjármögnun fylgi með. Heimilislækningar mynda undirstöður heilbrigðisþjónustunnar. Hlutverk heimilislækna er að byggja upp virk tengsl við almenning, fólkið í landinu, á samfelldum grunni svo sinna megi hverjum og einum á forsendum þess einstaklings þá og þegar á þarf að halda. Þess vegna skiptir staða heimilislækninga okkur öll máli sem mikilvægustu grunnstoð heilbrigðiskerfisins. Þörf áfram mikil á fleiri heimilislæknum Íslenskt sérnám í heimilislækningum hefur vaxið hratt og eru nú um 120 læknar skráðir, nær þrefalt fleiri en fyrir áratug. Þetta er einn mikilvægasti árangur íslenskra heimilislækninga á síðustu árum og afrakstur langrar uppbyggingar sérnámsins á vegum kennslustjóra, handleiðara og heilbrigðisstofnana. Þörfin er þó áfram mikil og í raun sér hvergi nærri fyrir þeim læknaskorti sem ríkt hefur í heimilislækningum. Nýleg samantekt Þórðar Gísla Ólafssonar heimilislæknis, sem birtist í júní sl. í Læknablaðinu, leiðir í ljós að 216 heimilislæknar í 181 stöðugildi eru starfandi rúmlega á hverja 400 þúsund íbúa. Það samsvarar rúmlega 2.200 íbúum á hvert stöðugildi. Til samanburðar má nefna, að Félag íslenskra heimilislækna hefur sett fram sem viðmið um 1.200 einstaklinga í þéttbýli og 800 í dreifbýli, sem er sambærilegt því sem miðað er við á hinum Norðurlöndunum. Rýfur tengslin við almenning Við sem störfum í heilsugæslunni þekkjum hvað þessar tölur þýða í reynd. Stórir sjúklingahópar gera okkur erfiðara fyrir að veita þá einstaklingsbundnu, þ.e. persónulegu og samfelldu heilbrigðisþjónustu, sem við vitum að skiptir svo miklu máli fyrir tengslamyndun læknis og skjólstæðings. Það er því ekki nóg að horfa á hversu margir hefja sérnám. Námið tekur fimm ár, meðalstarfshlutfall heimilislækna er 83%, læknar fara á eftirlaun og einhverjir leita í önnur störf eða til annarra landa. Þórður áætlar að til þess að ná viðmiði um 1.500 íbúa á hvert stöðugildi þurfi um 31 heimilislæknir að ljúka sérnámi á hverju ári næsta áratug, en um 41 ef miðað er við 1.200 íbúa. Úr öskunni í eldinn Þess vegna er sérstaklega óheppilegt ef vanefndir í fjármögnun mynda flöskuháls eftir að okkur hefur loksins tekist að byggja upp öflugt sérnám. Heimilislæknar hafa þegar bent á dæmi þess að ekki hafi verið hægt að ráða sérnámslækna í heimilislækningum eða nýútskrifaða sérfræðinga vegna fjárhagsstöðu stofnana. Sérnámslæknarnir þurfa auk þess að geta lokið sjúkrahúshluta námsins, en nú eru dæmi um að fyrirhuguðum námsvistum á Landspítala hafi verið aflýst, frestað eða þær styttar vegna skorts á plássi og fjármagni. Það væri öfugsnúið að laða unga lækna inn í heimilislækningar en geta síðan hvorki tryggt þeim námsvist til að ljúka náminu né störf þegar sérfræðiviðurkenningin er komin í hús. Ríkisstjórnin á að vita betur Þegar sú hækkun sem gert er ráð fyrir til heilsugæslunnar í fjárlagafrumvarpi næsta árs er sett í samhengi kemur í ljós að fjármagn til grunnþjónustu heilsugæslunnar á hvern skráðan einstakling hefur lækkað. Árið 2023 lagði Kristrún Frostadóttir ásamt fleiri þingmönnum úr stjórnarandstöðunni fram þingsálykktunartillögu á Alþingi, þar sem skorað var á þáverandi ríkisstjórn að vinna að því þjóðarmarkmiði að allir Íslendingar fengju heimilislækni og heimilisteymi á heilsugæslu. Jafnframt skyldi skilgreina viðmið um æskilegan fjölda skjólstæðinga á hvern heimilislækni og styrkja sérnám í heimilislækningum. Tillagan sýnir að þekking ætti að vera til staðar innan ríkisstjórnarinnar um mikilvægi þjóðarmarkmiðsins og vonandi einnig metnaður til að fylgja því eftir í fjárlögum næsta árs. Höfundur er í stjórn Félags íslenskra heimilislækna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun